Læknablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 59
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
MINNINGARORÐ
Hávar Sigurjðnsson tók
myndina af Snorra Páli
á öldrunarheimilinu
Droplaugarstöðum við
Snorrabraut vorið 2008.
Myndin var birt með viðtali
Hávars við hann í tilefni
90 ára afinælis Læknafélags
íslands (Læknir í 60 ár.
Læknablaðið 2008; 94:
616-7).
sjálfsögðu náðist ekkert samkomulag og þetta
leiddi til hópuppsagna lækna og málinu var síðan
vísað til Kjaradóms (Læknablaðið 1986; 72:120-1).
Þegar úrskurður dómsins lá fyrir á miðju ári
1963, kom í ljós, að kröfur lækna höfðu ekki verið
ástæðulausar, því mér er minnisstætt að laun
okkar unglæknanna fimm- og sexfölduðust. Ég
veit að á engan er hallað, þegar ég fullyrði að
Snorri Páll var öðrum fremur hugmyndafræðing-
ur þeirrar kjarabaráttu, sem þarna fór fram.
Þegar Snorri Páll var kjörinn formaður Lækna-
félags íslands árið 1971, var í vinnslu frumvarp
til laga um heilbrigðisþjónustu. Læknar völdu
Snorra Pál Snorrason til forystu, vegna þess að
þeir treystu honum manna bezt til þess að marka
rétta stefnu og ná samkomulagi við ráðherra og
alþingi. Þetta tókst Snorra Páli og kom það mjög
vel fram í ágætu viðtali við hann fyrir ári síðan (í
Læknablaðinu 2008; 94: 616-7).
Læknar heiðra þá félaga, sem fremstir eru
meðal jafningja, hver á sínu sviði. Mér er ljúft
að rækja þessa skyldu og jafnframt vil ég þakka
Snorra Páli Snorrasyni leiðsögnina í fræðunum.
Kannt þú að framkvæma
spirometriur og lesa úr þeim?
Ef svarið er nei en þú starfar í heilsugæslu ættir þú að skrá þig á hádegisfund á Læknadögum
miðvikudaginn 20. janúar 2010. Þar verður kennt hvernig framkvæma á spirometriur og lesa
úr þeim. Skráning er á www.lis.is. Ef þú kemst ekki á Læknadaga en þarft samt að kunna
þetta, ættir þú að hringja í síma 530 3705 og láta senda þér geisladisk með leiðbeiningum um
framkvæmd og úrlestur spirometriu. Þá má einnig fara á vefslóðina gsk.is/loftfelagid/ og ná þar
í allar upplýsingar.
Fyrir hönd Loftfélagsins, Gunnar Guðmundsson lungnalæknir
Lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline er bakhjarl Loftfélagsins
L
LÆKNAblaðið 2009/95 871