Læknablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 19
Tíðni og árangur tafarlausra brjóstaupp-
bygginga á Landspítala 2008-2010
Katrín Jónsdóttir læknir1, Svanheiöur Lóa Rafnsdóttir læknir1, Þórdís Kjartansdóttir læknir1, Höskuldur Kristvinsson læknir1, Þorvaldur Jónsson
iæknir1, Kristján Skúli Ásgeirsson læknir1
AGRIP
Inngangur: Möguleikar íslenskra brjóstakrabbameinssjúklinga til að
gangast undir tafarlausa brjóstauppbyggingu hafa aukist verulega á
undanförnum árum, einkum frá lokum árs 2007. Markmið þessarar
rannsóknar var að kanna tíðni og snemmkomna fylgikvilla tafarlausra
brjóstauppbygginga á Landspítala á árunum 2008-2010 og bera
niðurstöðurnar saman við einu birtu rannsókn á þessu efni sem nær til
heillar þjóðar og er frá Bretlandi (NMBRA).
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er afturskyggn þýðisrannsókn á öllum
konum sem gengust undirtafarlausa brjóstauppbyggingu á Landspítala á
árunum 2008-2010.
Niðurstöður: Heildarfjöldi brjóstnáma á tímabilinu var 319 en
brjóstauppbyggingar voru 157 og af þeim voru 98 (62%) tafarlausar.
Tafarlausar uppbyggingar voru því gerðar hjá 31% allra sem gengust
undir brjóstnám en 55% hjá 50 ára og yngri. Til samanburðar var
heildarhlutfallið 5% á árunum 2000-2005. Meðalaldur kvenna sem
gengust undir tafarlausa uppbyggingu á rannsóknartímabilinu var 49
ár (29-69). Tafarlausar vöðvaflipauppbyggingar voru 25 (26%) en aðrar
uppbyggingar voru gerðar með ígræði. Fylgikvillar í legu í kjölfar aðgerðar
urðu eftir 12 (12%) tafarlausar uppbyggingar, þar af þurftu 5 sjúklingar
enduraðgerð (þrír vegna blæðinga, einn vegna húðdreps og annar vegna
yfirvofandi vöðvaflipadreps). Þörf var á endurinnlögn eftir útskrift í 14
(14%) tilfellum. Eftir útskrift urðu vægir fylgikvillar sem ekki kröfðust
endurinnlagnar í 37 (38%) tilfellum. Almennt voru fylgikvillar sambærilegir
og f NMBRA en flipauppbyggingar voru mun algengari í þeirri rannsókn
(63% á móti 26%).
Ályktun: Veruleg aukning hefur orðið á tafarlausum brjóstauppbyggingum
á Landspítala (frá 5% í 31 %). Almennt eru þessar aðgerðir áhættulitlar og
tíðni fylgikvilla svipuð og í NMBRA.
Inngangur
’Skurðlækningadeild
Landspítala.
Fyrirspurnir:
Kristján Skúli Ásgeirsson
krískuli@landspitali. is
Greinin barst:
11. janúar 2012, samþykkt
til birtingar: 28. júní 2012.
Engin hagsmunatengsl
gefin upp.
Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein kvenna
og meðalaldur við greiningu á íslandi er 61 ár.1 Aldurs-
staðlað nýgengi brjóstakrabbameins hefur farið hækk-
andi og er nú um 90/100.000 á íslandi en aldursstöðluð
dánartíðni er um 18/100.000.1-2 Árið 2010 greindust um
það bil 230 brjóstakrabbameinstilfelli hér á Iandi (þar
með talið setkrabbamein) og hafa horfurnar batnað
talsvert á síðustu tveimur áratugum, bæði hérlendis
og í nágrannalöndum okkar. Þannig hefur dánar-
tíðnin á íslandi lækkað um 23% þrátt fyrir um 14%
hækkun á nýgengi. Horfurnar hér á landi eru betri
en í flestum viðmiðunarlöndum okkar og ætla má
að um 80% íslenskra kvenna læknist eftir greiningu
sjúkdómsins.1-2-3 Af þessum ástæðum er í vaxandi mæli
farið að rannsaka aðra þætti en lífshorfur. Rannsóknum
á áhrifum meðferðar á lífsgæði hefur fjölgað og hafa
margar þeirra sýnt að brjóstauppbyggingar geti haft
jákvæð áhrif á lífsgæði, líkamsmynd og andlega
heilsu.4-5-6
Brjóstauppbyggingu er hægt að gera í sömu aðgerð
og brjóstnámið og er þá kölluð tafarlaus, en í síðbúinni
brjóstauppbyggingu er þetta gert í aðskildum aðgerð-
um. Tafarlausa brjóstauppbyggingu er hægt að gera
með nokkrum aðferðum. Hægt er að setja ígræði beint
undir brjóstvöðva þegar möguleiki er á húðsparandi
brjóstnámi, annars er notaður vefjaþenjari fyrst sem
síðan er skipt út fyrir ígræði með annarri aðgerð. Einnig
er að hægt að gera brjóstauppbyggingu með eigin vef,
einna helst með fitu, vöðva og húð af neðri hluta kviðar
(TRAM/DIEP) og hins vegar með notkun bakfellsvöðva
(latissimus dorsi) ásamt fitu og húð ofan á honum/
Víða í nágrannalöndum okkar hefur tíðni tafarlausra
brjóstauppbygginga aukist, en ástæðan fyrir því er
meðal annars sú að rannsóknir sýna að þær eru almennt
áhættulitlar, seinka ekki eftirmeðferð og hafa ekki áhrif
á endurkomutíðni sjúkdómsins.8-11 Ennfremur sækjast
konur í vaxandi mæli eftir þessum aðgerðum frekar en
síðbúnum brjóstauppbyggingum.12
Með nýlegri ráðningu sérhæfðra brjóstaskurðlækna
á Landspítala hafa möguleikar íslenskra brjóstakrabba-
meinsssjúklinga til að gangast undir tafarlausa brjósta-
uppbyggingu aukist verulega, einkum frá árinu 2008.
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna fjölda og
árangur tafarlausra brjóstauppbygginga á Landspítala
á árunum 2008 til 2010 og bera saman við bresku rann-
sóknina NMBRA (National Mastectomy and Breast
Reconstruction Audit), en þetta er eina lýðgrundaða
framsýna rannsóknin á sambærilegum sjúklingahópi.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin er afturskyggn þýðisrannsókn á öllum
konum sem gengust undir tafarlausa brjóstauppbygg-
ingu á Landspítala á árunum 2008-2010.
LÆKNAblaðið 2012/98 459