Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2009, Síða 55

Læknablaðið - 15.03.2009, Síða 55
UMRÆÐUR 0 G LÆKNISLIST OG FAG F R É T T I R M E N N S K A Þunglyndi og sjálfsvíg meðal lækna Halldóra Ólafsdóttir geðlæknir halldola@landspitali.is Erindi flutt á Læknadögum 2009 Læknar vita betur en flestir aðrir hvemig bjarga má mannslífum en þvi miður einnig hvemig taka má eigið líf. Árið 1858 birtist í bresku fræðiriti grein þar sem fjallað var í fyrsta sinn um að læknar væm í meiri áhættu en aðrir varðandi sjálfs- víg.1 Seinni tíma rannsóknir hafa staðfest þetta með nokkuð óyggjandi hætti.2 Komið hafa fram ákveðnar vísbendingar um konur í læknastétt séu í sérstökum áhættuhópi og sjálfsvígstíðni þeirra sé tvöfalt meiri en annarra kvenna. í Bandaríkjunum er talið að sjálfsvíg séu 3% allra dánarmeina karla í læknastétt og 6,5% dánarmeina kvenna.3 Heildargreining, sem tók til 24 rannsókna á körl- um og 13 á konum, sýndi að algengi sjálfsvíga meðal karla og kvenna í læknastétt var umtalsvert meira en í almennu þýði og jafnvel enn meir, ef læknar vom bornir saman við annað háskóla- menntað fólk (mynd a). Læknar eru almennt fremur hraustir og huga vel að heilsunni og sjálfsvíg skipta því mun meira máli. Dánartíðni lækna vegna kransæðasjúkdóma og krabbameina er til dæmis lægri en annarra starfsstétta. í íslenskri rannsókn frá 1998 voru borin saman dánarmein karla í lækna- og lög- fræðingastéttd Hún tók til þeirra lækna sem lokið höfðu læknaprófi fyrir 1993 og bjuggu á íslandi árið 1951 eða síðar. Dánartíðni lækna reyndist lægri en lögfræðinga ef litið var til allra algengra dánarmeina. Aðeins sjálfsvíg, sem framin voru með lyfjum eða fljótandi efnum, voru tíðari meðal lækna.Norsk rannsókn sem tók til dán- armeina allra norskra lækna sem létust á árunum 1960-2000 sýndi umtalsvert aukna sjálfsvígstíðni meðal lækna af báðum kynjum miðað við aðrar starfsstéttir. Einnig var aukin tíðni sjálfsvíga hjá hjúkrunarfræðingum (konum) og lögreglumönn- um en ekki eins mikil og hjá læknum. Tíðni sjálfs- víga jókst með aldri karlanna og nokkur aukning virðist hafa orðið á tíðni sjálfsvíga hjá norskum læknum á seinni árum.5 Dönsk rannsókn sýndi hærri tíðni sjálfsvíga hjá læknum borið saman við 20 aðrar starfsstéttir, þar á meðal voru hjúkrunar- fræðingar, kennarar, iðnverkafólk, stjórnendur fyrirtækja og arkitektar.6 Hvers vegna eru læknar líklegri en aðrir til að farga sér? Flestir læknar vinna lengur en gengur og gerist og eru samviskusamir og metnaðarfullir í ábyrgðarmiklu starfi. Samkeppnin um stöður og virðingu, einkum á stærri stofnunum, er óvægin og bitur. Mörgum reynist erfitt að finna hið gullna jafnvægi klínískrar vinnu og vísinda- og fræði- starfa. Þeir læknar sem sinna sjúklingum af alúð og gefa þeim góðan tíma eru síður líklegir til að fá framgang í starfi. Samskipti við sjúklinga eru tímafrek og erfið og margir sjúklingar fylla lækn- inn vanmætti. Mistök í starfi eru sjaldan rædd meðal lækna en þeim mun meira á vettvangi fjölmiðla. Lítið hefur verið fjallað um sálræn áhrif mistaka í starfi á lækna en að sjálfsögðu taka marg- ir slíkt afar nærri sér. Aðrir þættir utan vinnu geta ýtt undir álag og streitu, til dæmis er hjónabands- vandi er algengur og skilnaðartíðni þeirra nokkru hærri (10-20%) en annarra.7 Þunglyndi er veigamesti áhættuþáttur sjálfsvíga. Langstærstur hluti (85-90%) af þeim sem taka eigið líf hafa átt við langvinna geðröskun að stríða; þunglyndi, kvíða og/eða áfengis- eða vímuefnavanda. Þunglyndis- og kvíðaeinkenni eru algengari meðal lækna en annarra, ekki síst kvenna í læknastétt. Þessi aukning kemur fram á fyrstu árunum í læknanáminu en virðist ekki vera til staðar hjá nemendum áður en þeir hefja námið.8 Hvaða þættir sem tengjast persónuleika nemenda og læknanámi hafa forspárgildi varðandi þunglyndi? Konur virðast þola álag og námstengda streitu verr, einkum fyrstu árin, og þær lýsa oftar en karlar togstreitu milli náms og annarra hlutverka. Gífurlega metnaðarfullir læknanemar eða „vinnualkarnir" virðast í áhættuhóp fyrir þunglyndi en einnig sá hópur sem sýnir uppgjöf og áhugaleysi gagnvart námi og læknishlutverki. Félagsleg einangrun er sjálfstæður áhættuþáttur. Vemdandi þættir eru heilbrigður metnaður og jákvætt lífsviðhorf. Þeir sem hafa minni metnað líður vel í námi og starfi ef þeir em ánægðir með lífið að öðru leyti, enda þurfa ekki allir að klífa tindinn til að búa við góða líðan.9 í norskri rannsókn á læknanemum og unglæknum kom í ljós að bæði kvíðnir og áhyggjufullir nemar og alltof samviskusamir LÆKNAblaðið 2009/95 223

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.