Fréttatíminn - 05.09.2014, Blaðsíða 70
Hannesarholt
Grundarstíg 10
101 Reykjavík
www.hannesarholt.is
Sími: +(354) 511 1904
HANNESARHOLT
HAUST 2014
Haustdagskrá Hannesarholts
verður kynnt í Hljóðbergi,
laugardaginn 6. september
kl. 14. Lifandi tónlist og nýtt verk
Eggerts Péturssonar, Fjalldrapi,
verður afhjúpað. Verið velkomin.
Framundan í vetur:
Heimspekispjall
Tónleikar
Ljóðasöngur
Bókakvöld
Jazzspuni
Gönguferðir með leiðsögn
Samsöngur á sunnudegi
www.hannesarholt.is
Grundarstíg 10 · Sími: 511 1904
E r þessi plata rökrétt fram-hald frá síðustu plötu, eða kveður alltaf við nýjan tón
hjá hljómsveitinni?
„Þetta er ákveðið framhald,“
segir Daníel. „Þetta er mjög Gus-
Guslegt, en með aðeins öðruvísi
áherslum, þetta er sprækara og
léttara, laust við ákveðnar hjáleiðir
sem við fórum á síðustu plötu,“
segir Daníel.
„Arabian Horse var fyrir mér
framandi. Hún hefst á heimslegum
blæ og yfirbragði, við erum að
staðsetja músíkina á veraldlegum
stólpa. Það er meiri mýkt á Arabian
Horse á meðan Mexico er fram-
sæknari, þá er ég ekki endilega að
tala um hreina merkingu þess orðs,
heldur er hún bara blátt áfram fram
á við,“ segir Högni. „Hún er meira á
tánum,“ bætir Daníel við.
„Þetta er meira popp og meira
„rave“,“ segir Högni.
„Dansvöllurinn er okkar leikvöll-
ur, og þar höfum við verið að leika
okkur í tæp 20 ár, og það er ennþá
gaman að leika,“ segir Daníel.
Hvernig kom það til að Högni
varð meðlimur í GusGus, vantaði
enn einn litinn í þessa flóru sem
fyrir var í bandinu?
„Það vantaði ekkert, Högna var
bara boðið í partíið,“ segir Daníel,
„og það er gaman að vera með
Högna í partíi.“
„Það þurfti bara einn mann í víg-
línuna,“ bætir Högni við. „Manna
stöðu sem gerði liðið sterkara,“
segir Daníel.
„Fyrir mig persónulega var þetta
fljótlega eftir að ég var búinn að
gera plötu með Hjaltalín og Sinfó,
og var búinn að vera niðursokkinn í
músík sem ég var að gera fyrir leik-
rit. Var orðinn svolítið strand með
hvað ég væri svo að fara að gera.
Eitt kvöldið hitti ég Stebba á klúbbi
og við fórum að tala um siglingar
sem er sameiginlegt áhugamál
okkar beggja og ákváðum að við
skyldum fara í siglingu um Karab-
íska hafið. Nokkrum dögum seinna
mundi ég eftir þessu og hringdi í
hann og spurði hvort ég ætti ekki
að panta flug sem ég sá til Púertó
Ríkó. Þetta var í október og við
fórum í janúar. Í kjölfarið hittumst
við í stúdíóinu hjá GusGus og ég
prófaði að syngja yfir nokkur demó
sem hann var að vinna í og þannig
þróaðist þetta. Það var mikil stemn-
ing á þessum tíma og alltaf smá
kampavín sem fannst undir ein-
hverjum plötum og partí í stúdíó-
inu. Það er þarna sem ég kynnist
Daníel í fyrsta sinn,“ segir Högni.
Kom þetta á óvart? Ykkur eða
aðdáendum ykkar?
„Þetta kom mér á óvart,“ segir
Daníel. „Bara eins og lífið kemur á
óvart. Við sáum þetta ekkert í spil-
unum, ekkert planað, gerðist bara.“
„Mér datt þetta aldrei í hug,“
segir Högni. „Ég man bara eftir að
fara á tónleika með GusGus, horfa
á þá spila og fannst þeir geggjað
band, en það er fyndið að einhvern
tímann sagði ég við vin minn að ég
gæti alveg hugsað mér að búa til
tónlist með Gus Gus,“ segir Högni.
„Svona eins og draumur sem
varð að veruleika“ segir Daníel.
„Já líklega, „be careful what you
wish“,“ for bætir Högni við.
GusGus hefur ferðast um heim-
inn á hverju ári, þó það sé ekkert á
allra vitorði á landinu bláa. Sveitin
er orðin mjög vinsæl tónleikasveit.
„Við erum að laumast út nánast
í hverjum mánuði. Þetta er orðið
alþjóðlegt batterí, markaðurinn er
alþjóðlegur,“ segir Daníel.
„GusGus er þekkt stærð í dans-
heiminum, engar poppstjörnur
en þekkt stærð vissulega,“ segir
Högni en framundan er einmitt
tónleikaferðalag til kynningar á
plötunni.
Þið segið að Mexico sé léttari og
meiri dansplata en Arabian Horse.
Væntið þið þess að hún stækki
aðdáendahópinn?
„Vonandi og kannski, við vitum
það ekki,“ segir Daníel. „Mexico er
bara afurð einhvers hugarástands
sem er búið að vera í gerjun í
ákveðinn tíma og afsprengi þess,“
bætir hann við.
„Maður veit ekkert með það. Við
erum með ákveðna sýn og hún er
blanda af því sem maður vonar og
vill,“ segir Högni. „Meðvitað og
ómeðvitað,“ bætir Daníel við.
„Ég held að góð list sé bæði
gerð af innsæinu og ákveðnu sam-
hengi við áhorfandann, og það er
líka hlutverk listamannsins,“ segir
Högni.
Miðasala á tónleikana í kvöld er á
www.midi.is
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
TónlisT ÚTgáfuTónlEikar gusgus í lisTasafni rEykjavíkur
Dansvöllurinn
er okkar leikvöllur
Hljómsveitin GusGus gaf út sína níundu hljóðversplötu fyrr í sumar. Platan sem heitir Mexico er
full af dynjandi dansmúsík sem hefur verið aðalsmerki hljómsveitarinnar í þau 19 ár sem hún
hefur verið starfandi. Í dag, föstudag, heldur sveitin útgáfutónleika í Listasafni Reykjavíkur og
einn stofnmeðlimanna, Maggi Legó, er nýgenginn til liðs við sveitina aftur.
Útgáfutónleikar GusGus fara fram í Listasafni Reykjavíkur í kvöld, föstudagskvöld,
og þar verður öllu til tjaldað eins og sveitin er þekkt fyrir.
WWW.LEIKHUSID.IS WWW.LEIKHUSID.IS
Kynntu þér siglingar á uu.is
Úrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi.
Sími 585 4000 www.uu.is
Suður Karíbahaf og Orlando
6. – 20. JANÚAR
Verð frá aðeins 320.500 kr.
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
Góð samskipti milli þín og barna
þinna er besta leiðin til að vernda
þau gegn kynferðislegu ofbeldi!
DON
CARLO
eftir
Giuseppe Verdi
www.opera.is
Frumsýning
18. október
kl. 20
Miðasala í Hörpu og á harpa.is
Miðasölusími 528 5050
70 menning Helgin 5.-7. september 2014