Fréttatíminn - 05.09.2014, Page 23
Sölusýning
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Sölusýning á morgun
frá kl. 10 til 16.
Á morgun efnum við til sölusýningar í verslun
okkar í Nóatúni 4.
Þar gefst tækifæri til að skoða allt það nýjasta
sem við bjóðum, m.a. þvottavélar með
sjálfvirkum kerfum og vigt, uppþvottavélar
með öflugri Zeolite-þurrkun, kæliskápa með
tækni sem tryggir lengur ferskleika
grænmetis og ávaxta, þurrkara með
sjálfhreinsandi rakaþétti og fleira og fleira.
Fjöldi tilboða í tilefni dagsins.
Veittur verður verulega góður
afsláttur.
Látið sjá ykkur og njótið dagsins með okkur.
Það verður heitt á könnunni!
lengi er ekkert auðvelt að kveðja
fjárhagslegt öryggi, en maður má
heldur ekki staðna. Þá er nú betra
að vera óttaslegin í smá stund.
Við erum öll mismundandi rót-
laus og mér finnst soldið gott að
reika, það er bara hluti af mér og
mínu uppeldi. Ég ferðaðist mikið
með foreldrum mínum sem barn,
bjó svo í Frakklandi þar sem ég tók
BA próf í frönsku og ítölsku áður en
ég svo lærði leiklist í London. Þann-
ig að ég var vön flakkinu áður en
öryggið í Þjóðleikhúsinu tók við,“
segir Brynhildur en bætir því við að
auðvitað sé maður á stöðugu ferða-
lagi þegar maður vinnur í leikhúsi.
„Yale var ferðalag sem ég þurfti á að
halda. Það var svo heillandi að vera
þarna umkringd allskonar fólki úr
öllum áttum. Sumir voru að koma
beint úr BA-námi á meðan aðrir
voru með 10 ára reynslu í leikhúsi
og engum var þjappað í sama mót-
ið. Í þessu umhverfi gat ég skrifað
stanslaust í 10 mánuði og það var
frábært. Og það besta var að ég
fékk þarna tækifæri til að slökkva
á gemsanum og bara skipta um gír.
Stór hluti tímans fór að sjálfsögðu í
dagdrauma og svo krísur þar sem
ég velti því fyrir mér hvað í ósköp-
unum ég væri að gera þarna, allt of
gömul og örugglega ekki á réttum
stað,“ segir Brynhildur og skelli-
hlær eftir á að krísunum.
Persónulegasta verkið til
þessa
Leikverkið Fíll, sem sýnt verður
í Kassanum í vetur, er afrakstur
þessa lærdómsríka tímabils í lífi
Brynhildar. „Þetta er í fyrsta sinn
sem ég skrifa svona persónulegt
verk. Brák og Frida eru verk af
öðrum toga því þau byggja á sögu-
legum grunni. Í þessu nýja verki fæ
ég í fyrsta sinn frelsi til að skrifa
út frá sjálfri mér og til að skrifa á
hvaða hátt sem er. Það lærði ég líka
í náminu, að það má skrifa á allan
hátt. Bandaríkjamenn eru á ofsa-
lega skemmtilegum stað hvað varð-
ar leikritun, þeir skrifa óhefðbundið
og leikrit er ekki bara eitthvað eitt.
Andstætt því sem sumir halda fram
hér heima.“
Verkið segir Brynhildur fjalla um
konu og karl sem bæði hafa beðið
andlegt og tilfinningalegt skipbrot
og mismunandi leiðir þeirra til að
takast á við það. Það sé þó ekki sett
upp í því sem telst hefðbundið form
og því sé það sérstaklega forvitni-
legt fyrir hana að sjá hvernig leik-
stjórinn, Marta Nordal, muni takast
á við verkið. En að sama skapi segir
Brynhildur það vera mjög skrítna
tilfinningu að setja sitt eigið verk í
hendurnar á öðrum.
„Þetta er alveg agaleg tilfinn-
ing,“ segir hún og hlær, „en ég er
sérstaklega ánægð með að Marta
Nordal hafi tekið verkið mitt að sér
því ég hef miklar mætur á henni
sem leikhúsmanneskju. Hún er svo
afburðaklár og fagurfræðilega óað-
finnanleg. Svo fékk ég líka frábæra
leikara, þau Lilju Nótt og Stefán
Hall. Ég er mjög spennt yfir þessu,
að sjá hvaða hljóð muni koma úr
rana fílsins. Ég veit ekkert endilega
hvað þetta er og það er bara í lagi.
Ég ætla allavega að smella mér í
spari og mæta á frumsýningu.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Brynhildur er ánægð með þá áherslu sem
lögð verður á konur í leikhúsinu í vetur.
„Þetta er auðvitað alltaf sama tuggan,
konur verða að láta til sín taka. Kannski er
nauðsynlegt að handstýra því á einhvern
hátt, en það verður jafnframt að gera
það á fallegan hátt. Það er ekki nóg að
segja bara; „ok, gerum núna eitthvað fyrir
stelpurnar og finnum eitthvað leikrit með
fullt af konum í.“ Það verður að koma frá
réttum stað, kreatívum stað.“ Mynd Hari
viðtal 23 Helgin 5.-7. september 2014