Læknablaðið - 15.09.2009, Qupperneq 59
UMRÆÐUR 0 G
FORSÍÐUM YNDIR 19
F R É T T I R
89-2009
Markús læturfara vel um sig á ritstjórnarskrifstofu Læknablaðsins þar sent kápumyndir blaðsins frá síðustu árum eru innrammaðar uppi á vegg.
Mynd Anna.
En ég veit það hafa komið fyrirspumir og bréf til
blaðsins frá fólki sem er ekki sátt við einhverja
forsíðuna eða skilur ekki verkin og þá hef ég sent
útskýringar til baka eða beðið Védísi að gera það.
Ekki svo að skilja að við séum í vörn fyrir verkin,
en það er alltaf gaman að segja frá því hvað er
í gangi, því sumt sem við höfum birt er fólki
framandlegt. Útskýringarnar felast ekki í því að
taka upplifunina frá þeim sem skoðar verkið, því
hvert myndverk byggist á því sem áhorfandinn sér
út úr því, rétt eins og gerist með aðrar listgreinar.
En það er hægt að bjóða upp á ákveðna lykla að
verkunum eða brú til að gera þau aðgengilegri.
Oft endurspeglast samfélagið í myndverkun-
um. Talsvert löngu áður en núverandi kreppa
skall á voru ákveðin teikn á lofti um það sem
koma skyldi, hrunið. Það mátti til dæmis sjá
ádeilu á græðgina og gróðærið í verkum einstakra
myndlistarmanna. Sem dæmi má nefna verk eftir
Ásmund Ásmundsson á forsíðu Læknablaðsins í
desember 2005. Á vissan hátt speglar myndlistin
samfélagið en hún er oft mælikvarði á það
fyrirfram hvert við erum að stefna. Það kemur
fram á ótvíræðan hátt og oft löngu áður en hið
raunverulega ástand kemur upp á yfirborðið. En
myndlistin endurspeglar líka á mjög afgerandi
hátt hvernig við bregðumst við. Það ástand sem
nú er í þjóðfélaginu mun eflaust halda áfram að
birtast í verkum listamanna á næstu misserum, við
erum bara rétt að byrja að sjá hvernig afleiðingar
hrunsins koma fram í myndlistinni. Margt af því
sem er að gerast í myndlist núna, bæði það sem
sýnt er á sýningunni Lífróður og Brennið þið vitar,
væri ekki að gerast í íslenskri myndlist núna ef
ekki hefði komið til þessi umbreyting síðastliðið
haust. Myndlistarmenn, líkt og fleiri, hafa beint
sjónum sínum að hafinu umhverfis landið og öllu
því fjölbreytilega sem tengist því, hvort sem litið
er á sjósundkappa, sæstrengi, fiskinn í sjónum
eða olíuna. Skyndilega sjáum við að gripið er til
LÆKNAblaðið 2009/95 607