Læknablaðið - 15.03.2009, Síða 61
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA
Sambönc/U(
Gl*'»‘on
Ingólfur V. Glslason
Ingólfur V. Glslason
Orsakir
Afleiöingar
Úrræói
í nánum samböndum
Orsakir
Afleiðingar
í nánum samböndum
IJl l.l'OÍ
iMsiifiiviir
Ingólfur V. Gíslason er höfundur nýútkominna bóka um ofbeldi.
Ofbeldi í nánum samböndum
Gunnar
Alexander
Ólafsson
Höfundur er sérfræðingur í
heilbrigðisráðuneytinu.
í aðgerðaáætlun fyrrverandi ríkisstjórnarinnar var
eftirfarandi ákvæði:
„Gefin verði út handbók með upplýsingum
fyrir fagstéttir er koma að málum er varða þol-
endur og gerendur heimilisofbeldis sem hefur það
markmið að veita þessum fagstéttum mikilvægar
upplýsingar um heimilisofbeldi."
Nefndin sem sá um eftirfylgni áætlunarinnar
hefur nú gefið út fimm rit til að uppfylla ákvæðið
og bera öll sama heiti: Ofbeldi í nánum samböndum.
Orsakir-afleiðingar-úrræði. Fjögur þeirra hafa undir-
titla sem vísa til þess að þeim er beint til ákveðinna
fagstétta: ljósmæðra, starfsfólks félagsþjónustunn-
ar, lögreglunnar og loks lækna, hjúknmarfræðinga
og sjúkraliða. Höfundur er Ingólfur V. Gíslason,
lektor í félagsfræði við Háskóla íslands.
Fyrsti kafli fjallar almennt um ofbeldi gegn
konum. Þar er rakið hvað það er í gerð samfélaga
og stöðu kvenna sem gerir að verkum að þær búa
við ofbeldi í nánum samböndum í ríkari mæli
en karlar. Fjallað er um karla sem búa við slíkt
ofbeldi og um megineinkenni líkamlegs, andlegs,
fjárhagslegs og kynferðislegs ofbeldis og hvernig
ákveðin einkenni kvenna geta leitt til grunsemda
um að þær búi við ofbeldi.
I öðrum kafla er sérstaklega vikið að stöðunni
á Islandi á grundvelli nokkurra kannana en þó
sérstaklega hinnar ítarlegu könnunar sem fram-
kvæmd var á vegum ráðuneytis dómsmála árið
1996.
Þriðji kafli fjallar um einkenni kvenna sem búa
við ofbeldi og það samspil nokkurra þátta sem oft-
ast eru bakgrunnur ofbeldis.
í fjórða kafla er fjallað um börn á heimilum þar
sem ofbeldi er beitt. Jafnvel þótt þau sjálf séu ekki
beitt ofbeldi markar ástandið á heimilinu djúp
spor í tilveru barna.
I fimmta kafla er fjallað um einkenni karla sem
beita ofbeldi í nánum samböndum, hver bak-
grunnur þeirra sé og hvernig samspil ólíkra þátta
getur verið að baki ofbeldinu.
I sjötta kafla er svo fjallað um þau úrræði sem
til staðar eru á íslandi, aðstoð við þolendur og þá
gerendur sem vilja þiggja aðstoð til að hætta að
beita ofbeldi.
I sjöunda kafla greinist umfjöllunin á grundvelli
þess til hvaða fagstéttar orðunum er beint. Áhersla
er alltaf á að beita virkum aðferðum til þess að
finna sem flestar konur sem búa við það ástand
að einhver þeim nákominn beitir þær ofbeldi eða
hefur gert það. Kembileit er áhrifaríkasta leiðin og
rakin eru dæmi um hvernig slíku verði viðkomið
og hvaða spurningar eða leitaraðferðir komi til
greina. Þá er ýtarlega fjallað um einkenni sem eiga
að leiða til grunsemda. Loks er fjallað um mikil-
vægi þess að hver stofnun setji sér aðgerðaáætlun
um ofbeldi gegn konum þannig að starfsmönnum
sé ljóst hvernig eigi að leita að konum sem búa við
ofbeldi og hvað beri að gera ef slíkt kemur í ljós.
Bókunum er dreift í undirstofnanir ráðuneyta
dómsmála, félagsmála og heilbrigðismála en
einnig eru þær á heimasíðu félags- og trygginga-
málaráðuneytisins www.felagsmalaraduneyti.is/
utgefid-efni/nr/4152
LÆKNAblaðið 2009/95 229