Læknablaðið - 15.03.2009, Síða 30
FRÆÐIGREINAR
Y F I R L I T
og meira magns er neytt.23 Skammtíma rann-
sóknir sýna að fæða sem ekki er orkuþétt eykur
seddu, minnkar svengdartilfinningu og minnkar
orkuinntöku.24 Niðurstöður langtímarannsókna
benda til þess að fæða sem ekki er orkuþétt hvetji
til þyngdartaps25 og öfugt.26 Hvað varðar áhrif
orkugefandi næringarefna á mettunartilfinningu
benda rannsóknir til að prótein séu meira seðjandi
en fita og kolvetni og að kolvetni seðji meira en
fita.27'31 Þó hefur ekki tekist að sýna fram á mun á
seðjandi áhrifum orkugefandi næringarefnanna í
öllum rannsóknum.32
Áhrif próteina á seddu og notkun
próteina við þyngdartap
Sýnt hefur verið fram á að próteinríkur matur
eykur seddu samanborið við mat sem er rýr af
próteinum.33 Mögulegar skýringar gætu falist í
aukningu á seytun glúkagon-like peptide-1 (GLP-
l)34-37 Qg CCK.35-38,39 Einnig hefur verið sýnt fram á
lækkun á styrk ghrelins eftir próteinríkar máltíð-
ir35 og bent hefur verið á að seðjandi áhrif próteina
gætu verið tilkomin vegna langvarandi bælingar á
ghrelinstyrk.40 Önnur skýring gæti falist í auknum
styrk amínósýra á borð við tryptófan og tyrósín
sem eru forverar serotóníns og dópamíns sem taka
þátt í stjórnun matarlystar.37,41 Nýlegar rannsóknir
benda einnig til þess að fæði sem er próteinríkt (og
þar af leiðandi hlutfallslega kolvetnarýrt þar sem
fituhlutfalli er oftast haldið stöðugu í kringum
30% af heildarorku) sé áhrifaríkt við þyngdartap.42
Hér er aðallega um að ræða rannsóknir þar sem
fínunnum kolvetnum hefur verið skipt út fyrir
prótein og gæti hluti af skýringunni falist í minnk-
uðum hlut þeirra. Auk áhrifa á matarlyst eykur
próteininntaka hitamyndandi áhrif fæðunnar
meira en fita og kolvetni og getur á þann hátt bæði
stuðlað að aukinni orkunotkun og minnkaðri
orkuinntöku. Þörf er á frekari rannsóknum á þessu
sviði, meðal annars til að rannsaka langtímaáhrif
próteina á þyngdartap, og því hvort þyngdartap-
inu sé viðhaldið.43
Listin að velja réttu kolvetnin
Hæging á magatæmingu og frásogi næringarefna
eru hvort tveggja mikilvægir þættir í að viðhalda
seddu44 og hefur val kolvetna þar mikið að segja.
Heilkornaafurðir, ávextir og grænmeti eru dæmi
um kolvetnagjafa sem eru um leið ríkir af fæðu-
trefjum. Margar rannsóknir sýna að trefjar hafa
áhrif á seddu og leiða til minni orkuinntöku.11,45
Mismunandi er hvaða líffræðilegu ferlar liggja þar
að baki og fer það eftir því hvaða gerð fæðutrefja
á í hlut.45 Áhrifin geta verið tengd tyggingu (tekur
lengri tíma), auknu magarúmmáli eða seink-
aðri magatæmingu.46,47 Gerð var úttekt árið 2001
á niðurstöðum 22 rannsókna á áhrifum trefja á
þyngdartap (án þess að orkuskerðing væri áætl-
uð). Eftir að hafa tekið niðurstöður allra rannsókn-
anna saman áætluðu höfundar að um 14 g viðbót
við daglega inntöku fæðutrefja myndi leiða til
10% minnkunar á orkuinntöku og 1,9 kg þyngd-
artaps á 3,8 mánaða tímabili.48 Þyngdartap var
meira meðal þeirra sem voru of þungir en þeirra
sem voru í kjörþyngd. Trefjaneysla Islendinga er
almennt mjög lág eða tæplega 17 grömm á dag
að meðaltali meðal fullorðinna49 en ráðlögð trefja-
neysla er 25-35 grömm á dag.50
Hugtakið sykurstuðull (glycemic index GI)
hefur verið notað til að lýsa áhrifum kolvetna á
blóðsykur. Sykurstuðull gefur til kynna aukningu
á glúkósa í blóði eftir neyslu kolvetna (50 g af melt-
anlegum kolvetnum), í tvær til þrjár klukkustund-
ir eftir máltíð. Borið er saman flatarmál undir
glúkósakúrfu tilraunamáltíðar og viðmiðunar-
máltíðar sem oftast nær er glúkósi eða hvítt brauð.
Flokka má vörur eftir því hvort þær eru með háan
sykurstuðul (hröð melting/frásog) eða lágan syk-
urstuðul (hæg melting/frásog). Ýmsir vísinda-
menn hafa bent á að neysla matvæla með lágan
sykurstuðul auðveldi þyngdartap.14,51 Hins vegar
hefur enginn munur sést í öðrum rannsóknum.52,53
Teknar voru saman niðurstöður 31 rannsóknar á
tengslum sykurstuðuls við mettunartilfinningu.52
í um helmingi rannsóknanna tókst að sýna fram
á aukna seddu eða minnkaða svengdartilfinningu
eftir neyslu á fæðu með lágan sykurstuðul sam-
anborið við fæðu með háan sykurstuðul. Einnig
var sýnt fram á minnkaða orkuinntöku í næstu
máltíð á eftir tilraunamáltíðinni meðal þátttak-
enda sem neyttu fæðis með lágan sykurstuðul.
Tvær rannsóknir bentu hins vegar til aukinnar
seddu eftir neyslu á fæðu með háum sykurstuðli.
Ástæða misvísandi niðurstaðna gæti verið sú að
aðferðin gerir ekki greinarmun á háum toppum
í glúkósastyrk sem lækkar hratt og glúkósastyrk
sem lýst er með lágri flatri kúrfu. Ekki er hægt
að draga óyggjandi ályktanir um mikilvægi syk-
urstuðuls er kemur að seddu og þyngdarstjómun,
en vísindalegur grunnur um mikilvægi fæðutrefja
til aukinnar seddu og fyrir þyngdarstjómun er
mun sterkari.
Aðrir þættir sem hafa áhrif á seddu
og þyngdarstjórnun
Eðlisfræðilegir eiginleikar fæðu hafa einnig áhrif
á seddu. Uppbygging matvæla hefur bæði áhrif
á hversu hratt fæðan yfirgefur magann og hversu
hratt næringarefni frásogast.15 Hraði magatæm-
ingar tengist tilfinningu einstaklings á seddu,54
98 LÆKNAblaðið 2009/95