Læknablaðið - 15.09.2012, Qupperneq 13
RANNSÓKN
Tlmi (mánuðir)
Mynd 2. Heildar- (a) og sjúkdómasértæk lifun (b) sjúklinga sem gengust undir kransæðahjdveituaögerö d tslandi 2002-2006. Lífshorfur eru sýndar samanfyrir sjúklinga sem
gengust undir aögerð með HLV og SH. Einnig eru sýnd 95% 'óryggism'órk (brotnar Knur).
Breytur voru skráðar í forritið Excel (Microsoft Corp, Redmond,
WA) og það notað við lýsandi tölfræði. Allir tölfræðiútreikningar
voru gerðir í R, útgáfu 2.5.10 (R foundation for Statistical
Computing, Vín, Austurríki) og miðast marktæki við p gildi <0,05.
Við samanburð hópa var notast við t-próf fyrir samfelldar breytur
og Fischer Exact eða kí-kvaðrat próf fyrir hlutfallsbreytur. Þar sem
dreifing aðgerðartíma og blæðingar eftir aðgerð var skekkt voru
þessar brey tur bornar saman með Wilcoxon ranked sum-prófi sem
ekki krefst normaldreifingar. Aðferð Kaplan-Meier var notuð til að
áætla bæði heildarlifun (overall survival) og sjúkdómasértæka lifun
(disease specific survival) og voru dánarorsakir skráðar samkvæmt
dánarvottorðum. Forspárþættir skurðdauða voru metnir með
lógistískri aðhvarfsgreiningu og forspárþættir langtímalifunar
voru metnir með fjölbreytugreiningu Cox þar sem leiðrétt var fyrir
bjagandi breytum á borð við aldur og EuroSCORE. Allar breytur í
endanlega líkaninu stóðust kröfu um hlutfallsbil (proportionality).
Áður en rannsóknin hófst fengust öll tilskilin leyfi frá Vísinda-
og siðanefnd, Persónuvernd og frá framkvæmdastjóra lækninga á
Landspítala.
Niðurstöður
Alls voru gerðar 720 aðgerðir, 513 á HLV og 207 á SH og voru karlar
591 (82%) og konur 129 (18%). Á þeim 5 árum sem rannsóknin
náði til voru að meðaltali gerðar 144 kransæðaaðgerðir á ári (bil
133-153) sem gefur nýgengi 49/100.000 á ári fyrir allt tímabilið.
Tæpur þriðjungur (29%) aðgerðanna voru gerðar á SH, flestar
árið 2004 (36%) en fæstar árið 2002 (24%) (tafla I). Tafla I sýnir
samanburð á fjölda kransæðaaðgerða og kransæðavíkkana á
rannsóknartímabilinu og hlutfall sjúklinga sem fengu stoðnet. Að
meðaltali gengust 599 sjúklingar undir kransæðavíkkun árlega og
fengu 86% þeirra að minnsta kosti eitt stoðnet í kransæðar. Ekki
urðu marktækar breytingar í fjölda kransæðahjáveituaðgerða á
tímabilinu né heldur fjölda kransæðavíkkana með eða án stoðnets
(p>0,l).
f töflu II sést samanburður á sjúklingum í SH- og HLV-hópi.
Meðalaldur var sambærilegur í hópunum en karlar voru marktækt
fleiri í HLV-hópi. Algengi áhættuþátta kransæðasjúkdóms, þar á
meðal háþrýstings, sykursýki og blóðfituröskunar var sú sama
í báðum hópum, sömuleiðis líkamsþyngdarstuðull, notkun
Tafla II. Samanburður á sjúklingum sem gengust undir kransæðahjáveituaðgerð á
Landspítala 2002-2006, bæði aðgerðir á sláandi hjarta (SH-hópur) og með hjarta-
og lungnavél (HLV-hópur). Fjöldi (%) eða meðaltöl með staðalfráviki.
Breyta Allir SH-hópur HLV- p-gildi
sjúklingar hópur
n = 720 n = 207 n = 513
Aldur, ár ± stfv. 66,4±9,3 66,4±9,2 66,4±9,3 0,95
Karlkyn 591 (82) 160(77) 431 (84) 0,04
Áhættuþættir kransæðasjúkdóms
Háþrýstingur 443 (60) 130(61) 313(63) 0,73
Sykursýki 109 (15) 29 (14) 80 (16) 0,67
Blóöfituhækkun 421 (58) 120(58) 301 (58) 0,93
Saga um reykingar 174(24) 45 (22) 129(25) 0,37
Líkamsþyngdarstuðull (kg/m2) 28,0 28,2 ± 4,2 27,9 ±4,1 0,37
Lyf tekin <5 dögum fyrir aðgerð
Hjartamagnýl 513(71) 150 (72) 363 (71) 0,71
Blóðfitulækkandi statín 529 (73) 148 (71) 381 (74) 0,50
Beta blokkerar 482 (67) 141 (68) 341 (66) 0,74
Priggja æða hjartasjúkdómur 628 (87) 176(85) 452 (88) 0,32
Þrengsli í vinstri höfuðstofni 152(21) 44 (21) 108(21) 0,97
Útfallsbrot hjarta <35% 59(8) 17(8) 42(8) 0,89
Lungnateppa (COPD) 55(8) 14(7) 41 (8) 0,70
NYHA flokkur III eða IV 499 (69) 160(77) 339 (66) 0,004
EuroSCORE (st.) 4,9±3,3 5,2 ± 3,5 4,8 ± 3,2 0,23
COPD = chronic obstructive pulmonary disease
hjartalyfja fyrir aðgerð og EuroSCORE. Hins vegar voru marktækt
fleiri sjúklingar í SH-hópi í NYHA-flokki III og IV.
AIls var 23 aðgerðum á sláandi hjarta breytt í hefðbundna
aðgerð með HLV, og voru algengustu ástæðurnar lágur blóð-
þrýstingur þegar hjartanu var lyft (n=15), erfiðleikar við að komast
að kransæðum á bakvegg hjartans (n=6) eða kransæðar staðsettar
djúpt í hjartavöðva (n=2).
í töflu III eru upplýsingar um aðgerðirnar og legutíma eftir
aðgerð, auk blæðingarmagns í brjóstholskera. Bráðaaðgerðir voru
LÆKNAblaðiö 2012/98 453