Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.09.2014, Síða 76

Fréttatíminn - 05.09.2014, Síða 76
HELGARBLAÐ Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is Hafsteinn Gunnar siGurðsson  Bakhliðin Hvatvís hjóla- brettasnillingur Aldur: 35 ára. Maki: Valgerður Rúnarsdóttir, dans- ari og danshöfundur. Börn: 34 vikna stúlka í maga konunnar minnar. Menntun: Kvikmyndaleikstjóri. Starf: Kvikmyndaleikstjóri. Fyrri störf: Engin. Áhugamál: Kvikmyndagerð. Stjörnumerki: Vog. Stjörnuspá: Láttu þér í léttu rúmi liggja þótt einhverjir séu að hvíslast á um þín mál. Framkvæmdafólkið finnur ekki tíma til að gera hlutina – það stelur. Haddi Gunni er mjög duglegur maður, hvatvís og fljótur að hugsa,“ segir Sindri Páll Kjartansson, vinur og framleiðandi myndarinnar París norðursins. „Hann er ofur skipu- lagður einstaklingur sem er gott, en getur líka verið slæmt. Hann á leyndan hæfileika sem er sá að hann er flinkur á hjólabretti. Hann fór meira að segja einu sinni niður Kambana á bretti. Hann er góður vinur.“ Í vikunni var önnur kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar í fullri lengd, París norðursins forsýnd. Áður hafði hann leik- stýrt kvikmyndinni Á annan veg, sem var svo endurgerð fyrir bandarískan markað undir nafninu Prince Avalanche. Áhorf- endur á forsýningunni kepptust við að lofa hana í hástert og greinilegt að hún náði til allra í salnum. Með aðalhlutverkin í myndinni fara þau Nanna Kristín Magn- úsdóttir, Helgi Björnsson og Björn Thors. Hrósið... ..fær Stjarnan fyrir að sigra Selfoss í úrslitaleik bikarkeppni kvenna í knatt- spyrnu um síðustu helgi. Stjarnan vann um leið sinn fjórða stóra titil á jafn mörgum árum. Flottir plötuspilarar Laugavegur 45 Sími: 519 66 99 Vefverslun: www.myconceptstore.is Verð 59.900,-

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.