Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2012, Page 38

Læknablaðið - 15.09.2012, Page 38
UMFJÖLLUN O G GREINAR Fróðleikur um krabbamein fyrir fagstéttir og almenning ■ ■ ■ Anna Björnsson Krabbamein á íslandi er vönduð bók um alvarlegt efni og til þess fallin að opna aðgang margra að mikilvægum upplýsingum. Utgefandi er Krabba- meinsfélag Islands og í bókinni er að finna upplýsingar um krabba- mein og umfjöllun sem byggjast á þeim upplýsingum sem fyrir Iiggja hjá Krabbameinsskránni frá árunum 1955-2010. Jón Gunnlaugur Jónasson yfirlæknir og Laufey Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Krabbameins- skrárinnar eru höfundar bókarinnar en þriðja útgáfa hennar leit dagsins Ijós á vordögum 2012. Af því tilefni tók Læknablaðið þau Jón og Laufeyju tali. í hendur heilbrigðisstétta Fyrsta útgáfa bókarinnar kom út árið 2004 og var hún hugsuð sem uppflettibók fyrir almenning og fagfólk. Bókin var aftur gefin út árið 2008 og nú hefur þriðja útgáfan litið dagsins ljós, verulega endurbætt. í hverri útgáfu hafa komið fram nýjungar. Frá árinu 2008 hefur bókin verið aðgengileg á pdf-formi á netinu (krabbameinsskra.is). Sú útgáfa kemur þó ekki í staðinn fyrir prentútgáfu að mati höfunda og notenda. „Bók í prentaðri útgáfu er heimild sem ekki breytist en það sem birtist á netinu getur tekið breytingum eins oft og þurfa þykir. Prentútgáfan hentar vel fyrir nemendur sem nýta bókina sem heimild sem hægt er að vitna í og við höfum lagt áherslu á að bókin sé notuð í læknanámi og í framhaldsskólum. Allir þriðja árs læknanemar fá bókina að gjöf en þá Iæra þeir meinafræði. Við höfum einnig gefið fleiri heilbrigðisstéttum eintök af bókinni og dreift henni á bókasöfn. Mikilvægt er að prentútgáfan af bókinni sé ekki sérlega dýr, prentun 600 eintaka kostaði 1,3 milljónir króna með góðu tilboði frá prentsmiðjunni, en við færum þeim bókina alveg tilbúna til prentunar," segja þau Jón og Laufey. Krabbameinsskráin býr svo vel að þar starfar Þorgils Völundarson kerfisfræðingur sem bæði hefur hannað allt útlit bókarinnar og búið til prentunar af mikilli fagmennsku og smekkvísi. Hann hefur einnig séð um pdf-netútgáfuna. „Við höfum fengið styrki til útgáfunnar og farið mjög vel með fé. Við fengum rúmlega milljón í styrki vegna þessarar útgáfu, meðal annars frá velferðarráðuneytinu, enda er nauðsynlegt fyrir stjórnvöld að hafa tiltækar nákvæmar upplýsingar um krabbamein í landinu. Við sjáum fyrir okkur nýja og endurskoðaða útgáfu á um það bil fjögurra ára fresti. Á Norðurlöndunum hefur sumstaðar verið farin svipuð leið til að koma fróðleik úr krabbameinsskrám á framfæri." Gamall draumur að rætast En hver skyldi hafa verið kveikjan að því að bókin var skrifuð í upphafi? „Með útgáfu bókarinnar var gamall draumur okkar á Krabbameinsskránni að rætast. Mikið af upplýsingum hefur safnast hjá okkur á löngum tíma, upplýsingum sem gagnast geta með ýmsum hætti, meðal annars stjórnvöldum við áætlanagerð. Það hefur hins vegar verið misjafnt hversu aðgengilegt það efni hefur verið fyrir lækna og aðrar heilbrigðisstéttir og almenning. Það er ekki sjálfgefið að fólk viti af rannsóknum sem gerðar hafa verið og upplýsingum sem hér liggja. Sumt hafði birst í ársskýrslum og norrænum samantektum, en það er ekki endilega þar sem fólki dettur fyrst í hug að leita. Svo þegar leið að 50 ára afmæli Krabbameinsskrárinnar fannst okkur komið mjög gott tilefni til að gefa út bók. Við fengum í upphafi styrk og mikla hvatningu frá heilbrigðisráðuneytinu en þá var Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra, en fleiri lögðu okkur lið. Krabbameinsfélagið styrkti útgáfuna vel og aðrir aðilar lögðu sitt af mörkum. Við ætluðum bókinni í fyrstu að standa undir sér með því að birta merki frá styrktaraðilum og selja síðan bókina í búðum á góðu verði en það fara ekki margir í bókabúð að kaupa sér bók um krabbamein. Bókinni var dreift til krabbameinslækna, ýmissa annarra heilbrigðisstarfsmanna, á stærstu bókasöfnin og til heilbrigðis- og menntastofnana. Það mæltist vel fyrir og við fundum að bókin hafði mikinn hljómgrunn meðal þeirra sem fengu hana í hendur," sögðu þau Jón og Laufey. Bókin er einstaklega aðgengilega fram sett. Krabbameinum eru gerð skil á 478 LÆKNAblaðið 2012/98

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.