Læknablaðið - 15.09.2012, Page 49
UMFJÖLLUN OG GREINAR
staða að langtímum saman fáist ekki
skurðlæknir á FSN? Að óbreyttu tel ég
ástæðu til að ætla að fæðingarþjónusta
geti þá jafnvel lagst af f fjórðungnum. En
af hverju? - jú einhvern veginn virðist hjá
fagfólki og almenningi hafa skapast sú
tilfinning fremur en faglega undirbyggð
skoðun, að konur ættu ekki að fæða nema
þar sem er skurðlæknir. Fæðingar færast
meir og meir á tvo staði, Landspítala og
FSA. Þetta gerist að mér finnst án þess að
mikil fagleg umræða eða ákvarðanataka í
þessa veru hafi átt sér stað. Á sama tíma
hamra allir, bæði lærðir og leikir, á því
að þungun sé eðlilegt ástand. Öryggi
á hátæknistofnun til að sinna fæðingu
virðist og er mikið. Engu að síður velti
ég því fyrir mér hvort hátæknin sem eini
valkostur við fæðingar tryggi best öryggi,
þar sem saman fer eðlileg þungun og
hraust kona sem vill fæða í heimabyggð,
þó þar sé ekki skurðlæknisaðstaða. Er sá
möguleiki hugsanlega fyrir hendi að með
því fyrirkomulagi sé í stöku tilfelli gripið
til óþarfra inngripa sem aftur geta haft
alvarlegar afleiðingar? Æskileg væri opin
umræða um framtíð fæðingarþjónustu í
okkar dreifbýla landi, ekki bara samtal
fagfólks heldur líka fjölskyldna, því fyrir
þær er þessi þjónusta til. Fagleg úttekt á
því hvernig litlu fæðingarstöðunum tókst
til með sína þjónustu væri þarft innlegg
í slíka umræðu. Kannski yrði niðurstaða
umræðunnar sú að fagleg rök krefðust
þess að í framtíðinni fæðist börn bara á
Landspítala og FSA. Ef svo færi þyrfti að
marka þá stefnu með skýrum hætti og
einnig margt annað að taka mið af því.
Þar má lengi telja, svo sem skipulag og
viðbúnað sjúkraflugs, almannatryggingar,
búsetumál fjölskyldna sem bíða jafnvel
vikum saman eftir nýjum fjölskyldumeð-
lim, tekjutap og fleira.
Ég vil að lokum ítreka þakkir fyrir
málþingið í janúar 2011 og kalla eftir að
þeir tjái sig sem vita hvort og þá hvað
hefur gerst í skoðun þessara mála síðan.
Með síðbúinni sumarkveðju af Héraði.
Geðlæknafélag
íslands
Fjórða vísindaþing
Geðlæknafélags íslands
verður haldið á Hótel Klaustri, Kirkjubæjarklaustri, dagana 28. og 29. september 2012. Dagskrá
hefst klukkan 15, föstudaginn 28. september og stendur til klukkan 18:30 laugardaginn 29.
september. Á þinginu munu geðlæknar og annað fagfólk á geðheilbrigðissviði kynna afrakstur
vísindastarfs síns í stuttum erindum.
Á þinginu mun María Sigurjónsdóttir geðlæknir í Noregi halda erindi um stöðu réttargeð-
lækninga í Noregi.
Laugardagskvöldið 29. september verður hátíðarkvöldverður og skemmtidagskrá.
í undirbúningsnefnd þingsins eru geðlæknarnir Halldóra Jónsdóttir, Magnús Haraldsson,
Þórgunnur Ársælsdóttir og Sigurður Páll Pálsson.
Heimilislæknaþingið 2012
Akureyri 5. - 6. október
Heimilislæknaþing Félags íslenskra heimilislækna verður haldið á Hótel KEA
dagana 5.-6. október 2012. Skráning er á thorunn@isiandsfundir.is fyrir 5. seþtember.
Eins og á fyrri þingum verða kynntar rannsóknir, rannsóknaráætlanir og þróunarverkefni í
fomi erinda og veggsþjalda. Þeir sem vilja kynna slík verkefni eru beðnir að senda ágrip til
Jóhanns Ágústs Sigurðssonar í rafrænu formi á netfangið johsig@hi.is. Skilafrestur ágripa er
5. september. Ágripin verða birt í sérstöku riti þingsins.
Áþinginu verður jafnframt umfjöllun á vegum gæðaþróunarnefndar um hvernig má kynna starf
heimilslækna, bæði í formi fyrirlestra og í vinnuhópum. Þinginu lýkur með aðalfundi Félags
íslenskra heimilislækna laugardaginn 6. október.
Nánari dagskrá, upplýsingar um skil á útdráttum og skráningareyðublað verður sent í tölvu-
pósti til félagsmanna.
Nánari dagskrá og upplýsingar um skráningu verður auglýst síðar.
Fh. undirbúningsnefndar
Salome Ásta Arnardóttir
formaður fræðslunefndar FIH
Er ráðstefna framundan?
Alhliða skipulagning ráðstefna og funda
Engjateigur 5 1105 Reykjavlk | 585-3900 | congress@congress.is | www.congress.is
conqress
^REYKJAVÍK
LÆKNAblaðið 2012/98 489