Læknablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 3
Orlofsblað Ll
Frá orlofsnefnd LÍ: nýr bæklingur
Með desemberblaðinu er dreift nýjum bæklingi frá orlofsnefnd fyrir árið 2010. Á árinu sem er að
líða hafa bústaðir orlofsnefndar verið nýttir sem aldrei fyrr í sögu starfseminnar, og gildir jafnt
fyrir alla mánuði ársins, ekki bara sumarið. Hvert rúm skipað alla daga og nætur. LÍ á langflesta
bústaðina (10) en leigir húsnæðið á ísafirði, Höfða í Jökulfjörðum og á Vopnafirði. Veigamesta
breytingin á næsta ári er að felldir hafa verið úr gildi samningar um erlenda orlofskosti, og um
gistimiða á Fosshótelum. Eftir standa bústaðir innanlands þar sem læknar og gestir þeirra geta
teygað í sig náttúrustemmningu og safnað kröftum.
VS
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Helgi Þórsson (f. 1975) hefur mótaö sérstakan myndheim
og eru höfundareinkennin greinileg þeim sem hafa
einhverju sinni séð verk hans. Þar er handverk í hávegum
haft og þá ekki endilega í þeim
skilningi aö verk hans séu svo
nostursamleg, heldur bera þau
meö sér að vera mótuð, máluð
og samsett frá grunni af mikilli
sköpunargleði. Innsetningar hans
hafa til dæmis verið gerðar úr
ógrynni af fundnu glingri þar sem
minibarir eða skemmtarar geta
verið miðpunkturinn og síðan hleður
Helgi alls konar dótaríi utan á þá.
Maður getur auðveldlega gleymt
stund og stað við að rannsaka allt
það sem borið er á borð í flóknustu
verkunum. Hann mótar stóra
skúlptúra, fígúrur sem hann málar
í ýmsum litum og gæðir gjarnan lífi
með einhvers konar tækni, hljóði,
Ijósi eða hreyfingu. Málverk hans og
teikningar sýna fólk og fyrirbæri en
helst notar Helgi málverk til að setja
fram mynstur í litum og formum.
Þannig býr hann til sjálfstæða
heima þar sem allt kallast á innbyrðis og stutt er í
frásagnarlistina.
Málverk Helga sem prýðir forsíðu Læknablaðsins, án
titils, 2009, er töluvert stórt, eða yfir metri á kant og sýnir
einhvers konar vasa eða krukku með loki á. Það er málað
í flötum og grófum stíl. Litirnir eru allir hálfgerðar litleysur,
muskutónar á óræðum skala eins og húðlitur, brúnn og
mosagrænn. Hver litur er notaður
einn og óblandaður og ekki gerö
tilraun til að móta þrívídd eða
skyggingu. Það rétt glittir í sveig í
mynstrinu sem gefur rúnnað form
til kynna. Þá eru abstrakt fletir í
bakgrunni vasans sem láta hann
sýnast standa framar í óræðu rými
myndarinnar, annars er hún nánast
alveg flöt. Myndefnið er hálfgerð
erkitýpa fyrir þrívídd og skúlptúr -
eða eru ekki einmitt elstu listmunir
á söfnum iðulega vasar af ýmsum
gerðum? Helgi leikur sér að því
að skeyta saman því sem virðist
vera algjörar andstaeður, tvívítt
málverkið og þrívítt myndefnið.
Hann hefur áður notað vasa í
verkum sínum, bæði í myndum
og í skúlptúr, og má vænta frekari
útfærslu á sýningu i Listasafni
Reykjavíkur nú í janúar á nýju ári.
Gleðileg jól!
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1800
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prentsmiðjan Oddi
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition og
Scopus.
The scientific contents of the
lcelandic Medical Journal are
indexed and abstracted in
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition and
Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2009/95 815