Læknablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 11
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Arangur
lungnabrottnámsaðgerða við
lungnakrabbameini á Islandi
Húnbogi
Þorsteinsson12
læknanemi
Steinn
Jónsson14
lungnalæknir
Hörður
Alfreðsson2
hjarta- og lungnaskurðlæknir
Helgi J.
ísaksson3
meinafræðingur
Tómas
Guðbjartsson12
hjarta- og lungnaskurðlæknir
Lykilorð: lungnakrabbamein,
lungnabrottnám, árangur,
fylgikvillar, lífshorfur, forspárþættir
lífshorfa, fjölbreytugreining.
’Læknadeild HÍ, 2hjarta-
og lungnaskurðdeild,
3rannsóknarstofu í
meinafræði, “lungnadeild,
Landspítala.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Tómas Guðbjartsson,
hjarta- og lungnaskurðdeild
Landspítala Hringbraut,
101 Reykjavík.
tomasgud@landspitali. is
Ágrip
Tilgangur: Kanna árangur og ábendingar
lungnabrottnámsaðgerða (pneumonectomy) við
lungnakrabbameini á íslandi.
Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn á
sjúklingum sem gengust undir lungnabrottnám
vegna lungnakrabbameins á íslandi 1988-2007.
Kannaðar voru ábendingar aðgerðar, TNM-stig,
fylgikvillar, lífshorfur og forspárþaettir lífshorfa.
Niðurstöður: 77 sjúklingar (meðalaldur 62,3 ár,
64% karlar) gengust undir lungnabrottnám, í
44% tilfella hægra megin. Miðmætisspeglun var
gerð í 31% tilfella. Stigun eftir aðgerð sýndi að 41
sjúklingur (54%) var á stigi I+II, 27 (38%) á stigi
IIIA/B og 6 á stigi IV. í 17% tilfella sást krabbamein
í skurðbrún. Aðgerðartími var að meðaltali
161 mínúta, blæðing í aðgerð 1,1 L og miðgildi
legutíma 11 dagar. Helstu fylgikvillar eftir aðgerð
voru gáttatif/flökt (21%), lungnabólga (6,5%),
fleiðruholssýking (5,2%) og öndunarbilun (5,2%).
Þrír sjúklingar (3,9%) létust <30 daga frá aðgerð og
fimm ára lífshorfur voru 20,7%. Hækkandi aldur,
saga um lungnateppu, kirtilmyndandi vefjagerð
og hátt TNM-stig höfðu neikvæð áhrif á lífshorfur
samkvæmt fjölþáttagreiningu.
Alyktun: Skammtímaárangur lungnabrottnáms-
aðgerða er góður hér á landi og tíðni alvarlegra
fylgikvilla lág. Lífshorfur eru hins vegar lakari
en búast mætti við, eða 20,7% eftir fimm ár.
Skýring á þessu gæti falist í ófullnægjandi stigun,
en aðeins þriðjungur sjúklinga gekkst undir
miðmætisspeglun fyrir aðgerð.
Inngangur
Lungnakrabbamein er næstalgengasta krabba-
mein á Islandi og það krabbamein sem dregur
flesta til dauða.1- 2 Orsök er tengd reykingum í
um það bil 90% tilfella en minnkandi reykingar
virðast hafa dregið úr nýgengi sjúkdómsins hér
á landi.1 Einkenni sjúkdómsins eru oft ósértæk
og aðeins þriðjungur sjúklinga greinist með
skurðtækan sjúkdóm.3 Skurðaðgerð er besta
læknandi meðferðin við lungnakrabbameini öðru
en smáfrumukrabbameini og er oftast framkvæmt
blaðnám, en þá er lungnablaðið fjarlægt ásamt
eitlum í lungnarót og miðmæti. í 10-15%
skurðtækra tilfella er krabbameinið hins vegar
það stórt og/eða miðlægt í lunganu að ekki
verður komist fyrir meinið án þess að fjarlægja
allt lungað. Lungnabrottnám er stór aðgerð og
fylgikvillar umtalsvert tíðari en eftir blaðnám eða
fleygskurð.4
Hér á landi eru ekki til rannsóknir á árangri
lungnabrottnámsaðgerða né heldur er þekkt
hlutfall þessara aðgerða af heildarfjölda sjúklinga
sem greinast með lungnakrabbamein. Tilgangur
rannsóknarinnar var að kanna árangur þessara
aðgerða með sérstaka áherslu á snemmkomna
fylgikvilla og afdrif sjúklinganna.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn og náði til allra
sjúklinga sem gengust undir lungnabrottnám
vegna lungnakrabbameins á íslandi frá 1. janúar
1988 til 31. desember 2007. Alls voru fram-
kvæmdar 84 lungnabrottnámsaðgerðir hér á landi
á þeim 20 árum og voru 77 (91,7%) þeirra gerðar
vegna lungnakrabbameins. Ábendingar hinna
aðgerðanna voru meinvörp frá nýrum (n=3),
áverkar á lunga (n=2), Swyer-James heilkenni
(n=l) og meðfæddur lungnahluti (pulmonary
sequestration) (n=l) og voru þessir sjö sjúklingar
ekki teknir með í rannsóknina. Ekki voru heldur
teknar með átta aðgerðir þar sem fjarlægt var
lungnablað/blöð hjá sjúklingi sem áður hafði geng-
ist undir blaðnám (rest lobectomy).
Sjúklingar voru fundnir með leit í tveimur
aðskildum skrám, annars vegar í aðgerða-
og greiningarskrám Landspítala og hins vegar
í gagnagrunni rannsóknarstofu Landspítala
í meinafræði. Til að kanna hlutfall lungna-
brottnámsaðgerða af heildarfjölda greindra til-
fella voru fengnar upplýsingar frá Krabba-
meinsskrá Krabbameinsfélags íslands um fjölda
nýgreindra lungnakrabbameina annarra en
LÆKNAblaðið 2009/95 823