Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2009, Side 47

Læknablaðið - 15.12.2009, Side 47
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR LYFJARANNSÓKNIR Rannsóknir veita aðgang að því nýjasta og besta Hávar Sigurjónsson Karl Andersen sérfræðingur í hjartalækningum hefur tekið þátt í mörgum klínískum lyfjarann- sóknum og þekkir rannsóknarumhverfið mjög vel. Karl segir það rétt að upp hafi komið álitamál varðandi tryggingar sjúklinga í lyfjarannsóknum á Landspítala. „Á tímabili var krafa vísinda- siðanefndar að spítalinn skyldi kaupa ábyrgðar- tryggingu vegna klínískra rannsókna hjá viður- kenndu tryggingafélagi. Útgangspunkturinn var sá að þátttakendur í vísindarannsókn ættu ekki að þurfa að leita réttar síns með lögfræðiaðstoð ef um meintilvik væri að ræða. Spítalinn ber hins vegar fulla ábyrgð á þeim sjúklingum sem til hans leita og hefur alltaf gert það án þess að kaupa tryggingar. Aðilar voru þó fyllilega sammála um að vemda réttarstöðu sjúklinganna. Þetta mál leystist farsællega með samráði Landspítala, ráðuneytis og vísindasiðanefndar og mér vitan- lega hefur þetta ekki verið þröskuldur í vegi lyfjarannsókna enda hafa verið gerðar fjölmargar klínískar lyfjarannsóknir með góðum árangri innan Landspítala." Stór rannsókn framundan Karl segir að lyfjafyrirtækin hafi verið mjög mismunandi virk á sviði klínískra lyfjarannsókna á Islandi. „Flest lyfjafyrirtækin eru í raun aðeins útibú frá stærri skrifstofum í nágrannalöndunum. Það er misjafnt hvað þessar erlendu skrifstofur hafa mikinn áhuga á að setja upp rannsóknar- setur á íslandi. Því fylgir aukinn kostnaður vegna ferðalaga hingað til lands, sendingar rannsóknargagna og fleira. Það sem við bjóðum á móti er vel þjálfað starfsfólk, hágæða vinna þannig að lítið er um lausa enda, gagnasöfnun gengur hratt fyrir sig og almennt er hér jákvætt rannsóknarumhverfi. Það hefur skapast mikil þekking á framkvæmd klínískra lyfarannsókna, bæði innan Landspítala og hjá einkafyrirtækjum eins og Læknasetrinu og Encode og þessi fyrirtæki skila vinnu á heimsmælikvarða. Við höfum þannig getið okkur gott orð erlendis og þannig náð að tryggja áframhaldandi samstarf. Nokkur lyfjafyrirtæki hafa verið mjög virk í lyfjarannsóknum þó að nokkuð hafi dregið úr fjölda þeirra á undanförnum árum. Ég vil þó alls ekki taka undir að klínískar lyfjarannsóknir „Ég vil alls ekki taka wtdir að klíuískar lyfjarannsóknir séu liðin tíð hérlendis og nefni pví til stuðnings að á næsta ári er aðfara afstað stór rannsókn á hjartabilun sem mun standa í 3-4 ár," segir Karl Andersen hjartalæknir. séu liðin tíð hérlendis og nefni því til stuðnings að á næsta ári er að fara af stað stór rannsókn á hjartabilun sem mun standa í þrjú til fjögur ár." Karl nefnir fleiri atriði sem hafa áhrif á áhuga lyfjafyrirtækjanna á lyfjarannsóknum og fjárhagslegt svigrúm þeirra hérlendis. „Gengissveiflur hafa augljóslega áhrif á það hvort það verði hagkvæmt fyrir erlend lyfjafyrirtæki að leita hingað um rannsóknarsamstarf. í núverandi árferði ætti það að teljast hagstætt og við teljum að í þessu felist ákveðin sóknarfæri. Tekjur sem fást af samstarfi við lyfjafyrirtæki geta til dæmis nýst til að fjármagna rannsóknarsjóði spítalans og stuðla þannig að fjármögnun sjálfstæðra rannsóknarverkefna." Dansað við broddgölt Samskipti lækna og lyfjafyrirtækja virðast vera eilífðarmál og snúast um siðferði, peninga og vísindalegt sjálfstæði. „Samskipti lyfjafyrirtækja og lækna eru vandmeðfarin; þau eru undir sífelldri smásjá og um þau gilda strangar siðareglur. Þetta á reyndar ekki eingöngu við lyfjafyrirtækin heldur einnig framleiðendur alls kyns lækningatækja. Læknar þurfa að gæta sín í þessum samskiptum og vita hvar hætturnar liggja. Lyfjafyrirtækin eru leiðandi í því að þróa ný lyf og nýjar með- LÆKNAblaðið 2009/95 859

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.