Læknablaðið - 15.09.2009, Síða 3
Læknanemi vinnur til verð-
launa á norrænu vísindaþingi
í júní síðastliðnum var haldið í Reykjavík
27. vísindaþing Nordisk Urologisk Förening
(NUF) en þau eru haldin annað hvert ár.
Þingið sóttu rúmlega 400 manns, flestir
þvagfæraskurðlæknar frá hinum Norður-
löndunum.
A þinginu bar það til tíðinda að íslenskur
læknanemi vann til verðlauna fyrir vísinda-
rannsókn sína, en það var Helga Björk Páls-
dóttir fyrir rannsóknina Incidental detection of
renal cell carcinoma is an independent prognostic
marker - Results of a long term ivhole population
study. Rannsókn Helgu tekur til rúmlega 900
sjúklinga með nýrnafrumukrabbamein þar
sem aðaláhersla er lögð á forspárþætti lífshorfa.
Þetta er framhald af rannsóknarverkefni
hennar á þriðja ári við læknadeild HÍ. Helga
hefur unnið að rannsókninni samhliða námi
og í samvinnu við læknana Sverri Harðarson,
Vigdísi Pétursdóttur, Eirík Jónsson, Guðmund
V. Einarsson og Tómas Guðbjartsson.
Ljósmynd: Ingcr H. Bóasson/LSH
Helga vinnur nú að vísindagrein og er stefnt
á birtingu í erlendu vísindarit innan þvagfæra-
skurðlækninga.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Verk Kristins E. Hrafnssonar (f. 1960) eru mörgum kunn
enda víða að finna á opinberum vettvangi, meðal annars í
miðbae Reykjavíkur, við Borgarleikhúsið/Kringluna og við
Háskólann á Akureyri. Þau kalla
fram hugleiðingar um samband
fólks við eigið umhverfi, bæði
í tíma og rúmi. Vangaveltur
um eðli staða eða framvindu
tímans eru settar fram í nánu
samhengi við umhverfið,
nærliggjandi borgarlandslag
og byggingarlist. Á
mótum Austurstrætis og
Pósthússtrætis er verkið
Einn staður, einn tími og
annar... o.s.frv. frá árinu
2001 sem er eins og partur
úr grindverki og bekk ásamt
áletrun. Við Kringluna og
Borgarleikhúsið vann Kristinn
með arkitektastofunni Studio
Granda að mótun umhverfis
við suðurinngang auk þess að
útbúa læsta geymslu þar sem
varðveitt eru um ókomna tíð
sýnishorn af því sem búðirnar
í verslunarmiðstöðinni höfðu
til sölu þegar verkið var gert. Á
Akureyri er íslandsklukka sem
vísar á margan hátt til sögu þjóðarinnar. Hún var vígð árið
2000 og er ætlað að vera hringt árlega, einu slagi oftar
ár hvert. Grafíkverkið á forsíðu Læknablaðsins að þessu
sinni er hluti af hugmyndavinnu Kristins sem tengist stóru
útiverki fyrir torg. Það heitir Lægð og er frá árinu 2008.
Myndin sýnir abstrakt
form sem eru endurtekin
með hliðsjón af gullinsniði
og fæst þannig fram eins
konar rangsnúinn spírall.
Gullinsnið á rætur að rekja
til grískrar höggmyndalistar
hálfri öld fyrir Krist og er
byggt á ákveðnu hlutfalli
á milli tveggja misstórra
eininga. Enduróm
sögulegra heimilda má
gjarnan greina í verkum
Kristins, hann vísar í forna
þekkingu og nýja auk þess
að fá að láni textabrot
héðan og þaðan. Ef til vill
er hann þar með að minna
á að viðfangsefni mannsins
eru síst önnur í dag en þau
hafa ætíð verið.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1800
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prentsmiðjan Oddi
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of
Medicine), Soience Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition og
Scopus.
The scientific contents of the
lcelandic Medical Journal are
indexed and abstracted in
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition and
Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2009/95 551