Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2006, Síða 63

Læknablaðið - 15.01.2006, Síða 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐ 183 Gervilíffæri og ígræði Prosthesis Frá Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins barst verkefni. í firnalöngum evrópskum útboðslista, þar sem meðal annars var tilgreindur ýmis konar lækningabúnaður, kom á nokkrum stöðum fyrir heitið prosthesis. Lagt hafði verið til að þar yrði notað íslenska heitið ígræði. Undirritaður fékk sendan hluta listans og var beðinn um álit. Við nána skoðun kom í ljós að hugtökin implant og prosthesis voru ekki notuð og aðgreind eins og vera ætti. Gervilíffæri Iðorðasafn lækna notar íslenska heitið gervilíffaeri um prosthesis. Upprunalega heitið er komið úr grísku, myndað úr forskeytinu pros-, sem merkir nálœgt, í áttina, að e-u, og sögninni tithenai, sem merkir að setja, bœta við. Læknisfræðiorðabók Dorlands lýsir prosthesis þannig að um sé að ræða tilbúinn hlut í stað líkamshluta sem vantar, svo sem handlegg, fótlegg, auga eða tönn, ýmist til að bœta starfsemi eða útlit. Aðrar heimildir gefa einnig til kynna að prosthesis sé langoftast notað um heila líkamshluta eða líffæri og að engu skipti hvort hluturinn sé áfestur eða ígræddur. Dæmi um slík gervilíffæri og -líkamshluta eru, gerviauga, gervi- brjóst, gervifótur, gervihjarta, gervihné, gerviliður, gerviloka og gervimjöðm. ígræði Iðorðasafn lækna notar íslenska heitið ígræði í stað enska nafnorðsins implant. Það er komið úr latínu, myndað af forskeytinu im-, sem merkir í, inn í, og nafnorðinu planta, sem táknar grœn grein eða grœðlingur. Læknisfræðiorðabók Dorlands lýsir merkingunni þannig að implant sé tilbúinn hlutur eða efni, sem er grœtt eða sett inn í líkamann sem gervilíffœri eða gervilíkamshluti eða til meðferðar, greiningar eða rannsóknar. Aðrar heimildir leggja ýmist áherslu á að hluturinn sé tryggilega festur og settur djúpt í líkamann eða honum varanlega komið fyrir. Nokkur tilgreind dæmi eru breast implant (brjóstaígræði), cochlear implant (kuð- ungsígræði), intraocular implant (augnígræði), penile implant (reðurígræði) og testicular implant (eistaígræði). Aðgreining Undirritaður lagði til að þessum hugtökum yrði haldið aðgreindum. Igræði er eitthvað sem komið er fyrir í líkamanum (grætt í) og getur verið búnað- ur, tæki eða gervilíffæri. Prosthesis er hins vegar gervilíffæri eða gervilíkamshluti og getur verið áfestur eða ígræddur. Honeycomb lung Sigríður Ólína Haraldsdóttir, lungnalæknir, sendi tölvupóst og sagðist vera að leita að íslensku orði til að þýða enska orðið honeycomb í samsetning- unni honeycomb lung. Undirritaður benti á að Iðorðasafn lækna geymdi heitið býkúpulungu, en að það heiti hefði sennilega ekki sömu myndrænu tilvísun fyrir íslendinga og það enska hefði fyrir innfædda í mörgum öðrum löndum. Sigríður Ólína svaraði með því að hún hefði oft notað samlík- ingu við fiskinet til að lýsa þessu ástandi, þar sem fiskinet væru Islendingum líklega hugleiknari en býflugnabú. Býkúpa Ensk-íslensk orðabók Arnar og Örlygs birtir ágæta lýsingu á honeycomb: I. vaxkaka með sexstrendum hólfum, búin til af hunangsflugum undir egg þeirra og hunang. 2. hvað eina sem líkist þessu að gerð. Læknisfræðiorðabók Dorlands lýsir honeycomb lung þannig: útlit á lungna röntgenmynd, sem ein- kennist af geislaglœrum útvíkkunum í lungnavef svo sem við lungnatrefjun af óþekktum uppruna; birtist einnig sem fjölmargar litlar blöðrur eða holrými. Læknisfræðiorðabók Stedmans bætir því við að útlitslýsingin geti einnig átt við um þær breytingar sem greinast við skoðun á lungnavef með berum augum eftir skurðaðgerð eða krufn- ingu. Ekki kemur fram að holrýmin í lungunum séu reglulega sexstrend eins og hólfin í býkúpunni, miklu fremur að þau séu óreglulega hringlótt. Því má gera ráð fyrir að líkingin við býkúpuna byggist fyrst og fremst á fjölda holrýmanna og þunnum, vel afmörkuðum veggjum þeirra. Netlunga? Gaman væri að geta fundið íslenskt heiti sem hefur jafn dramatíska, myndræna tilvísun og hið enska heiti, honeycomb lung. Lýst er eftir hugmyndum og tillögum frá þeim sem áhuga hafa. Fyrstu inn- legg í þann hugmyndabanka eru (í stafrófsröð) eftirfarandi: froðulunga, gatasigtislunga, loftbólu- lunga, netlunga, sápukúlulunga. Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landspitali. is Jóhann Heiðar er læknir á Landspítala Hringbraut. Læknablaðið 2006/92 63
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.