Læknablaðið - 15.11.2010, Page 27
FRÆÐIGREINAR
Y F I R L I T
Áhrif þyngdar verðandi
mæðra á meðgöngu,
fæðingu og nýbura
Ólöf Jóna
Elíasdóttir1
deildarlæknir
Hildur
Harðardóttir1'2
fæðinga- og
kvensjúkdómalæknir
Þórður
Þórkelsson1’3
barnalæknir
Lykilorð: meðganga, fæðing,
ofþyngd, offita, nýburi.
Ágrip
Tilgangur: Að kanna tíðni fylgikvilla á meðgöngu,
í fæðingu og hjá nýburum kvenna í kjörþyngd, of
þungra og of feitra við upphaf meðgöngu.
Þátttakendur og aðferðir: Rannsóknin er aftur-
skyggn og tilfellaviðmiðuð. Upplýsingum um
þyngd við upphaf meðgöngu var safnað hjá
600 konum; þar af voru 300 í kjörþyngd
(þyngdarstuðull (ÞS) 19,0-24,9), 150 of þungar (ÞS
25,0-29,9) og 150 of feitar (ÞS a30). Tíðni fylgikvilla
var borin saman milli hópanna.
Niðurstöður: Of feitar konur eru líklegri til
að hafa langvinnan háþrýsting (p<0,001) fyrir
þungun, fá meðgönguháþrýsting (p=0,03), með-
göngueitrun (p=0,007), meðgöngusykursýki
(p<0,001), einkenni frá stoðkerfi (p=0,04), að
framkalla þurfi fæðingu (p=0,006) og að fæða með
keisaraskurði (p<0,001), bæði bráða- (p=0,012)
og valkeisaraskurði (p=0,008), samanborið við
mæður í kjörþyngd og ofþyngd. Nýburar of
feitra kvenna eru þyngri (p=0,004), með stærra
höfuðummál (p<0,001) og eru oftar lagðir inn
á nýburagjörgæslu (p=0,004) en börn mæðra í
kjörþyngd og ofþyngd.
Ályktun: Offita hefur óæskileg áhrif á heilsufar
verðandi mæðra og bama þeirra. Áhrifin koma
fram á meðgöngu, í fæðingu og hjá bömum
þeirra. Mikilvægt er að konur á bameignaraldri
fái upplýsingar um hvaða áhrif offita hefur á
meðgöngu, fæðingu og nýbura.
Inngangur
Ofþyngd og offita em vaxandi vandamál hér
á landi líkt og í öðmm vestrænum löndum
og eru konur á bameignaraldri þar ekki
undanskildar.1 Samkvæmt upplýsingum úr hand-
bók Hjartaverndar er algengi þyngdarstuðuls yfir
25 kg/m2 um 28% fyrir konur á aldrinum 20-29 ára,
42% fyrir konur 30-39 ára og 55% fyrir konur 40-49
ára.2 Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að ofþyngd
og offita verðandi mæðra getur haft neikvæð áhrif
á meðgöngu, fæðingu og nýburaA8 Sýnt hefur
verið fram á að of feitar konur eru líklegri til að
vera með háþrýsting fyrir þungun og þær eru
einnig líklegri til að fá háþrýsting á meðgöngu
og fá frekar meðgöngueitrun en konur í kjör-
þyngd.3,913 Meðgöngusykursýki er hins vegar
algengasti fylgikvilli ofþyngdar/offitu þungaðra
kvenna.11' 1416 Ómeðhöndluð sykursýki á með-
göngu getur haft í för með sér óhóflega þyngdar-
aukningu barns, legvatn verður of mikið (poly-
hydramnion) auk vandamála við fæðingu og á
nýburaskeiði.3'1 17•18
Offita móður, án meðgöngusykursýki, hefur
verið tengd fæðingum þungbura3 en þungburi
er yfirleitt skilgreindur sem barn með fæð-
ingarþyngd &4500 g.19 Konur í ofþyngd og með
offitu eru líklegri til að þurfa inngrip í fæðingu,
svo sem framköllun fæðingar,10 fæðingu með
keisaraskurði1'3'14'15 og fæðingu með sogklukku
eða töng10'20'21 samanborið við konur í kjörþyngd.
Þungburar hafa verri horfur síðar á ævinni hvað
varðar líkur á offitu og sjúkdómum tengdum
henni.22, 23 Framköllun fæðingar og fæðing með
keisaraskurði eru algengari hjá of feitum konum
en konum í kjörþyngd.3, u'16'24-26 Líkur á axla-
klemmu í fæðingu aukast ef barn er þungburi27
og blóðsykurfall á nýburaskeiði er algengara,
einkum ef móðirin hefur sykursýki.1-3'14'17'18'25
Böm sykursjúkra kvenna hafa auknar líkur á axla-
klemmu samanborið við jafn þung böm kvenna
án sykursýki.28 Offita mæðra hefur hins vegar ekki
jafn skýr tengsl við skaða á fæðingarvegi, axla-
klemmu barns, lágt Apgarstig, blóðsykurfall barns
og þörf fyrir innlögn barns á nýburagjörgæslu.3'10'
11,16, 24,29
Vandamál of þungra kvenna tengd meðgöngu
em einnig til staðar fyrir þungun, því frjósemi er
skert og tíðni fósturláta er aukin.30 Tíðni fóstur-
galla er aukin hjá fóstrum of þungra kvenna, eink-
um eru það gallar í miðtaugakerfi, svo sem klofinn
hryggur og hjartagallar, auk fjölkerfa fóstur-
galla.6
Þar sem nýgengi ofþyngdar og offitu fer vax-
andi hér á landi ákváðum við að skoða fylgikvilla
meðal of þungra og of feitra kvenna á meðgöngu
og í fæðingu og kanna áhrif þeirra á fæðingar-
þyngd nýbura og tíðni fylgikvilla á nýburaskeiði.
LÆKNAblaðið 2010/96 691