Fréttatíminn - 05.09.2014, Blaðsíða 41
heimili & hönnun 41Helgin 5.-7. september 2014
Fjölmiðlamaðurinn Heiðar
Austmann heldur mikið upp á
sófann á heimili sínu. „Sófinn
er athvarf eftir daginn og ég
panta oft að fá að vera á tung-
unni. Um helgar hlamma ég
mér í sófann og horfi á enska
boltann,“ segir hann. Heiðar
og kona hans eiga tvær dætur,
fjögurra ára og sex mánaða,
og á laugardagskvöldum sest
fjölskyldan iðulega saman í
sófann og horfir á kvikmynd
og borðar popp. „Í sófanum
hef ég átt margar góðar
stundir. Til dæmis hef ég oft
skipt um bleiur í honum,“
segir hann í léttum dúr.
Á heimilinu er einnig borð-
stofuborð sem Heiðari er
kært. Borðið keypti hann
notað af systur vinkonu
sinnar. „Þetta er tekkborð
með sex stólum sem ég fékk
á fínu verði. Áður vorum við
með eldgamalt borð sem
var orðið svolítið lúið. Með
stækkandi fjölskyldu er
gott að vera með svona stórt
borð. Við fjölskyldan komum
saman við borðið eftir langan
dag og ræðum hvað gerðist
þann daginn. Við borðið hafa
líka verið haldin matarboð og
spilakvöld og reyndar alveg
ótrúlega margt, hvort sem
það eru barnaafmæli eða
annað. Allt gerist við borð-
stofuborðið góða.“ -dhe
Heimili UppáHalds Húsgagnið
Skiptir um bleiur á sófanum
Notað borðstofuborð er í miklu uppáhaldi hjá fjölmiðlamanninum Heiðar Austmann.
Eftir langan dag sest fjölskyldan saman við borðið og ræðir viðburði dagsins.
TILBOÐ
KOMDU MEÐ MÁLIN og við
hönnum, teiknum og gerum
þér hagstætt tilboð.
FAGMENNSKA í FyrIrrúMI
Þú nýtur þekkingar og
reynslu og fyrsta flokks
þjónustu.
VIÐ KOMUM hEIM tIL þíN,
tökum mál og ráðleggjum
um val innréttingar.
þú VELUr að kaupa
innréttinguna í
ósamsettum einingum,
samsetta eða uppsetta.
hrEINt OG KLÁrt
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
Þvottahús
Fataskápar og sérsmíði
Baðherbergi Skóhillur
AFSLÁttUr
25%
AF ÖLLUM
INNrÉttING
UM
í SEptEMbEr
OG HAUSTA FER
tILbOÐ VIÐ hÖFUM í SEptEMbEr
ER SUMRI HALLAR
Glæsilegar innréttingar á tilboðsverði
Vandaðar hillur Búrskúffur Innbyggðar hillur
RAFTÆKI
FYRIR ELDHÚSIÐ
ÁbyrGÐ - þJÓNUStA
5 ár á innréttingum, 2 ár á raftækjum.
Fríform annast alla þjónustu.
(Trésmíðaverkstæði,
raftækjaviðgerðaverkstæði).
VÖNDUÐ rAFtÆKI
Á VÆGU VErÐI
Skúffuinnvols
Mán. - föst. kl. 9 -18,
laugardaga kl. 11-15
friform.is
OpIÐ
Helluborð
OfnarKæliskápar Háfar
Uppþvottavélar
Sófinn í stofunni er í miklu uppáhaldi hjá Heiðari Austmann. Um helgar hlammar hann sér í
sófann og horfir á enska boltann. Ljósmynd/Hari
Borðstofuborðið keypti Heiðar notað af
systur vinkonu sinnar.
Edik í þrifin
Borðedik klýfur fitu, nær fram
gljáa og eyðir vondri lykt og er því
alveg kjörið í þrifin heimilinu.
Rúðuúði
Blandið ediki og vatni í hlutföll-
unum einn á móti tíu (edik 1 / vatn
10) í blómaúðabrúsa og úðið á gler
og spegla. þurrkið vel og strjúkið
yfir með gömlum krumpuðum
dagblöðum. Prentsvertan eykur
gljáa.
Salernishreinsir
Ediki er hellt í salernisskálina og
látið liggja yfir nótt. Burstað vel og
sturtað niður.
Edik í þvottavélina
Setja má dálítið af ediki í þvotta-
vélina í stað þvottaefnis til að flík
haldi lit sínum.
Lyktareyðir
Til að losna við vonda lykt á
heimilinu er ráð að setja borðedik
í skál og láta standa á eða nálægt
ofni.
Ef vond lykt er af skurðar-
brettum er gott að skrúbba þau
upp úr ediki og skola vel.
Kaffivélar má þvo með því
að láta edik í stað vatns í vélina
og láta hana ganga. Endurtekið
tvisvar með vatni til að eyða ediks-
lyktinni.
Upplýsingar af vef Leiðbeiningamiðstöðvar
heimilanna, www.leidbeiningastod.is