Fréttatíminn - 05.09.2014, Síða 40
40 heimili & hönnun Helgin 5.-7. september 2014
Hönnun Létt og Ljúf stemning í nýrri versLun í miðbæ AkureyrAr
Systur og makar opna
lífsstílsverslun á Akureyri
Marimekko kjóll
27.900,-
Nýtt í finnsku
búðinni!
Suomi PRKL! Design
Laugavegi 27 (Bakhús)
www.suomi.is, 519 6688
s ysturnar María Krista og Katla Hreiðarsdætur opna í dag lífsstílsverslunina Systur
& makar í miðbæ Akureyrar. Versl-
unin er sannkallað fjölskyldufyrir-
tæki því hana reka þær systurnar
ásamt mökum sínum, þeim Berki
Jónssyni og Þórhildi Guðmunds-
dóttur. Systir Þórhildar og mágkona
Kötlu er svo verslunarstjórinn.
María Krista og Katla hafa rekið
sitt hvort fyrirtækið í um sex ár.
Katla á Volcano Design og rekur
verslun við Laugaveg og mun halda
því áfram. María Krista hefur svo
rekið Krista Design í Hafnarfirði og
selt skart, fylgihluti og heimilisvör-
ur til verslana. Í versluninni á Ak-
ureyri verða á boðstólum vörur úr
smiðjum þeirra systra. „Það er nýtt
hjá okkur að starfa saman. Við höfð-
um stundum rætt þann möguleika
yfir hvítvínsglösum en svo varð
þetta að veruleika mjög hratt núna
síðsumars. Þá vorum við á leið heim
af Handverkshátíðinni Hrafnagili
og fréttum af þessu fína húsnæði
á Akureyri sem var á lausu,“ segir
María Krista.
Undanfarnar vikur hefur fjöl-
skyldan staðið í ströngu við undir-
búning opnunarinnar og sankað að
sér ýmsum gömlum húsgögnum
úr Góða hirðinum og frá Samhjálp.
„Við erum búin að vera á fullu að
mála og endurgera. Sumir halda að
við séum að fara að opna húsgagna-
verslun því við höfum keypt svo
mikið af húsgögnum en svo er nú
ekki,“ segir María og hlær. Í versl-
uninni verður létt og ljúf stemning
svo bæði þeir sem eru að versla og
hinir sem fylgja með geti haft það
notalegt og fengið sér kaffi.
Systurnar María Krista og Katla
búa á höfuðborgarsvæðinu en ætla
að fara sem oftast norður til Akur-
eyrar um helgar og vinna í verslun-
inni. „Hún Aðalbjörg Guðmunds-
dóttir verslunarstjóri býr á Akureyri
og sér um þetta þess á milli. Við
erum mjög spennt að hefja rekstur
á Akureyri og er farið að þykja vænt
um bæinn.“
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Notaleg lífsstílsverslun verður
opnuð í miðbæ Akureyrar
í dag, föstudag. Systurnar
Katla og María Krista Hreið-
arsdætur reka verslunina
ásamt mökum sínum. Þær
höfðu oft rætt þann mögu-
leika að starfa saman og á
heimleið af Handverkshátíð á
Hrafnagili í sumar fréttu þær
af lausu húsnæði á Akureyri
og ákváðu að slá til.
Katla hjá Volcano Design og María
Krista hjá Krista Design sameina krafta
sína og opna lífsstílsverslunina Systur
& makar í miðbæ Akureyrar í dag,
föstudag.
María Krista hefur
endurnýtt gömul
hálsbindi og
saumað úr þeim
falleg hárbönd.
Boðið verður upp á fatnað frá Volcano Design og skartgripi og fylgihluti frá Krista Design.
Stóllinn Eggið eftir danska
arkitektinn og hönnuðinn
Arne Jacobsen er á efa
meðal þekktustu og
vinsælustu húsgagna í
heimi. Eggið hannaði Arne
fyrir móttökuna á Royal
Hotel í Kaupmannahöfn
sem opnað var árið 1960.
Arne teiknaði bygginguna
og sá um alla hönnun,
hvort sem það voru hús-
gögn, speglar, öskubakkar
eða annað. Svanurinn eftir
Arne, sem einnig hefur
notið mikilla vinsælda, leit
líka fyrst dagsins ljós við
opnun Royal Hotel í Kaup-
mannahöfn.
Í dag heitir hótelið
Radisson SAS Royal Hotel.
Þegar það var opnað árið
1960 var það stærsta hót-
elið í Danmörku og fyrsta
háhýsi höfuðborgarinnar.
Eggið og svanurinn upphaflega
hönnuð fyrir hótel
Eggið og Svaninn hann-
aði Arne Jacobsen upp-
haflega fyrir Royal Hotel
í Kaupmannahöfn.