Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2009, Page 60

Læknablaðið - 15.03.2009, Page 60
Læknastofur Höfum til leigu þjár læknastofur í Kringlunni. Staðsetning stofanna er á 3. hæð við hlið heimilislækna sem þar starfa í dag. Sameiginleg aðstaða yrði nýtt með þeim. Ýmsir möguleikar í boði varðandi útleigu. Vinsamlega hafið samband við Bryndísi Dagsdóttur, sími 440 2331 bryndis.dagsdottinSsjova.is GLÆSILEG AÐSTAÐA FYRIR LÆKNAMÓTTÖKU í þjónustumiðstöö Nesvalla í Reykjanesbæ er boðið upp á fyrirtaks aðstööu (viðtals- og skoðunarherbergi) fyrir sérfræðilækna til móttöku sjúklinga. Hægt er að leigja aðstööuna í einstakt skipti eða meö reglulegu millibili. Nesvellir eru staðsettir i hjarta Reykjanesbæjar og þar er starfrækt m.a: Sjúkraþjálfun og endurhæfing Félags- og tómstundastarf fyrir eldri borgara / Dagdvöl fyrir eldri borgara Öryggisibuðir fyrir eldri borgara / Hár- og snyrtistofa Veitingasala / Útibú fyrir lyfjaafgreiðslu Þjónustuborð fyrir timabókanir o.fl. Kynning á viðveru lækna yrði hluti af kynningardagskrá Nesvalla. Skoðaðu málið fyrir þína þjónustu í hratt vaxandi samfélagi Suðurnesja. Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 692 5567. Nesvellir - Njarðarvöllum 4 - www.nesvellir.is Aðalfundur Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar verður haldinn laugardaginn 21. mars 2009 kl. 11.00 í Hringsal Barnaspítala Hringsins, Landspítala Dagskrá Hefðbundin aðalfundarstörf gjaidkeri ieggur fram reikninga félagsins formaður flytur skýrslu stjórnar kosning stjórnar og endurskoðenda ákvörðun félagsgjalda önnur mál Fyrirlestur Örn Hrafnkelsson, sagnfræðingur íslensk lækningahandrit og prentaðir lækningatextar frá 1600-1800 Valin dæmi I handritadeild Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns eru varðveitt lækningahandrit frá 16., 17. og 18. öld. Þessi handrit eru með textum eftir l'slendinga og útlendinga og er hluti af hefð sem tíðkaðist hér á landi. Erlendis vartexti af þessum toga vanalega prentaður, en hér á landi var honum miðlað i handritum. Textarnir eru bæði af kyni alþýðulækninga og raunlækninga, og allflestir eiga það sammerkt að vera þýddir og staðfærðir fyrir islenskar aðstæður. Þessir lækningatextar voru „lifandi" og varðveittir i mörgum handritum. Þegar fram liðu stundir þá týndist höfundurinn, eða nokkrir höfundar urðu að einum, og þýðandinn varð að höfundi eða skrifara. I sumum tiffellum gerðist það að höfundur textans og hinn upprunalegi höfundur gleymdust. Má einnig líta á það sem dæmi um vinsældir eða not þessara texta að þeir hafa varðveist í mörgum uppskriftum, og að sami textinn er varðveittur í handritum allt frá 16. öld til loka þeirrar 18. í fyrirlestrinum verða rakin valin dæmi og reynt að varpa Ijósi á þessa þróun sem er um margt sérstök. Örn Hrafnkelsson er forstöðumaður handritadeildar Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns. Örn lauk MPA prófi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla íslands 2006 og MA-prófi í sagnfræði frá sama skóla 1998 Stjórnin Heimasíða Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar: www.icemed.is/saga/ 228 LÆKNAblaðið 2009/95

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.