Læknablaðið - 15.11.2010, Qupperneq 44
UMRÆÐUR O G
AÐALFUNDUR
F R É T T I R
L í
Læknar eru verðmætur hópur
„Við þurfum að þora að horfast í augu
við breyttar aðstæður," sagði Guðbjartur
Hannesson ráðherra heilbrigðis- og félags-
mála í ávarpi á aðalfundi Læknafélags
íslands við setningu fundarins fimmtu-
daginn 21. október.
Þessi orð ráðherrans féllu sem rökstuðningur við
niðurskurð fjármuna til landsbyggðarsjúkrahúsa
en fundarmenn gagnrýndu harðlega aðgerðir
ríkisstjórnarinnar á þessu sviði. „Samgöngur hafa
stórbatnað á undanförnum áratugum, eftirspurn
eftir þjónustu hefur breyst, sumt þurfum við
að verja og annað er betur komið annars staðar.
Þetta er það sem við glímum við í dag," sagði
ráðherrann og lagði ennfremur mikla áherslu
á samstarf og samvinnu við læknastéttina í
framtíðinni.
Ráðherrann játaði fúslega að sumar niður-
skurðartillögur fjárlagafrumvarpsins gengju
lengra en við mætti una og því yrði að draga í land
með ákveðna hluta þess. „Niðurskurðartillögur
um sjúkrahúsið á Húsavík ganga hreinlega ekki
upp miðað við núverandi atvinnuástand sem
þar ríkir." Ráðherrann sagði ennfremur að ekki
þjónaði neinum tilgangi að etja saman læknum
landsbyggðarinnar og höfðborgarsvæðisins og
lýsti sig reiðubúinn til samstarfs við lækna um
að leysa þann ágreining sem uppi væri. „Þið eruð
fagfólkið, þið hafið kunnáttuna og þekkinguna,
Hávar ég hef aðstöðuna til að hrinda hlutunum í
Sigurjónsson framkvæmd."
Fundarmenn sækja sér kjörseðil fyrir stjórnarkjör.
Ráðherrann var greinilega mættur á fund
lækna til að ná þeim á sitt band og af undirtektum
fundarmanna að dæma var ekki annað að heyra
en honum hefði tekist það ætlunarverk sitt. Hann
lagði áherslu á að læknar væru verðmætur hópur
fyrir íslenskt samfélag og að stjórnvöld yrðu að
taka mið af því. „Þið eruð eftirsóttur vinnukraftur
og getið unnið hvar sem er í veröldinni."
Hann tók síðan sérstaklega fram að hann væri
ekki í pólitík til að reisa sjálfum sér persónulega
minnisvarða. „Mikilvægt er að marka stefnu
til lengri tíma, þannig að allir viti með góðum
fyrirvara hvað sé framundan."
Ályktað um mikilvæg mál
Seinni fundardagurinn var tvískiptur þar sem
fyrri hluta dags var unnið í vinnuhópum að
lokafrágangi ályktana sem síðan voru ræddar
á fundinum og bornar upp til samþykktar. I
ályktunum koma skýrt fram áhyggjur aðalfundar
yfir niðurskurði á fjármunum til heilbrigðismála
og hver áhrif slíkt muni hafa á framboð og gæði
þjónustunnar. Þá lítur aðalfundurinn það mjög
alvarlegum augum að almennum læknum og
kandídötum hafi fækkað um 25 af hundraði á
undanförnu ári. Aðalfundurinn lýsir því yfir að
standa beri vörð um fjölbreytileg rekstrarform
í heilbrigðisþjónustu. Aðalfundurinn skorar á
heilbrigðisyfirvöld að koma á samtengdri sjúkra-
skrá á landsvísu og samræma skráningu í
heilbrigðisþjónustu. í ítarlegri ályktun í fjórum
liðum er lagt til við heilbrigðisstofnanir og stjóm-
völd á hvaða atriði skuli leggja mesta áherslu
við framtíðarstefnumótun sjúkrahúsþjónustu. Er
hvatt til samstarfs við Læknafélag íslands í þessu
efni.
Þá telur aðalfundurinn að sameina beri land-
læknisembætti og Lýðheilsustöð undir merki
landlæknis. í ályktuninni kemur fram að LÍ álíti
það skilyrði að æðsti embættismaður eftirlits með
lækningum landsmartna sé læknir.
Aðalfundurinn skorar á Alþingi að sam-
þykkja þingsályktunartillögu um takmörkun
á transfitusýrum í matvælum á íslandi. Aðal-
fundurinn skorar jafnframt á stjórnvöld að
banna notkun gúmmíkurls sem inniheldur
krabbameinsvaldandi efni og önnur eiturefni, á
íþróttavöllum og leiksvæðum.
Þá segir í ályktun um læknisþjónustu utan
sjúkrahúsa að áformaður niðurskurður ríkisins
708 LÆKNAblaðið 2010/96