Læknablaðið - 15.01.2012, Side 41
UMFJÖLLUN O G GREINAR
„Fjöldi sjúklinga var nánast sá
sami.fyrir, á nteðan og eftir þetta
tímabil tilvísana frá 2006-2008,"
sagði Þórarinn Guðnason hjartasér-
fræðingur.
„Það er engin sam-
Itæfing íþví Imernig
hiutirnir eru skráðir
í heilbrigðiskerfinu,"
sagði Kristján Guð-
mundsson háls-, nef- og
eyrnalæknir.
„Þarf sannarlega aðgera
heimilislækningar að eftir-
sóknarverðari starfsvett-
vangi fyrir unga lækna
en nú er raunin," sagði
Gunnlaugur Sigurjðnsson
heilsugæslulæknir.
kerfinu væru. „Það er engin samhæfing
í því hvernig hlutirnir eru skráðir og um
þetta hafa verið haldnir óteljandi fundir
án nokkurs teljandi árangurs. Orðrétt
segir Elisabet Hanson, einn skýrsluhöf-
unda, í svari við leiðréttingu Þórarins
Guðnasonar sem hann skýrði frá hér á
undan:
The data quality in the Icelandic Health
Care system is very poor overall, which is
also described in the report, and the Min-
istry is now addressing this as one of the
key improvement areas.
Kristján fór síðan yfir ýmsar töflur
skýrslunnar þar sem sýnt er hvernig
kostnaður við heilbrigðiskerfið skiptist á
milli einstakra hluta þess og sagði það í
sjálfu sér býsna athyglisvert og fróðlegt.
„Ég hef hins vegar ekki fengið nein svör
við því hvort tölurnar fyrir hvert ár
séu uppreiknaðar eða á kostnaði hvers
árs. Þetta er lykilatriði og lélegt að ekki
skuli gerð grein fyrir þessu í inngangi
skýrslunnar."
Kristján benti að lokum á að í
skýrslunni væri tiltekin 22% hækkun
vegna sérfræðilæknaþjónustu í næstu
fjárlögum og þessar tölur væru notaðar
til að færa rök fyrir því hversu kostn-
aðarsamur óheftur aðgangur sjúklinga
að sérfræðilæknisþjónustu væri. „Þessu
var slegið upp í fjölmiðlum í haust þegar
skýrslan kom út. Á þessu er einföld
skýring: Vorið 2008 var gerður nýr
samningur við sérfræðilækna til tveggja
ára sem fól í sér kostnaðarhækkun sem
var mætt á fjáraukalögum í árslok 2008
en kostnaðaraukinn fylgdi svo ekki með
inn í fjárlagagrunn fyrir 2009. Næstu ár
á eftir var aldrei full fjárheimild fyrir
gerðum samningum og nú fyrst er verið
að leiðrétta grunninn."
Heimilislæknaskortur er staðreynd
Gunnlaugur Sigurjónsson heilsugæslu-
læknir í Reykjavík og formaður stjórnar
Læknavaktarinnar ræddi í sinni fram-
sögu um ástandið í heilsugæslunni og
sagði ekki hægt að átta sig á því hvernig
tölur í skýrslunni væru fundnar, þar sem
ekki væri gerð skýr grein fyrir hvaða
kostnaðarliðir úr heilsugæslunni væru
teknir inn. Gunnlaugur studdist við upp-
lýsingar úr rannsókn sem Lúðvík Ólafs-
son lækningaforstjóra heilsugæslunnar í
LÆKNAblaðið 2012/98 41