Fréttatíminn - 05.09.2014, Side 52
52 heilsa Helgin 5.-7. september 2014
Útrás Ms fjárfestir í danskri skyrfraMleiðslu
Skyrið vinsælt í Finnlandi
og kynnt í Bretlandi
Skyr er selt í Noregi og Finnlandi samkvæmt sérleyfum.
Mjólkursamsalan, MS, fjár-
festi í tækjum fyrir um 180
milljónir króna í mjólkurbúi
Thise á Jótlandi í Danmörku,
að því er fram kom í Morgun-
blaðinu í febrúar síðastliðnum.
Þar sagði Jón Axel Pétursson,
framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs MS, tilganginn
með fjárfestingunni vera, auk
framleiðslunnar í Danmörku,
að geta annað eftirspurn eftir
skyri í Finnlandi á þessu ári og til að geta hafið kynn-
ingu á skyri í Bretlandi.
MS setti met í skyrsölu á Norðurlöndunum í fyrra
og útlit er fyrir mun meiri sölu þar á þessu ári en í
fyrra. Í Noregi og Svíþjóð er skyr framleitt og selt
samkvæmt sérleyfum.
MS leigir danska Thise
mjólkurbúinu véla- og pökk-
unarbúnað en búið er danskur
samstarfsaðili Mjólkursam-
sölunnar. Fram kom í blaðinu
að Thise hefði tvöfaldað
heimamarkaðinn á síðasta ári.
Áætlað var, að því er fram kom
í fréttinni, að sala á skyri í
Finnlandi næmi 1.800 tonnum
á þessu ári og að um 1400 tonn
komi frá Thise í Danmörku.
„Það var annaðhvort fyrir okkur að fara í þessa fjár-
festingu,“ sagði Jón Axel, „eða eiga á hættu að einhver
annar tæki yfir þennan sterka markað sem er orðinn
til í Finnlandi.“
f yrir átta árum hittust ís-lenskir og danskir ráðherrar í móttöku á veitingastaðnum
Noma í Kaupmannahöfn. Tilefnið
var kynning á þúsund ára gamalli ís-
lenskri mjólkurafurð, skyri, segir í
frétt Jótlandspóstsins í vikunni. Þar
kemur fram að í upphafi hafi sala
mjólkurbúsins Thise Mejeri, fyrsta
framleiðanda skyrs í Danmörku,
gengið heldur báglega og svartsýni
ríkt um framhaldið en varan var
aukaafurð og eingöngu seld í versl-
unum Irma.
Engin ástæða var hins vegar fyrir
svartsýni hvað skyrið varðaði, þessa
heilsuvöru sem öldum saman hefur
verið á borðum Íslendinga, því alger
sölusprengja hefur orðið á skyri í
Danmörku undanfarin misseri.
Salan milli áranna 2012 óx um 200
prósent og aukningin í ár nemur
300 prósent. Slíku hefur Mogens
Poulsen, sölustjóri Thise, aldrei
kynnst með nokkra framleiðsluvöru
en Thise hefur orðið að fjárfesta í
auknum búnaði til að fylgja sölu-
aukningunni eftir.
Þegar salan á skyrinu fór að
aukast fyrir þremur, fjórum árum,
fór Arla Foods einnig að framleiða
skyr. Arla selur nú um helming alls
þess skyrs sem framleitt er í Dan-
mörku. Þar hefur sprenging einn-
ig orðið í sölunni. Aukning á sölu
skyrs hjá Arla Foods nam 275 pró-
sent og framleiðslan er í mikilli þró-
un, að því er fram kemur hjá Mætte
Færch markaðsstjóra. Hún segir
að söluaukninguna megi þakka
áherslu á sölu hollra, fitulítilla mat-
vara með háu próteininnihaldi.
Þegar skyr kom á danska markað-
inn voru sýrður rjómi og grísk jóg-
úrt þar á fleti fyrir en skyrið hefur
að verulegu leyti komið í stað þess-
ara mjólkurvara, segir Mætte og
bætir við að um helmingurinn af
skyrframleiðslu fyrirtækisins fari
á morgunverðarborð Dana.
Arla Foods framleiðir nú 7-8 þús-
und tonn af skyri. Þótt ákveðnar
jógúrtegundir hafi orðið að víkja
fyrir íslenska hástökkvaranum
koma einnig nýir neytendur til.
Þriðjungur skyrkaupendanna hef-
ur aldrei keypt súrmjólkurfram-
leiðslu fyrr. Það eru neytendur sem
leita að þeirri þægilegu seddutil-
finningu sem skyrið veitir – og þar
er einkum um konur að ræða, segir
Mætte Færch.
Fjölbreytni framleiðslunnar hef-
ur aukist hröðum skrefum með
auknum vinsældum. Nú er skyr-
ið vinsælt sem morgunmatur og
í boxum sem fólk tekur með sér.
Drykkjarskyr er enn fremur vin-
sælt og kryddað skyr er notað sem
ídýfa. Nýjasta afurðin er frosið
skyr.
Hjá upphaf lega framleiðand-
andum, Thise Mejeri á Jótlandi,
sem hóf skyrframleiðsluna í sam-
starfi við Mjólkursamsöluna, óttast
menn þó ekki samkeppnina. Hreint
skyr, Skyr Naturel, stend-
ur undir lang-
mest u a f
framleiðslu
mjólkur-
búsins. Þar
á bæ telja
menn skyr-
söluna enga
bólu heldur sé
skyrið komið
til að vera á
borðum Dana.
Tilfinning okk-
ar er að skyrið
sé orðið hefð-
bundinn réttur
Dana," segir Mo-
gens
Poul-
sen.
Fram
kemur í
Jótlands-
póstinum að
danskir neyt-
endur meg i
vænta nýjunga í
skyrframleiðsl-
unni á næst-
unni. Arla Food
fylgir heilsubylgj -
unni sem f leytt hefur íslenska
skyrinu svo langt á dönskum mark-
aði og mun kynna nýja fitusnauða
skyrframleiðslu. Thise
mun hins vegar
kynna fyrir Dönum
gamla íslenska upp-
skrift, skyr hrært
með þeyttum rjóma.
Það mýkir skyrið og
mildar bragðið, segir
Mogens Poulsen.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Heilsufæða Metsala á íslenskri Mjólkurafurð í danMörku
Íslenska skyrið orðinn fastur liður í matarhefð Dana. Danskir
framleiðendur eiga erfitt með að fullnægja eftirspurn.
Thise hóf framleiðslu á skyri í Danmörku árið 2006 í samstarfi við Mjólkursam-
söluna. Þá framleiddi fyrirtækið 200 kíló á viku. Nú er framleiðslan 60 tonn á viku.
Mynd Thise Mejeri
Danskar konur
vitlausar í skyr
Skyr frá Arla Foods.
fjöldi
tilboða
borðstofu-
borðum og
-stólum
borðstofudagar
í september
2 fyrir1
tekk company og habitat
kauptún 3
sími 564 4400
vefverslun á www.tekk.is
opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18
og sunnudaga kl. 13-18
tilboðsverð:
frá 148.000 kr.
tilboðsverð:
11.920 kr.
tilboðsverð:
18.000 kr.
tilboðsverð:
29.500 kr.
tilboðsverð:
111.200 kr.
tilboðsverð:
99.200 kr.
tilboðsverð:
4.720 kr.
tilboðsverð:
22.500 kr.
2 stk.
tilboðsverð:
34.500 kr.
2 stk.