Læknablaðið - 15.09.2012, Síða 44
UMFJÖLLUN O G GREINAR
sporti í tvö ár og hjólaði meðal annars
kringum landið í sumar í keppninni
WOW í áheitasöfnun fyrir Barnaheill sem
13 lið tóku þátt í. Ég er í hjólreiðahópi
sem heitir Hjólreiðafélag miðaldra
skrifstofumanna, skammstafað HMS. hað
er mjög skemmtilegur hópur. Fyrst var
búið til eitt lið í þessa keppni og síðan
myndað annað, ég var plataður í það og
er þakklátur fyrir. Þessi lið voru í öðru til
fjórða sæti í WOW."
- Er þetta ekki hættulegt sport?
„Jú, jú, það getur verið hættulegt. Menn
þurfa að passa sig svolítið. En þess vegna
fæ ég að vera með í hjólahópnum að ég er
bæklunarlæknir. Ef eitthvað gerist á ég að
bjarga því. Ég lendi alltaf meira og meira
í því en það er bara gaman, jú ég reyndar
„Ég er ílijólahópi sem heitir Hjólreiðafélag miðaldra
skrifstofumatma." Mynd/Guimþóra
braut sjálfur handarbein í vetur þegar ég
datt í hálku á hjólinu en það truflaði mig
lítið."
- Hefurðu hjólað mikið erlendis?
„Ekkert fram að þessu en er að fara í
fyrstu ferðina núna í lok ágúst. Þá fer þessi
HMS-félagsskapur til Ítalíu. Við verðum
rétt við Rimini og hjólum miserfiðar
leiðir í 3-5 tíma á dag. Þá verðum við á
götuhjólum. Þeir sem eiga góð hjól taka
þau með en aðrir leigja. Ég veit ekkert
hvað ég er að fara út í en mér er sagt þetta
verði frábært. Konurnar verða með okkur,
kalla sig Rauðu raketturnar, þær eru
farnar að hjóla lfka, jafnvel meira en við."
- Fara þær að keppa við ykkur
kannski?
„E ... ég vona ekki."
XX. þing Félags íslenskra lyflækna
16. og 17. nóvember 2012
í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi
XX. þing Félags íslenskra lyflækna verður haldið I Hörpu í Reykjavík dagana 16. og 17. nóvember 2012. Dagskrá þingsins verður fjölbreytt og
ætti að höfða til breiðs hóps lyflækna og heimilislækna, sem og annarra lækna og fagstétta á heilbrigðissviði. Meginþema þingsins verður staða
og framtíð lyflækninga í íslenskri heilbrigðisþjónustu undir yfirskriftinni „lyflækningar á krossgötum". Þá verður umfjöllun um mikilvægar upp-
götvanir og framþróun innan sérgreina lyflækninga. Loks verður kynning vísindarannsókna stór þáttur að vanda og eru allir sem stunda rannsóknir
á vettvangi lyflækninga og skyldra greina hvattir til að senda inn ágrip. í tengslum við þingið verða fyrirtæki með kynningu á vörum og þjónustu.
Skipulagningu þingsins annast Athygli ráðstefnur.
Skráning á þingið verður á www.athygliradstefnur.is. Tengiliðir verða Birna, birna@athygii.is og Þórunn Dögg, thorunn@athygii.is
Leiðbeiningar varðandi innsendingu ágripa:
Innsending ágripa verður eingöngu með rafrænum hætti á slóðinni www.athygliradstefnur.is, undir flipanum Verkefni - skráningar. Skilafrestur
ágripa til 10. október.
Hámarkslengd ágripa miðast við 1800 letureiningar með bilum (titill ágrips, nöfn höfunda og stofnana eru ekki talin með).
Ágrip skulu rituð á íslensku og er ætlast til að vandað sé til orðfæris og efnistaka. Lyfjaheiti skal rita með íslenskum rithætti. Notast skal við
eftirfarandi uppbyggingu ágrips: Inngangur - Efniviður og aðferðir - Niðurstöður - Ályktanir
Vísindanefnd FÍL mun yfirfara öll innsend ágrip og velja til kynningar á þinginu. Unnt að leita upplýsinga um þingið hjá stjórn Félags íslenskra
lyflækna: Runólfur Pálsson, formaður, runolfur@landspitali.is og Davíð O. Arnar, ritari, davidar@iandspitaii.is
484 LÆKNAblaðið 2012/98