Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2009, Qupperneq 57

Læknablaðið - 15.03.2009, Qupperneq 57
UMRÆÐUR O G LÆKNISLIST OG FAG F R É T T I R M E N N S K A höfðu minna þol gegn álagi og streitu en aðrir. Þegar svo feimni bættist við þessa eiginleika jókst vandinn en mannblendið fólk þoldi streituna betur. Þeir nemar sem voru fullir af sjálfstrausti, höfðu gaman af spennu, en voru ekki sérlega „móralskir" eða þrautseigir þoldu álagið í náminu mjög vel.10 Ef til vill má spyrja; er því fólki sem við vildum hafa í læknastéttinni sérlega hætt við þunglyndi? Bandarísk rannsókn á miðaldra læknum benti til aukinnar hættu á þunglyndi hjá báðum kynjum miðað við almennt þýði (mynd b). Þá kom í ljós að þunglyndir læknar leituðu seint eða ekki eftir aðstoð. Þeir óttuðust trúnaðarbrest og höfðu sjálfir fordóma gagnvart geðsjúkdómum. Einnig töldu þeir að geðmeðferð gæti skaðað orðspor þeirra og starfsheiður, jafnvel þannig að þeir misstu starfið eð jafnvel lækningaleyfið. Því dýpri sem geðlægðin var, þeim mun erfiðara reyndist lækninum að leita sér hjálpar.11 Það er vel þekkt að margir læknar reyna að meðhöndla sig sjálfir með geðlyfjum, áfengi eða vímuefnum. Þeir læknar sem koma til geðlækna eða sálfræðinga hafa löngum haft það orð á sér að vera erfiðir og óráðþægir sjúklingar. Geðlæknirinn er oft óöruggur í hlutverki sínu gagnvart kollegum og lætur lækninn komast upp með að stýra meðferðinni um of eða setur honum ekki hæfileg mörk. Afar erfitt getur reynst að fá lækna til að leggjast inn á geðdeild, jafnvel þótt líf þeirra liggi við og á það ekki síst við í litlum samfélögum eins og okkar. Geðlæknar eru of ragir við að svipta aðra lækna tímabundnu sjálfræði til að koma við nauðungarinnlögn og fá læknar því í raun ekki sambærilega eða jafn faglega meðferð og aðrir sjúklingar. Á langri starfsævi hefur mér þó fundist að þessir erfiðleikar séu mestir í upphafi meðferðar. Læknar eru góðir og þakklátir sjúklingar þegar til lengri tíma er litið, eins og reyndar flestir aðrir heilbrigðisstarfsmenn og njóta þekkingar sinnar til að takast á við veikindin með raunhæfum og árangursríkum hætti. Hvar geta íslenskir læknar og læknanemar leitað eftir aðstoð vegna þunglyndis og kvíða? íslensk heilbrigðisþjónusta er á marganhátt til fyrirmyndar og aðgengið gott. Hindranirnar til þess að fá viðeigandi aðstoð eru að mestu huglægar. Allir læknar ættu að hafa heimilislækni og eðlilegast að leita fyrst til hans og getur hann þá annað hvort séð um meðferðina sjálfur eða vísað áfram til geðlæknis eða sálfræðings. Algengar geðraskanir svara ágætlega fremur einfaldri en gagnreyndri meðferð, til dæmis með geðlægðarlyfjum og/eða viðtalsmeðferð svo sem hugrænni atferlismeðferð. í alvarlegri geðlægð, tvískautalyndisröskun eða þegar sjálfsvígshætta er til staðar ætti að leita til sérfræðings. Mér hefur sýnst að flestir læknar Sjálfsvíg meðal lækna (mynd a) Metaanalýsa; 24 rannsóknir á körlum og 13 á konum (1960-2003)* d' 1,41 (95% 01=1.21-1.65) v. almennt þýói # 2,27 (95% 01=1.90-2.73) Meiri munur ef læknar eru bornir saman við annað háskólamenntað fðlk** •Schernhammer ES og Golditz GA. Am J Psychiatry, 2004 ••lindeman S et al. Psychological Medicine, 1997 Rannsókn á læknum í Michigan (mynd b) Meðalaldur 50 ár. Starfsreynsla 19 ár Ævireynsla af þunglyndi: 35% ? (20%)* 19% tf’ (13%)* Þunglyndi sl. 12 mán. 11,6% ? (9%)* 11,2% cr (5%)* *Almennt þýði ••Schwenk, TL et al; J Clin Psychiatry, 2008 kjósi að leita á lækningastofur sérfræðinga fremur en á göngudeildir sjúkrahúsanna. Aðrir heilbrigðisstarfsmenn, til dæmis starfsmenn Landspítala virðast ekki setja það jafn mikið fyrir sig og læknar að nota göngudeildarþjónustu geðsviðs og bendir það til að enn sé stutt í fordóma innan stéttarinnar gagnvart geðsjúkdómum. Á Islandi eru fjórar almennar móttökugeðdeildir, þrjár á Landspítalanum en ein á Akureyri. Innlagnarástæður tengjast oftast bráðum vanda, svo sem sjálfsvígshættu eða geðhæð. Allmargir læknar hafa verið innlagðir á þessar deildir hér á landi, oftast með ágætum árangri. Læknar hafa nýtt sér endurhæfingardeild á geðsviði Reykjalundar en þar er í boði vönduð og heildstæð fjögurra vikna meðferð við þunglyndi, en því miður talsvert langur biðlisti. I örfáum tilvikum hefur komið til greina að senda lækna til annarra landa ef sýnt þykir að ekki sé hægt að veita meðferð hérlendis. Hljóðlát bylting hefur orðið í læknadeildum og á sjúkrahúsum á Vesturlöndum með fjölgun kvenna í læknastéttina en þær eru nú víðast hvar liðlega helmingur læknanema og yngri lækna. Flestar rannsóknir á geðheilsu kvenna í læknastétt og sjálfsvígum eru frá þeim tíma sem konur voru í miklum minnihluta í „karllægum" heimi sjúkrahúsanna. Frumkvöðlamir voru konur sem aðlöguðu sig hinum viðurteknu viðmiðum, ef til vill á kostnað eigin hagsmuna, urðu annaðhvort undirsátar karlanna í læknasamfélaginu eins og tíðkaðist í gömlu Sovétríkjunum eða „karlkonur", ofurkonurnar sem fórnuðu fjölskyldulífi og barneignum fyrir starf og frama. Líklegt má teljast að jafnara kynjahlutfall muni með tímanum breyta vinnuumhverfi og áherslum í námi. Á tæpum áratug hef ég misst tvo vini og sam- LÆKNAblaðið 2009/95 225
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.