Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2012, Page 25

Læknablaðið - 15.09.2012, Page 25
RANNSÓKN Notagildi ígræddra taktnema við mat á óútskýrðu yfirliði og hjartsláttaróþægindum Ingibjörg Kristjánsdóttir læknir, Guörún Reimarsdóttir lífeindafræðingur, Davíö O. Arnar læknir ÁGRIP Tilgangur: Yfirlið eru algeng og getur reynst erfitt að greina orsök þeirra. Markmið rannsóknarinnar var að kanna frumárangur af notkun ígræddra taktnema við mat á orsökum óútskýrðra yfirliða og hjartsláttarþæginda. Efniviður/aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn og náði til 18 sjúklinga sem fengið hafa ígræddan taktnema hérlendis. Af þessum 18 eru 5 enn með tækið ígrætt og ekki komin endanleg niðurstaða af vöktun hjartatakts hjá þeim. Þessir sjúklingar höfðu farið í gegnum ítarlegar rannsóknir án þess að skýring hefði fundist og var því um valinn hóp einstaklinga að ræða. Niðurstöður: Af þeim 13 sjúklingum þar sem vöktun hjartatakts var lokið var meðalaldur 65±20 ára. í öllum tilfellum nema einu var taktnemi hafður inni þar til skýring á einkennum var fundin eða rafhlaða kláraðist, meðaltími í sjúklingi var 20±13 mánuðir. Óútskýrt yfirlið var algengasta ábendingin, eða hjá 11 sjúklingum, en hjá hinum tveimur vartækið sett inn vegna óútskýrðra hjartsláttaróþæginda. Hjá fjórum fannst merki um sjúkan sinushnút, hjá þremur ofansleglahraðtaktur og í einu tilfelli sleglahraðtaktur. Hjá þremur sjúklingum var hægt að útiloka truflun á hjartatakti sem orsök einkenna þar sem reglulegur sinustaktur sást samfara dæmigerðum einkennum. Tveir sjúklingar fengu engin einkenni á meðan þeir voru með taktnemann. Af þeim 5 sjúklingum sem eru enn með taktnemann inni og vöktun enn í gangi var ábendingin yfirlið hjá þremur en hjá tveimur er tækið notað til að fylgjast með árangri meðferðar á hjartsláttartruflunum. Ályktanir: Þessar frumniðurstöður sýna fram á skýran ávinning af notkun ígrædds taktnema við rannsóknir á óútskýrðum yfirliðum og hjartsláttaróþægindum. Inngangur Lyflækningasviði Landspítala Hringbraut. Fyrirspurnir: Davíð O. Arnar davidar@landspitali.is Greinin barst: 1. janúar 2012, samþykkt til birtingar 7. ágúst 2012. Engin hagsmunatengsl gefin upp. Yfirlið er nokkuð algengt einkenni og lætur nærri að um 1% koma á bráðamóttökur séu vegna þessa vanda- máls.1,2 Oft eru orsakir yfirliða ekki af alvarlegum toga en stöku sinnum geta þær þó verið lífshættulegar, sér í lagi ef vandamálið tengist undirliggjandi hjartasjúk- dómi.3'4 Undir slíkum kringumstæðum geta hættulegar hjartsláttartruflanir verið orsakavaldur yfirliðs. Það getur hins vegar verið erfitt að greina þessar hjart- sláttartruflanir. Langur tími getur liðið á milli einkenna og hjartataktur er í mörgum tilfellum algerlega eðli- legur inni á milli. Greining á meinalífeðlisfræði yfirliða getur þar af leiðandi verið vandasöm og talið er að í allt að fimmtungi tilfella sé orsökin óútskýrð þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir.56 Ef grunur er um hjartsláttartruflun sem orsök yfirliðs er ábending fyrir frekari rannsóknum. Þá er gjarnan byrjað á nánari athugun á hjartatakti með 24 klukkustunda Holter-sírita. Slíka rannsókn er auðvelt að framkvæma og aðgengi að þeim gott. Næsta skref, ef 24 klukkustunda Holter gefur ekki niðurstöðu, er oft svokallaður 14 daga hjartsláttarsíriti (event recorder). Slíkar rannsóknir skila þó takmörkuðum árangri ef mjög langt er á milli einkenna. ígræddur taktnemi (implantable loop recorder) er athyglisverð og tiltölulega nýleg rannsóknaraðferð til vöktunar á hjartatakti.7 Taktneminn er á stærð við USB-minniskubb (mynd 1) og er komið fyrir undir húð miðlægt framan á bringu með einfaldri aðgerð. Tækið vaktar hjartsláttinn stöðugt og geymir frávik frá eðlilegum hjartatakti í minni. Skilmerki um þau frávik Mynd 1. ígræddur taktnemi er rf stærð við USB-minniskubb. sem geyma á eru forritað í tækið í hverju tilfelli fyrir sig. Hverju fráviki fylgir einnar leiðslu hjartalínurit sem unnt er að skoða á skjá og prenta út. Mögulegt er að sækja þessar upplýsingar hvenær sem er með sérstökum tölvubúnaði (implantable electronic device programmer), líkt og gert er þegar fylgst er með gangráðum og bjargráðum. Þessi tækni er því mikilvæg viðbót við rannsóknir hjá einstaklingum með óútskýrð yfirlið og hjartsláttaróþægindi. ígræddir taktnemar hafa verið í notkun hérlendis um nokkurra ára skeið. Markmið þessarar samantektar var að kanna ábendingar og frumávinning af notkun þeirra á Landspítala. LÆKNAblaðið 2012/98 465

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.