Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.09.2014, Síða 60

Fréttatíminn - 05.09.2014, Síða 60
60 matur & vín Helgin 5.-7. september 2014  Útrás NÚ geta svíar svolgrað ísleNskaN bjó F yrr á árinu auglýsti Systembolaget opinn glugga (Tender) sem Bríó passaði inn í og við sendum inn kassa til að prófa. Í framhaldi fengum við að vita að Bríó hefði orðið fyrir valinu og stæði til boða hillupláss í Sví- þjóð í haust. Við vitum ekki nákvæmlega í hversu mörgum verslunum við byrjum en mér sýnist á öllu að þetta séu vel á annað hundrað verslanir,“ segir Valgeir Valgeirsson, bruggmeistari hjá Borg brugg- húsi, um útrás fyrsta Borgar-bjórsins til Svíþjóðar. Fjöldi alþjóðlegra viðurkenninga Bríó hefur sankað að sér fjölda alþjóðlegra verð- launa þrátt fyrir að aðeins séu nokkur ár síðan hann kom á markað. Meðal þeirra eru gullverðlaun í stærstu bjórkeppnum heims á borð við World Beer Cup og World Beer Awards. Í verðlaunasafnið bætt- ist svo síðsumars gullpeningur frá The Global Craft Beer Awards sem fram fór í Berlín en þar sigraði Bríó í flokki pilsnerbjóra. Nú stendur til að halda upp á velgengni og sigra Bríó og mun fögnuðurinn fara fram á Ölstofu Kormáks og Skjaldar í dag, föstudag, klukkan 17. Allir Bríó unnendur og bjór- áhugamenn eru velkomnir, að sögn Valgeirs. Ævafornir humlar og lífsins lystisemdir Samkvæmt Sturlaugi Jóni Björnssyni, bruggmeist- ara Borgar brugghúss, er Bríó svokallaður pilsner- bjór en ólíkt því sem margir Íslendingar halda er pilsner ekki léttöl heldur ljós lagerbjór, ættaður frá borginni Pilsen í Bæheimi í vestanverðu Tékklandi. „Þessi bjórstíll leit fyrst dagsins ljós á miðri 19. öld og varð svo vinsæll að megnið af þeim bjór sem drukkinn er í dag er á einn eða annan hátt byggður á þessum stíl,“ segir Sturlaugur. „Notað er þýskt humlayrki, Mittelfruh frá Hallertau í Bavaríu, í bjór- inn. Þessi humlar eru margrómaðir og ævafornir og einkum þekktir fyrir að gefa bjór einkennandi bragð og ljúfa lykt. Flestir nútímaneytendur þekkja lítið til bragðs eða lyktar af humlum, þar eð þeir eru nú til dags einkum notaðir í bjór til að gera hann beiskan. Auk humla er notað ljóst pilsen-malt frá Svíþjóð, vatn úr Gvendarbrunnum og undirgerjandi ger. Bríó keppti því í einum stærsta flokki keppninn- ar, flokki þýskra pilsnerbjóra.“ Bjórinn Bríó var þróaður sérstaklega af Borg Brugghúsi í samstarfi við Ölstofu Kormáks og Skjaldar og fékkst eingöngu úr krana Ölstofunni fyrstu mánuðina, en hann mætti þangað fyrst í sinni endanlegu mynd í lok maí 2010. Bríó er nefndur eft- ir góðum vini þeirra Kormáks og Skjaldar, fjöllista- manninum Steingrími Eyfjörð Guðmundssyni, sem lést fyrir aldur fram árið 2009. „Hann var afskap- lega skemmtilegur maður, mikill sagnameistari og tryggur viðskiptavinur Ölstofunnar,“ segir Kor- mákur. „Hann var kallaður Bríó – en bríó er gamalt ítalskt orð yfir gleði. Bríó er eiginlega sérstakur lífs- stíll, en orðið lýsir þeim sem kunna að njóta lífsins og lystisemda þess en stilla öllum áhyggjum í hóf,“ bætir Kormákur við. Ferskt lambagúllas úr íslenskum lambaframparti Ferskt lambagúllas er frábært í íslenska kjötsúpu, pottrétti og alla gúllasrétti. Veldu gæði - veldu Kjarnafæði. Kjarnafæði framleiðir flestar þær afurðir úr íslensku gæðakjöti sem í boði eru á íslenskum neytendamarkaði. Höfuðáherslur Kjarnafæðis eru á vöruvöndun og gæði framleiðslunnar og því er markvisst stefnt að aukinni hollustu, unnið að fækkun aukefna og ofnæmisvalda. Kjötiðnaðarmeistarar fyrirtækisins hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir færni sína. Kjarnafæði hf. 601 Akureyri Sími 460 7400 kjarnafaedi.is Bríó kominn í sænska ríkið Áfengisverslun sænska ríkisins, Systembolaget, hefur hafið sölu á íslenska bjórnum Bríó. Bjórinn er nú fáanlegur í föstu vöruvali keðjunnar og dreift í á annað hundrað versl- anir. Nú þegar eru fjórir gámar farnir til Svíþjóðar. Mikil ánægja er hjá Borg brugghúsi og á Ölstofunni með útrás Bríó til Svíþjóðar. Velgengninni verður fagnað á Ölstofunni í dag. föstudag, klukkan 17. Frá vinstri eru Valgeir, Kormákur, Skjöldur og Sturlaugur. Ljósmynd/Hari

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.