Fréttatíminn - 05.09.2014, Blaðsíða 18
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Á
Ágústmet var slegið í umferðarþunga um
landið, að því er fram kemur hjá Vegagerð-
inni. Aukningin nam 7,5% miðað við ágúst í
fyrra. Umferðin var enn meiri í júlí. Ágúst-
metið kom verkefnastjóra umferðardeildar
Vegagerðarinnar á óvart, umferðaraukn-
ingin var meiri en reiknað var með. Ekki
var nein staðbundin skýring á aukningunni,
hún var alls staðar. Landsmenn voru á
faraldsfæti í júlí og ágúst, á helsta sumar-
leyfistímanum, en líklegt má
telja að hin hraða aukning er-
lendra ferðamanna eigi ekki
síður þátt í aukinni umferð
um vegi landsins. Erlendir
ferðamenn sem sóttu landið
heim í nýliðnum ágúst voru
16,4% fleiri en í ágúst í fyrra.
Aldrei hafa fleiri ferðamenn
heimsótt landið í ágústmán-
uði. Í nýjum gögnum Ferða-
málastofu kemur fram að er-
lendir ferðamenn sem hingað
komu í liðnum mánuði voru 153,400 og um
700.000 þúsund frá áramótum. Þótt enn sé
eftir þriðjungur af árinu eru erlendir ferða-
menn orðnir fleiri en allt árið 2012. Þess er
heldur ekki langt að bíða að met síðasta árs
verði slegið.
Það sem meðal annars hefur áhrif á
aukna umferð er ör fjölgun bílaleigubíla.
Á liðnu vori voru skráð 140 fyrirtæki með
rekstrarleyfi til að reka bílaleigu. Árið 2008
voru bílaleigurnar 64. Fjölgunin á sex árum
er 120%. Í fyrra var talið að um 12 þúsund
bílaleigubílar væru í útleigu. Þeir eru enn
fleiri nú. Bílaleigurnar kaupa meirihluta
innfluttra bíla.
Skyndileg aukning umferðar er ekki
endilega jákvæð, að mati verkefnastjóra
Vegagerðarinnar. Hann segir hóflegan vöxt
æskilegri. Undir það má taka, hóf er best í
hverjum leik, hvort heldur varðar fjölgun
ferðamanna eða umferð um vegi landsins –
en ferðamannaævintýrið hérlendis er stað-
reynd svo áætlanir og framkvæmdir verður
að miða við það.
Vitaskuld ber að fagna auknum ferða-
mannafjölda. Ferðagreinin hefur á tiltölu-
lega skömmum tíma vaxið svo mjög að hún
er komin fram úr sjávarútvegi og áliðnaði
þegar kemur að gjaldeyrisöflun. Ýmsir vaxt-
arverkir fylgja þó þróuninni og komast sam-
gönguyfirvöld ekki hjá því að taka á þeim
vanda sem fylgir auknum umferðarþunga.
Þótt bylting hafi orðið í samgöngumálum á
undanförnum áratugum, einkum með lagn-
ingu bundins slitlags og tilkomu mikilvægra
samgöngumannvirkja, eins og jarðganga og
nýrra brúa, er enn mikið starf óunnið í sam-
göngumálum, hvort heldur er endurnýjun
gamalla, úreltra og jafnvel hættulegra vega,
breikkun vega sem þegar eru með bundnu
slitlagi, brúargerð eða almennu viðhaldi.
Þessar framkvæmdir eru dýrar en hjá átaki
verður ekki komist. Mjög auknar tekjur
vegna ferðaþjónustunnar réttlæta slíkt.
Tekjuaukning ríkisins fæst enn fremur náist
bætt tekjuskráning fyrirtækja í ferðaþjón-
ustu. Fram kom nýverið að ríkisskattstjóri
hefði heimsótt hátt í 1400 fyrirtæki í sumar.
Embættið þurfti að gera athugasemdir við
tekjuskráningu hjá um helmingi þeirra – en
langstærstur hlut þeirra var í ferðaþjónustu.
Nú í haust verður síðan ráðist í að skoða
skattskil þeirra sem selja heimagistingu í
gegnum vefsíður. Jafnræði verður að ríkja í
skattgreiðslum þeirra sem þessa þjónustu
veita. Skattsvik þeirra sem þau stunda koma
niður á þeim fyrirtækjum sem eru með allt
sitt á hreinu – og skaða þjóðarhag.
Þótt varhugavert sé að gera ráð fyrir jafn
örri fjölgun ferðamanna og verið hefur allra
síðustu ár gera áætlanir þó fyrir aukningu,
að öllu forfallalausu. Fjárfesting hefur verið
mikil í greininni, ekki síst hvað gistingu
varðar, jafnvel svo að í vor vöruðu hótelhald-
arar og sérfræðingar við hættu á offjárfest-
ingu í hótelum.
Íslensk ferðaþjónusta er viðkvæmur
atvinnuvegur og ýmislegt getur haft áhrif.
Árið 2010 óttuðust menn í greininni og stjór-
nvöld að gosið í Eyjafjallajökli kynni að hafa
veruleg áhrif til hins verra – en reyndin
var þveröfug. Því er von að horft sé til þess
á hvorn veginn mál þróast vegna þeirra
hræringa sem nú eiga sér stað í Vatnajökli
og norðan hans.
Ferðamannasprengjan sést á þjóðvegunum
Umferðarþungi kallar á úrbætur
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjÁLMTýsdóTTiR
18 viðhorf Helgin 5.-7. september 2014