Læknablaðið - 15.09.2009, Blaðsíða 58
UMRÆÐUR 0 G
FORSÍÐUMYND
F R É T T I R
I R 1989-2009
Lykill að
myndheimi
Forsíða Læknablaðsins hefur um langt skeið verið helguð myndlist. Síðastliðin fimm ár hefur
Markús Þór Andrésson séð um val myndlistarfólks og myndverka fyrir blaðið og fylgt hverri
forsíðu úr hlaði með pistli um verkið og myndlistarmanninn. Markús er myndlistarmenntaður
og mikilvirkur sýningarstjóri og meðal nýjustu verkefna hans á því sviði er uppsetning
sýningarinnar Lífróður í Hafnarborg í Hafnarfirði, sem nú stendur yfir, og Brennið þið vitar,
sýning sem sett var upp í fjórum vitum á Listahátíð síðastliðið vor. Vitarnir voru hver um sig
útvörður eins landshluta. Sýningarnar skipulagði hann í félagi við eiginkonu sína, Dorothée
Kirch. Þau eru einnig sýningarstjórar íslensku sýningarinnar á Feneyjatvíæringnum sem
nú stendur yfir. Markús gaf sér tíma fyrir spjall við Læknablaðið þegar hann var að setja
upp sýninguna í Hafnarborg og greindi stuttlega frá því hvernig hann velur forsíðumyndir
blaðsins og hvaða sjónarmið liggja þar að baki.
Sumir gera sérstök verk fyrir forsíðuna
Anna
Ólafsdóttir
Björnsson
„Þegar Védís Skarphéðinsdóttir, ritstjórnarfulltrúi
Læknablaðsins, hafði samband við mig og bað
mig að taka að mér að velja myndverk á forsíðu
blaðsins, var ég strax spenntur fyrir verkefninu. Ég
tók þegar ákveðna stefnu sem ég hef fylgt að miklu
leyti. Mig langar að forsíðan endurspegli það sem
er að gerast núna. Frá upphafi beindi ég sjónum að
yngri deildinni meðal myndlistarmanna en seinna
hef ég einnig valið verk eftir eldri listamenn á
forsíðuna inn á milli.
Ég vissi af þessum vettvangi, forsíðu
Læknablaðsins, þar sem samtímalist var kynnt
á óhefðbundinn hátt og að það ríkti almenn
ánægja með þetta framtak. Mín reynsla er
sú að allir sem ég hef leitað til hafa tekið því
mjög vel og flestir getað sinnt beiðni minni um
forsíðuverk. Ef þeir hafa ekki getað það, þá er
það vegna annríkis en ekki áhugaleysis. Ég hef
aldrei komið að lokuðum dyrum þegar ég leita
eftir verki fyrir Læknablaðið. Sumir vinna verk
sérstaklega fyrir forsíðuna. Aðrir birta myndir
af nýlegum verkum og þau eru af ýmsu tagi,
innsetningar, gjörningar, ljósmyndaverk og í
rauninni endurspegla forsíðuverkin alltaf eitthvað
sem er að gerast í myndlistinni á þeim tíma. Þeir
sem vinna verk sérstaklega af þessu tilefni ákveða
það sjálfir, ég fer ekki fram á það, en sumir vilja
það gjaman og finnst gaman að nota þennan miðil
til þess að skapa eitthvað nýtt. Auðvitað skila verk
sér misjafnlega vel og val myndlistarmanna ber
stundum með sér að aftur er leitað til þeirra sem
vinna með form sem henta forsíðunni vel. Það á
til dæmis við um ljósmyndaverk og einn af þeim
sem hefur átt forsíðuverk oftar en einu sinni er
Hrafnkell Sigurðsson, en verk hans hafa notið sín
sérlega vel í þessum miðli.
Teikn á lofti um yfirvofandi
hrun í myndverki 2005
Viðbrögðin við forsíðunum eru flest mjög jákvæð,
læknar sem hafa rætt þær við mig hafa yfirleitt
talið það sem þar birtist áhugavert. Það em að
minnsta kosti þau viðbrögð sem berast í mín eyru.
606 LÆKNAblaðið 2009/95