Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2012, Page 27

Læknablaðið - 15.09.2012, Page 27
RANNSÓKN Nýleg kostnaðargreining á notkun ígrædds taktnema hjá þeim sem hafa endurtekin óútskýrð yfirlið eða grun um að yfirlið geti verið af völdum hjartsláttartruflana styður þessa nálgun.7 í vissum tilfellum hefur verið erfitt að greina milli takttruflana frá efri og neðri hólfum hjartans með þessari tækni. Sömuleiðis geta truflanir í línuriti sem og yfirskynjun á T-bylgjum jafnframt torveldað úrlestur á hjartaritinu. Geymsluminnið er takmarkað en auðvelt er að tæma það við úrlestur á tækinu og endurnýta. Ekki líkar öllum sjúklingum jafn vel að hafa tækið undir húð á bringunni, en þó það sé tiltölulega fyrirferðarlítið getur það verið áberandi hjá grönnu fólki. Þessi tækni hefur verið nokkuð rannsökuð erlendis og hefur ávinningur af notkun tækjanna hjá sjúklingum með óútskýrð yfirlið verið svipaður og reynsla okkar hérlendis. I einni rannsókn, þar sem val á sjúklingum sem fengu ígræddan taktnema var takmarkað við þá sem höfðu undirgengist ítarlegar rannsóknir vegna óútskýrðs yfirliðs, leiddi notkun hans til ákveðinnar niðurstöðu í 88% tilfella.8 Samantekt nokkurra rannsókna, með samtals 247 sjúklingum, sýndi að af þeim sem fengu yfirlið meðan þeir voru með tækið voru 52% með hægatakt, 11% hraðtakt og 37% enga takttruflun á meðan á einkennum stóð.9 Nýlega voru birtar niðurstöður stærstu rannsóknar sem til þessa hefur verið gerð á notagildi ígrædds taktnema, PICTURE-rannsókninni.10 Þessi rannsókn tók til yfir 500 sjúklinga í 10 Evrópulöndum og ísrael en þessir sjúklingar voru með óútskýrð yfirlið og höfðu leitað til margra sérfræðinga, oftast hjarta- og taugalækna, og farið í gegnum margar rannsóknir (á bilinu 9-20) áður en til notkunar á ígræddum taktnema kom. í langflestum tilfellum Ieiddi takt- neminn til greiningar á orsökum einkenna eða í 78% tilfella. Með hliðsjón af hve miklum tíma, fjármagni og vinnu hafði verið varið í rannsóknir áður en ígræddur taktnemi var settur inn, leiddu rannsakendur hugann að því hvort rétt væri að mæla með því að nota tækið fyrr í rannsóknarferlinu en nú er gert. Evrópusamtök hjartalækna gáfu út klínískar leiðbeiningar fyrir rannsóknir á yfirliði árið 2009 og er í þeim sérstaklega komið inn á notkun ígræddra taktnema.11 Þar segir að íhuga eigi notkun ígrædds taktnema hjá þeim sem hafa endurtekin yfirlið án þess að skýring hafi fengist þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir, sem er ekki ósvipað og hefur tíðkast hérlendis fram til þessa. Þá er einnig tekið fram að hjá hópi sjúklinga sem fá yfirlið en eru taldir vera í hárri áhættu fyrir skyndidauða ætti að íhuga notkun ígrædds taktnema snemma í rannsóknarferlinu. Til þessa hóps teljast meðal annars þeir sem fengu yfirlið við áreynslu eða liggjandi, höfðu hjartsláttaróþægindi við yfirliðið, voru með fjölskyldusögu um skyndidauða eða verulega óeðlilegt 12 leiðslu hjartalínurit. Rannsóknir hafa hins vegar sýnt fram á ákveðið misræmi milli notkunar og ábendinga fyrir notkun á ígræddum taktnema.12 Þrátt fyrir áðurnefndar klínískar leiðbeiningar frá Evrópsku hjartalæknasamtökunum um notkun á ígræddum taktnema við rannsóknir á óútskýrðu yfirliði virðist sjaldnar til hans gripið en ætti að gera. Mögulegar skýringar á þessu voru taldar vera meðal annars hár kostnaður við ígræddan taktnema og visst umfang við eftirlit þessara sjúklinga. Megintakmörkun þessarar könnunar er fáir sjúklingar en eigi að síður teljum við að hún gefi ákveðna vísbendingu um gagnsemi notkunar þessara tækja hérlendis þó víðtækari ályktanir verði tæpast dregnar. Okkar niðurstöður eru þó að mörgu leyti samhljóða stærri erlendum rannsóknum. Nýlega hafa ábendingar fyrir ígræddum taktnema verið víkkaðar.11 Þannig geta þessi tæki verið gagnleg við að fylgjast með árangri meðferða, til dæmis brennsluaðgerða eða jafnvel lyfjameðferða, en við höfum nýlega notað ígræddan taktnema hjá tveimur sjúklingum í þessum tilgangi hérlendis. Einnig hefur borið á vaxandi notkun þessara tækja hjá sjúklingum með köst sem gætu verið með flogaveiki en sem ekki hafa svarað Iyfjameðferð og sömuleiðis hjá sjúklingum með endurtekna dettni!3'14 Það er rétt að taka fram að tækið getur greint takttruflanir sem ekki valda einkennum hjá sjúklingi. Klíníska þýðingu slíkra takttruflana verður að meta í hverju tilfelli fyrir sig. Ef um er að ræða til dæmis hraðtakt með gleiðum QRS-samstæðum eða gáttatif þarf að taka afstöðu til meðferðar óháð þvf hvort takttruflunin leiddi til einkenna eða ekki. í heild sýnir þessi könnun fram á gagnsemi af notkun ígræddra taktnema hjá sjúklingum með yfirlið sem eru óútskýrð þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir. í framtíðinni mun notkun ígræddra taktnema undir fleiri klínískum kringumstæðum, svo sem til eftirlits með meðferð hjartsláttartruflana, trúlega fara vaxandi. LÆKNAblaðið 2012/98 467

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.