Læknablaðið - 15.12.2009, Page 53
UMRÆÐUR 0 G
L Æ K N A D A
F R É T T I R
G A R 2 0 10
„Læknadagar hafa hingað
til staðið undir sér og
okkar markmið er að svo
verði áfram," segir Arna
Guömundsdóttir.
íslenskra lækna eru í þeim gæðaflokki að þeir
gefa ekkert eftir því sem erlendir kollegar okkar
hafa fram að færa. Það sýndi sig einnig í fyrra að
mesta aðsóknin var að innlendum málþingum og
það staðfestir skoðun okkar að Læknadagar eru
samkoma íslenskrar læknastéttar þar sem hinar
mörgu sérgreinar mætast og félagslegi þátturinn
skiptir ekki síður máli en sá faglegi. Við höfum
tekið eftir því að þverfagleg málþing njóta yfirleitt
mikilla vinsælda enda eru Læknadagar eitt helsta
tækifærið fyrir sérfræðingana að kynna sér hvað
kollegar í öðrum sérgreinum eru að fást við."
Verður erfitt að velja
Aðspurð um hvort eitthvert þema sé ráðandi í
væntanlegri dagskrá segir Arna ekki svo vera.
„Einkenni Læknadaganna er mikil fjölbreytni.
Þarna verða nær allar sérgreinar með innlegg
ásamt umræðu um lyfjamál, heilsuhagfræði,
skipulag heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og
margt fleira."
Þegar Arna er beðin að nefna einhver atriði
dagskrárinnar sem henni þykja áhugaverð verður
hún hugsi því af svo mörgu er að taka. „Ég hugsa
að margir eigi eftir að lenda í vandræðum með að
velja og hafna því svo margt er áhugavert. Ég vil þó
nefna nokkur atriði sem eflaust eiga eftir að vekja
nokkra athygli. Kvensjúkdómalæknar ætla að
ræða siðfræði lýtalækninga á kynfærum kvenna,
Samtök lyfjaframleiðenda Frumtök ætla að ræða
samskipti lyfjaiðnaðarins við læknastéttina en
allt í kringum okkur er verið að herða þessar
reglur og sennilega eingöngu tímaspursmál
hvenær við fylgjum í kjölfarið. Þetta er mjög þörf
umræða. Þá vil ég nefna heiðursmálþing um
Margréti Oddsdóttur sem lést í fyrra. Þar ætla
skurðlæknar og krabbameinslæknar að sameinast
um að heiðra minningu Margrétar. Heilsuvá
í háloftunum er yfirskrift málþings sem Félag
íslenskra heimilislækna stendur fyrir. Vefjagigt
er umfjöllunarefni málþings sem ég veðja á að
verði mjög vel sótt. Þetta er efni sem mjög mikið
er fjallað um núna. Skimun á krepputímum er
yfirskrift annars málþings sem er mikilvægt að
fjalla um núna þar sem hættan er sú að skorið verði
niður og dregið úr forvörnum með ófyrirséðum
afleiðingum síðar. Þá vil ég nefna að alla dagana
verða vinnubúðir um afmörkuð efni og ég nefni
hér vinnubúðir um gifs sem gæti orðið vel sótt
og annað um hvatningarviðtöl (motivational
interviewing)."
Hér hefur eingöngu verið stiklað á stóru í
dagskrá læknadaganna en dagskráin í heild
verður aðgengileg á heimasíðu Læknafélags
íslands (www.lis.is) en ekki birt í Læknablaðinu
í ár af sparnaðarástæðum. Skráning er jafnframt
á netinu og þar er hægt að inna af hendi greiðslu
samtímis.
LÆKNAblaðið 2009/95 865