Læknablaðið - 15.09.2012, Síða 4
^ 9. tölublað 2012
LEIÐARAR
447
Þórunn Jónsdóttir
Tækjabúnaður Land-
spítala: umhyggja -
fagmennska - öryggi
- framþróun?
Blóöþrýstingsmælar virka ekki,
manséttur eru slitnar, leka, eru í
röngum stæröum og þar fram eftir
götunum. Getum við fullyrt við
sjúklinga okkar aö þeir fái bestu
og öruggustu þjónustu sem völ er
á? Erum við á braut framþróunar?
449
Karl Andersen
Kransæðahjáveitu-
aðgerðir í nútíð og fortíð
Aðgerðartækni, taktstillandi lyf,
blóðþynningarlyf og gjörgæsla hafa
áhrif á hjáveituaðgerðir. Rannsóknir
eru nauðsynlegar til þess að meta
þessa þætti til að tryggja öryggi
sjúklinga.
FRÆÐIGREINAR
451
Hannes Sigurjónsson, Sólveig Helgadóttir, Sæmundur J. Oddsson,
Martin Ingi Sigurðsson, Arnar Geirsson, Þórarinn Arnórsson,
Tómas Guðbjartsson
Árangur kransæðahjáveituaðgerða á íslandi 2002-2006
Þessi rannsókn sýnir að dánartíðni eftir kransæðahjáveitu á íslandi er lág og
tíðni flestra fylgikvilla er sambærileg við erlendar rannsóknir. Þetta á bæði við
um aðgerðir á sláandi hjarta og með aðstoð hjarta- og lungnavélar.
459
Katrín Jónsdóttir, Svanheiður Lóa Rafnsdóttir, Þórdis Kjartansdóttir,
Höskutdur Kristvinsson, Þorvaldur Jónsson, Kristján Skúli Ásgeirsson
Tíðni og árangur tafarlausra brjóstauppbygginga á
Landspítala 2008-2010
Heildarfjöldi brjóstnáma árunum 2008-2010 var 319 en brjóstauppbyggingar
voru 157 og af þeim voru 98 (62%) tafarlausar. Tafarlausar uppbyggingar voru
því gerðar hjá 31% allra sem gengust undir brjóstnám en 55% hjá 50 ára eða
yngri. Til samanburðar var hlutfallið 5% á árunum 2000-2005.
465
Ingibjörg Kristjánsdóttir, Guðrún Reimarsdóttir, Davíð O. Arnar
Notagildi ígræddra taktnema við mat á óútskýrðu yfirliði
og hjartsláttaróþægindum
Rannsóknin náði til 18 sjúklinga sem fengið hafa ígræddan taktnema
hérlendis. Af þessum 18 eru 5 enn með tækið ígrætt og ekki komin endanleg
niðurstaða af vöktun hjartatakts hjá þeim.
471
Þorsteinn Viðar Viktorsson, Hildur Einarsdóttir, Elisabet Benedikz,
Bjarni Torfason
Tvö sjúkratilfelli
Skyndilegur þroti í andliti og þyngslaverkur yfir
brjóstkassa eftir tannviðgerð
Húðbeðsþemba á andlits- og hálssvæði er sjaldgæfur fylgikvilli tannviðgerða,
einkum eftir tannúrdrátt. Einnig getur loftmiðmæti hlotist af slíku inngripi.
Orsökin er yfirleitt innblástur lofts í mjúkvefi munnhols frá tækjum tannlækna.
Ástandið gengur oft yfir sjálfkrafa, en getur valdið lífshættulegum fylgikvillum.
444 LÆKNAblaðið 2012/98