Læknablaðið - 15.11.2010, Síða 19
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKNIR
Lovísa
Baldursdóttir1
hjúkrunarfræöingur
Laura Scheving
Thorsteinsson2
hjúkrunarfræöingur
Gunnar
Auðólfsson3
lýtalæknir
Margrét E.
Baldursdóttir4
hjúkrunarfræðingur
Berglind Ó.
Sigurvinsdóttir3
hjúkrunarfræðingur
Vilborg
Gísladóttir5
hjúkrunarfræðingur
Anna Ólafía
Sigurðardóttir4
hjúkrunarfræðingur
Þráinn
Rósmundsson4
barnaskurölæknir
Lykilorð: brunaslys, börn,
forvarnir, faraldsfræði.
’Gjörgæsludeild
Landspítala,
2landlæknisembættinu,
3lýtalækningadeild
Landspítala,
4Barnaspítala Hringsins
5bráðasviði Landspítala.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Lovísa Baldursdóttir,
Eiríksgötu 19,
101 Reykjavík.
lovisaba@landspitali. is
Brunaslys barna: Innlagnir á
Landspítala 2000-2008
Ágrip
Tilgangur: Að afla upplýsinga um brunaslys
barna sem lögðust inn á Landspítala á níu ára
tímabili, meta hvort efla þurfi forvamir og
endurskoða ákveðna þætti í meðferð.
Aðferðir: I þessari afturskyggnu lýsandi rannsókn
var upplýsingum safnað úr sjúkraskrám um
böm yngri en átján ára sem dvöldu lengur en
sólarhring á Landspítala vegna brunaáverka á húð
á árunum 2000-2008.
Niðurstöður: Af 149 börnum vom 108 drengir og
41 stúlka. Meðalfjöldi innlagna á ári var 16,5 eða
21/100 000. Brunaslys voru algengust hjá fjögurra
ára og yngri (41,6%) og í aldurshópnum 13-16 ára
(45,7%). Hjá meirihlutanum (81%) var útbreiðsla
áverka sl0% af líkamsyfirborði. Helmingur slysa
varð inni á heimili. Sár voru kæld á vettvangi
í 78% tilvika. Áhættuþættir voru til staðar hjá
11,4% bama og hjá 3,4% bama var gmnur um
vanrækslu eða ofbeldi. Helstu brunavaldar voru
heitt vatn og aðrir heitir vökvar (50,3%), þar af
neysluvatn í 12,9% tilvika, eldur í 20,4% tilvika,
þar af gas eða bensín hjá 14,9% barna, og skoteldar
(17,6%). Meðaltími frá komu á bráðamóttöku að
innlögn á barnadeild var 142 mínútur, (25-333).
Meðallegutími var 13 dagar, miðgildið níu dagar
(1-97) að meðtöldum sex dögum á gjörgæsludeild,
miðgildið tveir dagar (1- 48).
Alyktun: Innlögnum vegna brunaáverka hefur
fækkað. Algengustu brunavaldar em heitt vatn,
heitir vökvar, eldur og skoteldar. Flest em slysin
hjá bömum yngri en fjögurra ára og hjá drengjum
13-16 ára. Mikilvægt er að auka öryggi barna á
heimilum og beina forvörnum að áhættuhópum.
Vanda þarf fyrsta mat á útbreiðslu sára og greina
þætti sem hafa áhrif á dvalartíma á bráðamóttöku
og legudeild. Bæta þarf skráningu í sjúkraskrá.
Inngangur
Brunaslys em alvarlegt heilsufarsvandamál víða
í veröldinni og algeng orsök fötlunar og
líkamslýta.1 Orsakir brunaslysa eru tengdar sam-
félagsgerð og því breytilegar eftir löndum og
eru brunaslys tíðust hjá fátækum þjóðum.12
Niðurstöður rannsókna benda til þess að böm
fjögurra ára og yngri séu í mestri hættu, drengir
lendi frekar í bmnaslysum en stúlkur og að
heimilið sé algengasti vettvangur slysanna.2* Heitt
vatn og aðrir heitir vökvar eru algengasta orsök
bruna hjá ungum bömum í vestrænum ríkjum en
eldur hjá vanþróuðum þjóðum.1'z 4-7 Fylgikvillar
stærri brunaáverka eru lífshættulegir og þrátt fyrir
framfarir í meðferð sem hafa lækkað dánartíðni og
sty tt legutíma, þá ber barnið líkamlegar og sálrænar
menjar brunaslyssins allt lífið. Áhrif brrrna-
losts og sýkinga og flókin sárameðferð leiða
til langrar sjúkrahúsdvalar og aðskilnaðar frá
fjölskyldu og vinum. Einnig geta endurhæfing
og lýtaaðgerðir náð yfir ár og áratugi. Þekkt er að
brunaslys hafa áhrif á sálfélagslega líðan barna
og má nefna þunglyndi, kvíða og einangrun9 og
áfallastreituröskun.10
Samanburður rannsókna á brunaslysum er
erfiður vegna ólíkrar aðferðafræði og mismunandi
skilgreiningaogmáþarnefnaaldursviðmið,viðmið
fyrir innlögn á sjúkrahús og talningu legudaga.2
Þrjár rannsóknir á brunaslysum barna á íslandi
hafa verið birtar (tafla I)1113 og samræmast niður-
Tafla I. íslenskar rannsóknir á brunaslysum barna."-'3
Tímabil 1957-1969" 1964-197312 1982-199513
Aldur 12 ára og 12 ára og 15 ára og
yngri yngri yngri
Fjöldi (N) 185 215 290
Innlagnir/ár 14,2 21,5 20,7
Nýgengi eþ eþ 30,4/100 000*
Börn s2 ára eþ 45,1% 61,7%
Börn s4 ára eþ 80,4% 72,8%
TBSA <10% eþ eþ 72,4%
TBSA >20% 7,6%
Meðallegutími 26 dagar 20,7 dagar 12 dagar
Slys á heimili eþ 86,5% 81,4%
- Vatn, vökvar 66% 75,3% 72,1 %
- Neysluvatn eþ eþ 15,2%
- Hveravatn eþ eþ eþ
- Eldur 17% 7,9% 12,4%
- Skoteldar eþ eþ 5,5%
- Bensín, gas eþ 1,4% 5,2
- Snertibruni 5% 4,7% 5,2%
- Ætandi efni 5% 1,9% 1%
- Rafmagn 7% 3,7% 0,3%
eþ = ekki þekkt TBSA = total body surface area burned, heildarlíkamsyfirborð brennt 'Einungis í enskri útgáfu greinarinnar.14
LÆKNAblaðiö 2010/96 683