Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2009, Qupperneq 45

Læknablaðið - 15.03.2009, Qupperneq 45
UMRÆÐUR O G FRETTIR V I Ð T A L prófessorsembætti við HÍ. „Það voru nú ekki margar konur sem luku læknanámi fyrir miðja 20. öldina, voru eitthvað á annan tug kvenna á undan mér og ég var eina konan í útskriftarhópnum vorið 1956. Lengi framan af vorum við að tínast ein og ein kona inn í læknastéttina. Ég var alveg hissa þegar stelpurnar voru orðnar fleiri en strákamir í læknadeildinni síðustu misserin sem ég kenndi." Hún segir að það hafi alls ekki háð sér í námi eða starfi að vera kona. „Ég hef aldrei fundið að það skipti máli. Við vorum tvö sem sóttum um prófessorsstöðuna í sýklafræðinni og ég átti alls ekkert von á því að fá stöðuna. En ég hef aldrei fundið að það truflaði nokkurn skapaðan hlut að vera kvenkyns. Ég hef átt mína óvini en það hefur þá verið af öðrum ástæðum. Mér fannst bara gaman að kenna þó ég hafi reyndar farið í lækn- isfræðina í og með til að lenda ekki í kennslu. Það er gaman að kenna áhugasömu fólki og ég lenti sem betur fer aldrei í því að stúdentamir hættu að mæta hjá mér. Prófessorsstaðan sem ég sótti um var ný og það lenti á mér að byggja hana upp." Margrét kom á fót rannsóknastofu háskólans í veirufræði við Landspítalann 1974 í samstarfi við Ríkisspítala og stjórnaði henni til 1994. „Húsnæðið sem við fengum 1974 var gamla þvottahús Landspítalans og átti að vera bráðabirgðahúsnæði. Þá voru uppi stórar áætlanir um nýbyggingar á Landspítalalóðinni sem kæmust í gagnið á næstu ámm. Þvottahúsið var ágætt húsnæði, nógu stórt fyrstu árin. Starfsemin óx og dafnaði en það var hætt við allar nýbyggingar ransóknardeildar á Landspítalalóðinni. Ég óttast að það fari eins fyrir nýja spítalanum sem nú er verið að tala um að byggja. Rannsóknarstofan var í þvottahúsinu í 14 ár til ársins 1988. Árið 1988 fórum við hingað í Ármúla la. Á Landspítalaárunum urðu gríðarleg- ar framfarir í allri rannsóknatækni og aðferðir til greiningar veirusjúkdóma urðu bæði fljótlegri og öruggari. Við gerðum allt sem við gátum til að taka upp nýjar og betri aðferðir til sjúkdómsgreininga á þessum árum." I hátíðarræðu sinni við setningu Læknadaga 1 janúar hvatti Margrét lækna til að segja skoðun sína á stefnumótun stjómvalda í heilbrigðismálum og talaði um hina nýju stétt rekstrarstjórnenda sem hefðu enga þekkingu á læknisfræði en teldu sig vita allt um það hvernig verja ætti peningum til heilbrigðismála. „Mér finnst bara liggja í augum uppi að læknar, sem þekkja sjúkdóma og meðhöndla sjúklinga, viti betur en fólk sem hefur enga þekkingu á sjúkdóm- um, hvað kemur sjúklingum best. Læknarnir sem eru öllum stundum inni á sjúkradeildum hljóta að vita betur hvað þarf til heldur en millistjómendur sem sitja á skrifstofum annars staðar fjarri starfinu sjálfu. Það er ekki sérstaklega erfitt fyrir starfandi lækni að segja nokkuð nákvæmlega til um efn- iskostnað og vinnulaun við þau verk sem hann vinnur sjálfur eða eru í hans umsjá. í minni tíð á Landspítala varð til fyrirbæri sem við kölluðum „sviðahausana" og var nýr milliliður milli okkar deildarstjóranna og framkvæmdastjórnar. Svona fyrirbæri er hægt að spara, sjúklingum að skað- lausu, og kannski fleiri milliliði í yfirbyggingunni sem ofvöxtur hljóp í fyrir mörgum árum." Þjóðfélag samhjálpar og samvinnu Margrét hefur margoft varað við því að með auknu frelsi til innflutnings á matvælum úr dýraríkinu aukist líkurnar á því veiru- eða bakteríusýkingar berist til landsins. „Hugsaðu þér afleiðingarnar af því ef hingað berast fjölónæmir sýklar sem við höfum ekki þurft að fást við hingað til. Það er ómetanlegt að hafa hreinar og ómengaðar kjötvör- ur og þurfa ekki að hafa áhyggjur af smithættu í hvert sinn sem keypt er í matinn. Það er mjög erfitt að hafa eftirlit með kjötvörum sem fluttar eru til landsins því sýklar geta fjölgað sér frá því kjötið er stimplað erlendis og þar til það kemur hingað í verslanir. í mínum huga er enginn vafi að slíkt myndi gerast ef innflutningur verður meiri og eft- irlitið minna en verið hefur hingað til." Þrátt fyrir virðulegan aldur er engan bilbug á Margréti að finna; hún starfar að rannsóknarefn- um sfnum sleitulaust og hefur sterkar skoðanir á þróun mála í þjóðfélaginu. Hún segist hafa haft of lítinn tíma til þátttöku í stjórnmálum, veirurnar hafi átt hug hennar allan en þó hefur enginn velkst í vafa um hvar hún er staðsett í pólitíkinni. Hún hristir höfuðið þegar efnahagsástandið ber á góma. „Þetta er ekki almenningi að kenna. Svo mikið er víst. Samt er almenningi ætlað að borga sukkið og óstjórnina, sem þjóðin bjó við allt of lengi. Ég vil sjá hér þjóðfélag samhjálpar, samvinnu og alvöru sameignar á verðmætum þjóðarinnar. Ég vil einn- ig að þjóðin umgangist sitt fagra land með þeirri virðingu sem það á skilið." LÆKNAblaðið 2009/95 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.