Fréttatíminn - 05.09.2014, Page 74
Ljónunum þykir gott
þegar þeim er klórað á
kviðnum.
Minnstu
ljónunum
finnst mjög
gaman
þegar
leikið er
við þau
með priki.
DýravernD Ljónum í afríku hefur fækkað um 80 prósent
Gætti ljóna í sumarfríinu
Ingunn Erla Kristinsdóttir dvaldi í Zambíu í sumar og annaðist hóp ljónshvolpa. Villtum ljónum
í Afríku hefur fækkað mikið á undanförnum árum og tók hún þátt í verkefni sem miðar að því
að þjálfa ljónshvolpa, sem fæddir eru af ófrjálsum ljónum, til að lifa frjálsir úti í náttúrunni.
I ngunn Erla Kristinsdóttir starfaði sem sjálfboðaliði í bænum Livings-tone í Zambíu í sumar og gætti þar
ljónshvolpa á aldrinum 4 til 18 mánaða.
Þar tók hún þátt í verkefni sem miðar
að því að fjölga villtum ljónum í Afríku
en þeim hefur fækkað um 80 prósent
á síðastliðnum 30 árum. „Mitt starf
fólst meðal annars í að fara með ljónin í
gönguferðir, leika við þau og gefa þeim
að borða,“ segir Ingunn. Ljónin eru
friðuð en algengt er að þau séu skotin
fari þau nálægt íbúabyggð. Ljónin eru
mikilvægur hluti af fæðukeðjunni og til-
vist þeirra nauðsynleg vistkerfinu.
Hugmyndafræðin að baki verkefninu
er að vernda og þjálfa ljónshvolpa sem
fæddir eru af ófrjálsum ljónum og gera
þá sjálfbjarga. Þeim er svo sleppt út
í náttúruna og afkvæmi þeirra verða
frjáls. Ingunn kveðst ekki hafa verið
hrædd við ljónin en þó örlítið óörugg í
fyrstu. „Minnstu ljónunum finnst mjög
gaman þegar leikið er við þau með
priki. Þeim finnst líka mjög gott þegar
þeim er klórað á kviðnum. Þegar ég
kynntist ljónunum betur fann ég að
hvert og eitt þeirra er með mismunandi
persónuleika.“
Í gönguferðunum var Ingunn alltaf
með prik því ljónin geta bitið. Ef þau
gera sig líkleg til að bíta er nóg að reisa
prikið upp því þau óttast hæðina. Þor-
andi er að fara með ljónin í gönguferðir
þangað til þau verða 18 mánaða gömul
en eftir það er þeim sleppt frjálsum á
stórt svæði þar sem þau veiða sér fæðu
sjálf og mannlegum inngripum hætt en
fylgst með hvernig þeim reiðir af.
Sjálfboðaliðarnir bjuggu í litlum leir-
kofum í útjaðri bæjarins Livingstone
sem er nálægt Viktoríufossum og þjóð-
garðinum Mosi-oa-Tunya. Á svæðinu
er mikið um villt dýr eins og buffla og
flóðhesta og því er ekki talið óhætt fyrir
fólk að vera úti á kvöldin. Klukkan sex á
morgnana gaf Ingunn ljónshvolpunum
mjólk í skál og tóku þeir alltaf hraust-
lega til matar síns og gáfu frá sér öskur
þegar þeim var gefið kjöt. „Við þriggja
til fjögurra mánaða aldur fara ljónin að
fá kjöt. Þau voru alltaf mjög spennt að
fá kjötið sitt og létu þá vel í sér heyra.
Þegar ég var að gefa þeim mjólk hélt ég
skálinni alltaf kyrri því annars myndi
hellast niður. Þau eru mjög gráðug.“
Ingunn lærði kjólasaum í Tækniskól-
anum en starfar núna sem leiðbeinandi
á leikskólanum Höfðabergi. Hún var að
leita sér að „au pair“ starfi í útlöndum á
vefnum Nínukot þegar hún rakst fyrir
tilviljun á auglýsingu um sjálfboða-
starfið í Zambíu. Sjálfboðaliðarnir fóru
einnig í heimsóknir í grunnskóla og
kenndu ensku og fræddu nemendur um
ljónin. Eftir dvölina í Zambíu í sumar er
Ingunn heilluð af Afríku og strax farin
að leggja drög að næstu ferð.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Ingunn Erla Kristinsdóttir með einu ljónanna í Livingstone í Zambíu. Í gönguferðunum var hún alltaf með prik því ljónin geta
bitið. Geri þau sig líkleg til að bíta er nóg að reisa prikið upp því þau óttast hæðina.
Fjöldi villtra
ljóna í Afríku
Árið 1975
200.000
Árið 2012
32.000
Auk þess að gæta ljóna fræddu sjálfboðalið-
arnir grunnskólanemendur um ljónin og
kenndu ensku.
WWW.LEIKHUSID.IS
rIff heImILDarmynD eftIr Þóru tómasDóttur
Mynd um sjálfsefa í skapandi umhverfi
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík,
RIFF, hefst fimmtudaginn 25. september og
stendur yfir til 5. október. Sýningar fara fram
m.a í Háskólabíói, Tjarnarbíói, Bíó Paradís
og í Norræna húsinu. Alls munu þrettán
kvikmyndagerðarmenn keppa í glæsilegum
stuttmyndaflokki RIFF í ár. Meðal leikstjóra
er Þóra Tómasdóttir fjölmiðlakona, sem
kannar sjálfsefann í heimildarmynd sinni Ef.
Mynd um hvernig sjálfsefinn kemur fram í
skapandi vinnuferli mismunandi listamanna.
„Mig langaði að gera heimildarmynd sem
er unnin út frá ákveðnum tilfinningum í stað
atburðarásar sem allir þekkja. Sjálfsefinn er
eitthvað sem allir glíma við og ég er að velta
upp spurningum um þá tilfinningu. Það eru
mjög margir sem finna sterkt fyrir sjálfs-
trausti í því sem þeir fást við, en um leið fyrir
miklum sjálfsefa, og það er mjög áhugavert,“
segir Þóra.
„Ég hef sjálf fundið fyrir því í mínu starfi
að geta aldrei verið ánægð með mig og það
sem ég er að gera og þess í stað rifið mig
niður í harðri sjálfsgagnrýni og neikvæðni.
Það er eflaust rétt að maður eigi ekki að
taka of mikið mark á þessu og hætta að kvelja
sig með sjálfsgagnrýni, en mér finnst líka
nauðsynlegt að kryfja þetta.“
Í myndinni ræðir Þóra við 5 þekkta ein-
staklinga sem allir hafa náð langt á sínu sviði,
en hafa allir það sameiginlegt að glíma við
einhverskonar sjálfsefa. Viðmælendur Þóru
eru Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður,
Auður Jónsdóttir og Steinunn Sigurðardóttir
rithöfundar, Víkingur Heiðar Ólafsson píanó-
leikari og Jón Gnarr, fyrrverandi borgar-
stjóri.
„Jón hefur einstakt lag á því að sýna á sér
margar hliðar og er opinn til umræðu um
þessa hluti. Hann er í rauninni eini viðmæl-
andinn í myndinni sem hefur tamið sér að
tala um þetta opinberlega,“ segir Þóra.
„Aðrir viðmælendur hafa ólíka nálgun og
nota sjálfsefann með ólíkum hætti. Sumir til
góðs og eflingar, á meðan aðrir hafi glímt við
lamandi efasemdir.“
Allar upplýsingar um myndina eru á slóð-
inni www.facebook.com/efheimildarmynd.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Egill Sæ-
björnsson
mynd-
listamaður
er einn
viðmælanda
Þóru.
Sketsar aftur
á dagskrá
Heyrst hefur að Rás 2 muni
í vetur taka upp þann sið að
vera með leikna útvarps-
sketsa eins og hefur tíðkast
reglulega í gegnum árin. Hér
áður fyrr mátti heyra sketsa
eins og Smásálina, Bibbu
á Brávallagötunni og Ekki
fréttir svo einhverjir séu
nefndir. Nú á að taka upp
þennan sið og í vetur mega
hlustendur eiga von á því að
heyra sketsa frá grínurum
eins og Steinda, Dóra DNA,
Önnu Svövu og fleiri.
George Col-
ligan í Hörpu
Djasstónleikar verða
haldnir á sunnudagskvöld
í Kaldalónssalnum í Hörpu.
Fram kemur bandaríski
píanistinn George Colligan
ásamt þeim Þorgrími Jóns-
syni bassaleikara og Scott
McLemore trommuleikara.
Colligan er djassunnendum
vel kunnugur fyrir leik
sinn með Jack DeJohnette,
Cassandra Wilson, Don
Byron, auk annarra og
hefur hann leikið inn á
yfir 100 hljómplötur. Hann
hefur hljóðritað 24 diska
undir eigin nafni þar sem
djúpstæðar tónsmíðar og
framúrskarandi tækni hans
fá að njóta sín. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20.
Margrét til
Kormáks og
Skjaldar
Lífskúnstnerinn og sirkus-
mærin Margrét Erla Maack
biðlaði til vina sinna á Fa-
cebook fyrir skömmu að nú
væri hún í atvinnuleit. Sirkuss-
umrinu er lokið og magadans-
mærin var atvinnulaus. Það
ástand stóð þó ekki lengi því í
næstu viku hefur Margrét störf
í Herrafataverzlun Kormáks og
Skjaldar á Laugavegi. Hún mun
því aðstoða herramenn um val
á klæðnaði frá toppi til táar.
74 dægurmál Helgin 5.-7. september 2014