Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 19

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 19
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN Gunnar Guðmundsson1’2 sérfræðingur í lyf-, lungna- og gjörgæslulækningum Kristinn Tómasson3'4 sérfræöingur í embættis- og geðlækningum Lykilorð: búskapur, vinnuslys, fjarvistir frá vinnu, einkenni, áfengi. ’Lungnadeild Landspítala, 2læknadeild HÍ, 3Vinnueftirliti ríkisins, “rannsóknastofu í vinnuvernd, HÍ. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Gunnar Guðmundsson, lungnadeild Landspítala E7 Fossvogi, 108 Reykjavík. Sími 543-1000, fax 543- 6568. ggudmund@landspitali. is Vinnuslys íslenskra bænda. Mat á áhættuþáttum með spurningalista Ágrip Inngangur: Lítið er vitað um vinnuslys bænda á Islandi. Oft er því haldið fram að vinnuslys séu algeng hjá þessum starfshópi. Sérstakt starfsumhverfi bænda er talið eiga þátt í því. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna vinnuslys meðal bænda og hvaða áhrif þau hefðu á líðan, fjarvistir frá vinnu og læknisheimsóknir. Efniviður og aðferðir: Þverskurðarrartnsókn af öllum bændum á fslandi með bú stærra en 100 ærgildi. Alls var 2042 bændum sendur ítarlegur spurningalisti um almenn heilsufarseinkenni, vinnuslys og læknisheimsóknir (svarhlutfall 54%). Niðurstöður: Vinnuslys voru algeng hjá miðaldra og eldri bændum og leiddu þau oft til langra fjarvista. Búpeningur var áberandi orsök slysanna, en tengsl við áfengisnotkun í tengslum við vinnu voru einnig skýr. Þeir sem höfðu orðið fyrir vinnuslysum leituðu oftar læknis vegna stoðkerfiseinkenna og verkja. Þeir mátu einnig líkamlega og andlega líðan verri og höfðu meiri geðræn einkenni. Ályktun: Vinnuslys voru algeng hjá bændum og leiddu til langra vinnufjarvista. Þau leiddu til fleiri læknisheimsókna og líðan var verri. Þessar niðurstöður má nota til að efla heilsugæslu og forvamir gegn slysum. Bændur þurfa að endurskoða áhættumat sitt með tilliti til slysa. Inngangur Takmarkaðar upplýsingar eru til um vinnuslys íslenskra bænda. Gerðar hafa verið rannsóknir á dánarmeinum1 og kom þar í ljós að dauðaslys voru sjaldgæfari meðal bænda en annarra. Flest bóndabýli á íslandi í dag eru lítil og rekin af einni eða tveimur fjölskyldum. Þau snúast oftast um umhirðu búpenings og öflun fóðurs fyrir hann. Vinnustundir eru langar og óreglulegar og hætt við að þær lúti ekki öðrum lögmálum en kröfunni um að verkið sé unnið. Bændur vinna oft einir eða í litlum hópum og nota vélar og tæki sem geta verið hættuleg og þarfnast mikils viðhalds. Umhirða búpenings getur verið erfið, einkum stórra skepna eins og nautpenings. Þetta vekur spurningar um hvort vinnuslys bænda geti verið algeng, sérstaklega vegna erfiðs starfsumhverfis. Rannsókn þessi sem er hluti af yfirgripsmikilli rannsókn á heilsufari bænda2-3 hafði að markmiði að rannsaka vinnuslys bænda og hversu oft meðferðar er leitað vegna afleiðinga þeirra og hvort þau hafi áhrif á líkamlega og andlega líðan. Með þessu var reynt að svara spurningunni um hvort vinnuslys bænda hefðu mikil áhrif á heilsufar þeirra og fjarvistir frá vinnu. Þessar upplýsingar eru mikilvægar vegna fyrirbyggjandi aðgerða til að draga úr vinnuslysum hjá bændum. Efniviður og aðferðir Þetta er þversniðsrannsókn meðal allra bænda á Islandi sem stóðu fyrir búi árið 2002 með meira en 100 ærgildum eða ígildi þess í mjólkurkvóta.2- 3Alls uppfylltu 2042 bændur skilyrði um þátttöku í rannsókninni samkvæmt skrám Bændasamtakanna. Þessir bændur fengu allir sendan ítarlega spurningalista ásamt bréfi sem skýrði markmið rannsóknarinnar. Svarhlutfall reyndist vera 54% (n=1107) eftir ítrekanir. Nokkuð var um að svör vantaði við einstökum spurningum. Það að svara spurningalistanum jafngilti upplýstu samþykki fyrir þátttöku í rannsókninni. Spurningalistinn var byggður á íslenskri útgáfu Evrópukönnunarinnar Lungu og heilsa.4 Hann tók til lýðfræðilegra þátta eins og áður hefur verið lýst.2-3 Spurt var um vinnuslys og notaðar sömu spurningar og notaðar höfðu verið af Vinnueftirlitinu við skráningu vinnuslysa. Almenn vellíðan á síðustu 12 mánuðum var metin með spurningum um líkamlega og andlega heilsu, á Likert-kvarða frá 1-10 þar sem 1 er versta heilsa en 10 er besta heilsa. Til að skima fyrir algengi geðeinkenna var notaður spurningalistinn General Health Questionnaire-12 (GHQ-12).5Hægt er að fá spumingalistana hjá höfundum. Tölfræðileg úrvinnsla var gerð með Statistical Package for the Social Sciences (SPSS) útgáfa 12.01. Notað var kí-kvaðrat til að bera saman hlutföll, t-próf við samanburð á meðaltölum. Gerð var ein lógistísk aðhvarfsgreining til að lýsa samspili vinnuslysa sem bændur höfðu leitað sér LÆKNAblaðið 2009/95 831
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.