Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 57

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 57
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR LOFTSLAG Læknar og loftslagsbreytingar Miklar vonir eru bundnar við ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar sem haldin verður í Kaupmannahöfn í desember. Læknatímaritið Lancet birti í septemberhefti grein eftir tvo af þekktustu og virtustu embættislæknum Bretlands, Jay og Marmot, þar sem þeir reifa mögulega útkomu ráðstefnunnar og afleiðingar ákvarðana sem þar kunna að verða teknar. Þeir benda á að almennt séu vísindamenn sammála þeirri kenningu að nauðsynlegt sé að komast í 50% hlutfall af losuðum gróðurhúsalofttegundum ársins 1990 fyrir árið 2050 ef markmiðið um að hækka ekki meðalhita lofthjúpsins um meira en 2 gráður á að eiga meira en 50% möguleika að nást. Náist þetta markmið ekki, verði ekki aftur snúið á braut til glötunar. Slæmt efnahagsástand í heiminum gefi ekki heldur tilefni til bjartsýni þar sem dregið verði úr opinberum framlögum þar til betur árar. Atvinnulífið muni einnig leitast við að fá undanþágur til losunar til að draga úr kostnaði og því verði að vera vel á verði til að ástandið versni ekki á næstu misserum. Jay og Marmot benda á að hlýnun lofthjúpsins sé ekki góðærisvandi, heldur vandi sem taka verði á strax og gera ráð fyrir í efnahagsreikningi þjóðanna þrátt fyrir kreppuástand. Ennfremur að almennur skilningur sé á því meðal stjórnmálamanna að því fyrr sem byrjað er að snúa við blaðinu því minna muni það kosta; hvert ár sem líður án samhæfðra aðgerða mun margfalda kostnaðinn og jafnframt draga úr líkum á árangri. Margir binda vonir við gjörbreytta afstöðu Bandaríkjanna þar sem Bush-stjórnin setti sig gegn öllum takmörkunum og hindraði alþjóðlega samninga en Obama-stjórnin hefur lýst Hávar því yfir að markmið hennar í loftslagsmálum sé að Sigurjónsson stuðla að alþjóðlegri lausn. Fátækari ríki heimsins hafa einnig staðið gegn alþjóðlegu samkomulagi um losun gróðurhúsalofttegunda með þeim rökum að iðnríkin hafi skapað vandann og því sé ósanngjarnt að fátæku ríkin borgi brúsann. Þau telja sig jafnvel eiga talsvert inni áður en kemur að þeim að takmarka losunina. Jay og Marmot leggja áherslu á að vandinn sé alþjóðlegur og ekki bundinn við einstök ríki eða heimssvæði. Því verði öll ríki heimsins að sameinast um lausnir. Þeir segja að líta eigi á aðgerðir gegn losun gróðurhúsalofttegunda sem tækifæri fremur en kostnað. Hér gefist tækifæri til að leggja niður kolakynt raforkuver og leita annarra leiða til raforkuframleiðslu, bensín- og díselvélar verði lagðar niður og rafbílar komi í staðinn; eyðing regnskóga dragi úr bindingu COz og hindri líffræðilega fjölbreytni; þurrkþolið útsæði tryggi uppskeru fátækra bænda á þurrkasvæðum; allt leggist þetta á eitt um að skapa hreinna, heilbrigðara og hagkvæmara umhverfi fyrir mannkynið. Með þessu er höfðað til læknastéttarinnar á alþjóðavísu þar sem hún beri ábyrgð og skyldur gagnvart opinberum aðilum um að upplýsa um hvað komi samfélaginu best heilsufarslega. Hlýnun lofthjúpsins hafi beinlínis skaðleg álirif á heilsu manna og umlwerfi og því sé læknum í rauninni skylt að beita áhrifum sínum á öllum sviðum þjóðfélagsins til að draga úr henni. Allar ráðstafanir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda hafa jákvæð áhrif á heilsu manna. Læknar njóta almennt virðingar í samfélagi sínu og á þá er hlustað þegar þeir tjá sig. Þeir hafi ennfremur skyldur gagnvart samfélaginu og því leggist allt á eitt um að þeir gerist öflugir talsmenn þess að alþjóðasamfélagið taki höndum saman gegn áhrifum hlýnandi lofthjúps. Þurrkar í Afríku hafa bein áhrif á heilsu íbúa, ofneysla kjöts í iðnríkjum hefur bein áhrif á heilsufar og framleiðslan veldur aukinni losun gróðurhúsalofttegunda. Aðgangur fólks að hreinu vatni stendur í beinu samhengi við loftslagsbreytingar, og breytingar á veðurfari í heiminum koma á ýmsan hátt niður á heilsufari og lífslíkum fólks. Allt eru þetta atriði sem læknar eiga að hafa skoðun á samkvæmt áliti Jay og Marmot. Þeir hvetja lækna til að láta sérstaklega vel til sín heyra á næstu vikum fram að ráðstefnunni í Kaupmannahöfn svo embættis- og stjórnmálamenn fari ekki í grafgötur um hver skoðun lækna er á hættunni af vaxandi gróðurhúsaáhrifum. LÆKNAblaðið 2009/95 869
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.