Læknablaðið - 15.03.2009, Page 4
EFNISYFIRLIT
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær gerðir handrita
til ritstjórnar Læknablaðsins,
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi.
Annað án nafna höfunda, stofnana
og án þakka sé um þær að ræða.
Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis
að allir höfundar séu samþykkir
lokaformi greinar og þeir afsali sér
birtingarrétti til blaðsins.
Handriti skal skilað með tvöföldu
línubili á A-4 blöðum. Hver hluti
skal byrja á nýrri blaðsíðu í eftirtal-
inni röð:
• Titilsíða: höfundar, stofnanir,
lykilorð á ensku og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og myndir skulu vera bæði
á ensku og íslensku.
Tölvuunnar myndir og gröf komi
á rafrænu formi ásamt útprenti.
Tölvugögn (data) að baki gröfum
fylgi með, ekki er hægt að nýta
myndir úr PowerPoint eða af net-
inu.
Eftir lokafrágang berist allar greinar
á tölvutæku formi með útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang fræði-
legra greina:
www.laeknabladid.is/fragangur-
greina
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. hvers mánaðar nema
annað sé tekið fram.
RITSTJÓRNARGREINAR
Ólafur Ó. Guðmundsson
Geðheilsa og fjármálakreppa
175
Efnahagsþrengingar framkalla margskonar tilfinningavið-
brögð, svo sem sinnuleysi, þunglyndi, reiði og ótta, sem ýta
undir árekstra foreldra sín á milli og við börn sín.
Þórgunnur Ársælsdóttir
Lækna-óheilsa
177
Rannsóknir sýna að eitt af því sem hefur áhrif á okkar eigin
hamingju er að gleðja aðra. Læknar eru svo heppnir að vinna
þeirra felst einmitt í því að verða öðrum að liði.
FRÆÐIGREINAR
Eiríkur Líndal, Jón G. Stefánsson
Tíðni persónuleikaraskana á Stór-Reykjavíkursvæðinu
Tíðnitölur í rannsókninni eru sambærilegar við þær sem fram hafa komið hjá nágrannaþjóð-
unum um fjölda þeirra sem búast má við að séu með persónuleikaraskanir í hverju þjóðfélagi.
Fyrsta könnun sem gerð hefur verið svo vitað sé um algengi slíkra raskana meðal almennings á
Islandi.
Helga Hansdóttir, Jón Eyjólfur Jónsson
Verksvið læknis á hjúkrunarheimili
Lýst er hvað felst í góðri læknisþjónustu á hjúkrunarheimilum að mati höfunda sem byggja
skoðun sína á rannsóknum, eigin reynslu og lagalegum forsendum. Mælt er með notkun RAI-
mælitækisins sem grundvelli eftirlits með heilsu, færni og forvörnum.
Ingibjörg Gunnarsdóttir, Annette Due, Leila Karhunen, Marika Lyly
Geta heilsufullyrðingar á matvælaumbúðum byggt á
vísindalega staðreyndum grunni? Yfirlit um seddu og
þyngdarstjórnun
Tilgangur greinarinnar er að gefa yfirlit um stjórn orkujafnvægis og hugsanlegan áhrifamátt eða
tengsl einstakra næringarefna við þyngdarstjórnun og metið hvort fullyrðingar um innihald á
matvælaumbúðum séu réttmætar og byggi á vísindalegum grunni.
Róbert Pálmason, Hlíf Steingrímsdóttir 203
Tilfelli mánaðarins
204
172 LÆKNAblaðið 2009/95
Samnorrænt sérfræðinám lækna í líknarmeðferð - auglýsing