Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2009, Síða 53

Læknablaðið - 15.09.2009, Síða 53
Hvað er í gangi? U M R Æ Ð U R 0 G Ó P í F R É T T I R A T A - L Y F Undirritaður hefur á undanförnum árum fylgst með þróun notkunar á ópíötum á Islandi. Það er ekkert launungarmál að læknar hafa haft mjög svo skiptar skoðanir á notkun sterkra verkjalyfja (ópíata) við þrálátum verkjum sem ekki stafa af illkynja sjúkdómi (chronic nonmalignant pain). Undirritaður hefur allt frá „uppvaxtarárunum" í Gautaborg haft þá einörðu afstöðu að sterk verkjalyf eigi ekki heima í meðferð við þrálátum verkjum í stoðkerfi sem er það vandamál sem ég hef unnið við undanfarin 20-30 ár. Afstaða mín MagnÚS Olason mótaðist snemma enda sá ég í starfinu hversu lækmr, Reykjalundi gagnslítil þessi lyf reyndust til lengri tíma. Rétt er að taka skýrt fram að mér hefur að sjálfsögðu verið ljóst að sterk verkjalyf eru oft nauðsynleg við magnuso@reykjalundur.is bráðum sársauka og í glímunni við verki í illkynja sjúkdómum. Það er engin tilviljun að áherslan við nálgun þrálátra stoðkerfisverkja hefur á undanförnum áratugum færst frá að vera læknisfræðileg og líffræðileg að líffræðilegri-sál-félagslegri nálgun (Bio-psycho-social model). Astæðan er sú að þrálátum verkjum (það er verkjum sem vara lengur en í þrjá mánuði) fylgja fljótlega sálræn og félagsleg vandamál. Það er því ekki nóg að hafa fókusinn einvörðungu á líkamlegum einkennum þegar kemur að meðferðinni. Þegar ég yfirgaf Svíþjóð um miðjan níunda áratug liðinnar aldar var farið að tala um atferlisfræðilega nálgun við þrálátum verkjum (cognitive approach to chronic pain). Skömmu síðar komu Aron Beck o.fl. með hugræna atferlismeðferð, fyrst við þunglyndi og kvíða en fljótlega var einnig farið að beita henni við þrálátum verkjum. Þessi nálgun hefur verið notuð á Reykjalundi í meira en 10 ár, meðal annars við þrálátum verkjum. Um 1990 fór af stað í Bandaríkjunum bylgja sem síðan hefur riðið yfir allan hinn vestræna heim og ísland hefur flotið með. Þetta byrjaði allt með lítilli rannsókn þar sem tveir Bandaríkjamenn sýndu fram á að í hópi 38 sjúklinga með stoðkerfisverki væru hverfandi líkur á fíkn þótt morfín væri notað sem verkjalyf.1 Þar með varð fjandinn laus. Austur ópíata var hafinn. Fíkn er og hefur aldrei verið mikið vandamál hjá fólki með þráláta verki sem taka ópíöt (eins og gjarna er bent á). Hver er þá vandinn? Jú, hann er sá að sjúklingarnir verða líkamlega háðir efnunum. Ópíötin hætta smám saman að virka þrátt fyrir stighækkandi skammta vegna þolmyndunar. Verst er að langvarandi notkun ópíata getur valdið auknu næmi fyrir verkjaáreiti og valdið auknum verkjum (opioid- induced hyperalgesia).23 Þetta leiðir því til þess að sjúklingarnir sitja úppi með tvö vandamál (í besta falli) í stað eins áður, verkirnir eru óbreyttir eða meiri og þeir eru líkamlega háðir lyfi sem er hætt að hjálpa. í þessum greinarstúf ætla ég ekki að rökstyðja að ráði framangreinda skoðun mína (og margra annarra) á ofnotkun ópíata við þrálátum stoðkerfisverkjum. Nóg er um ítarefni sem styður þetta álit mitt.4-5 Hefur þar meðal annars verið bent á að fólki með stoðkerfisverki séu gefnir háir skammtar af ópíötum án þess að verkir minnki marktækt, hvað þá að starfshæfni batni. Sumir þeirra sem áður studdu þessa notkun ópíata hafa síðar varað við henni eða beðið menn um að fara varlega og bent á að enn skorti rannsóknir sem styðja langtímanotkun ópíata hjá þessum sjúklingahóp, líkt og Eija Kalso, verðandi forseti alþjóða verkjafræðafélagsins (IASP).6 Nú er það svo að menn hafa (meðal annars í Bandaríkjunum) áttað sig á að trúlega hafi menn farið óvarlega á undanfömum árum og verkjafræðafélög hafa keppst við að setja leiðbeiningar um notkun ópíata við þrálátum stoðkerfisverkjum.7 Menn eru sammála um flest (á pappírnum), svo sem að aðeins einn læknir eigi að sjá um sjúkling á ópíötum. Einnig þarf sjúklingurinn að uppfylla ýmis skilyrði til að vera gjaldgengur í svona meðferð, til dæmis að hafa góðar (stöðugar) sál-félagslegar aðstæður. Farið er fram á upplýst samþykki sjúklings varðandi meðferðina.8 Hversu margir sjúklingar með þráláta stoðkerfisverki svo mánuðum og oft árum skiptir búa við slíkar aðstæður, spyr ég. Um 70-80% þeirra sem koma til okkar á verkjasvið Reykjalundar eru óvinnufær. Um 60-70% eiga við kvíða og depurð að stríða auk atferlisvandamála sem eru verkjatengd (meðal annars hörmungarhyggju). Þetta er ungt fólk, meira en 50% undir 30 ára aldri. Við leysum ekki sál-félagsleg, hvað þá atferlisfræðileg vandamál með ópíötum. Við gerum það ekki heldur með einhliða notkun þunglyndis- og róandi lyfja, en það er efni í aðra umfjöllun. Norska læknafélagið hefur lagt línur um verkjameðferð. Þar er mælt með að nota ekki sterk verkjalyf (ópíöt) hjá fólki með þráláta verki og góðar lífslíkur nema í undantekningartilfellum, sem síðan eru tíunduð í löngu máli og jafnframt gert að skilyrði að endurhæfing hafi verið reynd áður en til slíkrar notkunar komi.9 LÆKNAblaðið 2009/95 601
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.