Læknablaðið - 15.12.2009, Side 21
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Umræða
í þessari rannsókn sem náði til allra íslenskra
bænda og hafði svarhlutfall yfir 50% fannst há
tíðni vinnuslysa hjá bændum, eða hjá helmingi
þeirra. Fjarvistir frá vinnu vegna vinnuslysa voru
algengar og langar. Þessar niðurstöður kalla á
breytingar á vinnulagi í sveitum. Þá hvetja þessar
niðurstöður til þess að átak sé gert í skráningu
vinnuslysa meðal bænda en til samanburðar
má geta þess að samkvæmt vinnuslysaskrá
Vinnueftirlitsins var fjöldi tilkynntra vinnuslysa í
landbúnaði einvörðungu á bilinu 12-16 slys á ári á
síðustu 10 árum.
Ymsar ástæður geta verið fyrir vinnuslysum
bænda. í þessari rannsókn var algengast að um-
hirða búpenings ylli slysum og var algengast að
þeir sem væru með kúabú ýmist ein og sér eða
blönduð með sauðfé yrðu fyrir slysum. Þá höfðu
miðaldra bændur og eldri frekar verið í slysum og
eins og vænta má þeir sem höfðu haft áfengi um
hönd við vinnu sína. Rannsókn frá Bretlandi sýndi
að algengustu slysin tengdust því að meðhöndla,
lyfta eða bera hluti eða hjá um 19,8% en 7,7% slysa
voru vegna meðhöndlunar búpenings.6 Önnur
bresk rartnsókn sýndi að það að meðhöndla, bera
eða lyfta hlutum var algengasta orsökin og í öðru
sæti var fall úr hæð og í þriðja sæti var áverkar
vegna búpenings.7 Rannsókn frá Virginíufylki í
Bandaríkjunum sýndi hins vegar að umönnun
búpenings var langalgengasta ástæða vinnu-
slysa í landbúnaði.8 Rannsókn frá Iowafylki í
Bandaríkjunum sýndi að helstu áhættuþættir fyrir
slysum tengdum umönnun búpenings voru notk-
un heyrnartækis, gigtsjúkdómur og lægri aldur.9
Rannsókn frá Kanada sýndi að áhættusækin
hegðun og sú trú að slys væru óumflýjanleg jók
hættu á slysum en innleiðing sérhæfðra öruggra
búskaparhátta dró úr slysum.10 í okkar rannsókn
kemur fram að fremur algengt er að bændur
hafi einhvem tíma verið ölvaðir við störf og em
þeir sem lent hafa í slysum mun líklegri til að
vera í þeim hópi. Mjög fáir bændur hafa hins
vegar leitað sér áfengismeðferðar en eins og áður
hefur verið sýnt er áfengissýki ekki algeng meðal
bænda.11 Þetta undirstrikar tvennt, hið vel þekkta
samband áfengis og slysa og að bóndinn er alltaf
í vinnunni þannig að líkurnar á því að bóndi sem
neytir áfengra drykkja þurfi að sinna starfi sínu
undir áhrifum eru í eðli sínu miklar. Ljóst er að
þessi niðurstaða kallar á umræðu og átak meðal
bænda og samtaka þeirra til að taka á þeim vanda
sem er notkun áfengis við bústörf.
Þessi rannsókn sýndi að fjarvistir frá vinnu
vegna vinnutengdra slysa í langan tíma voru al-
gengar. Þannig höfðu tæplega 50% bænda verið
frá vinnu lengur en í 14 daga vegna vinnuteng-
%
■ Sauðfé
■ Kýr
■ Blandað
■ Annað
dra slysa. Rannsókn frá Bretlandi sýndi að færri
bændur en aðrar starfstéttir voru fjarverandi
vegna vinnuslysa lengur en þrjá daga (20% á móti
32%) en á móti kom að þeir voru lengur frá vinnu
að meðaltali (24 dagar samanborið við 19 daga).6
Fyrri niðurstöður okkar höfðu sýnt að bændur
voru síður frá en hópur sem ekki vom bændur
vegna veikinda og voru einnig frá í styttri tíma.3
Þessa háa tíðni fjarvista í marga daga undirstrikar
hve hættuleg störf bóndans geta verið og undir-
strika mikilvægi þess að hann grípi til forvarna. í
þessu samhengi er rétt að undirstrika hve stór hluti
þessara slysa tengdist umönnun dýra og minna
á að sauðkindin tengist háu hlutfalli slysanna
þótt hún sé enginn stórgripur. í samskiptum höf-
unda við bændur vegna rannsóknarinnar, sem og
kennara hjá Landbúnaðarháskólanum, kemur
Tafla III. Tengsl milli vinnuslysa, kyns, aldurs, búgerðar og þess að hafa unnið undir
áhrifum áfengis. Niðurstöður tógistískrar aðhvarfsgreiningar.
Áhættuhlutfall 95% öryggismörk fyrir áhættuhlutfall
Neðri Efri
Kyn (kona=1) 1,0 1,0 1,0
Aldur í árum
20-29 ára 0,7 0,2 2,2
30-39 ára 1,1 0,6 1,9
40-49 ára 1,8 1,2 3,2
50-59 ára 1,9 1,1 3,3
60-69 ára 1,8 1,0 3,1
70 og eldri 1 - -
Búgerð
Blandaður búskapur 1 - -
Annað 0,6 0,3 1,0
Sauðfé 0,8 0,6 1,1
Kýr 0,9 0,6 1,4
Einhvern tímann unnið undir 1,7 1,3 2,4
áhrifum áfengis (nei=1)
Mynd 1. Fjnrvistirfrá
vinnu í meira en 14 daga
í tengslum við versta
vinnuslys bónda.
LÆKNAblaðið 2009/95 833