Læknablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 62
Læknablaðið kallar eftir pistlum frá formönnum sérgreinafélaga og
undirdeilda Læknafélags íslands og Reykjavíkur til þess að raddir fleiri
liðsmanna heyrist.
Frá Félagi íslenskra
smitsjúkdómalækna
Á ráðstefnu alþjóðlegu AIDS-samtakanna
(International AIDS Society) sem haldin
var í Washington, höfuðborg Bandaríkj-
anna, í lok júlí síðastliðins undir slagorð-
unum „Turning the tide together" kvað
við nýjan tón. í fyrsta sinn í sögu þessa
hræðilega sjúkdóms heyrast nú þær raddir
meðal vísindamanna að unnt sé að kveða
niður HlV-faraldurinn! Vissulega eru þetta
gríðarlega góðar fréttir ef sannar reynast.
í dag er talið að um 25 milljónir manna
hafi látist af völdum HlV-sýkingar í
faraldrinum og að ríflega 32 milljónir séu
á lífi með sýkinguna.1 í fátækari löndum
heimsins njóta milljónir manna sem sýktir
eru af HlV-veirunni ekki lyfjameðferðar
sem þykir sjálfsögð annars staðar, þar
á meðal á íslandi. Ljóst er að í Afríku fá
einungis 8 af 15 milljónum HlV-sýktra
lyfjameðferð gegn veirunni.
Það eru nokkur atriði sem skipu-
Ieggjendur ráðstefnunnar töldu til
þegar þeir komust að niðurstöðu
sinni. í fyrsta lagi má nefna að með
samsettri HlV-lyfjameðferð (combined
anti-retroviral therapy) sem hemur HIV-
veiruna í líkamanum er nú unnt að
lækka veirumagn í blóði HlV-sýktra
einstaklinga í ómælanlegt gildi. Sá sem
tekur HlV-lyf á réttan hátt er þar af
leiðandi lítið eða ekki smitandi. Þetta
skiptir afar miklu máli þegar annar aðili
í kynferðislegu sambandi er HlV-sýktur
því meðferð dregur mjög úr líkum á að
hann smiti hinn aðilann við kynmök. í
öðru lagi hefur þekkingu á verkun og
hjáverkunum HlV-lyfja fleygt fram. Alveg
frá því samsetta HlV-lyfjameðferðin
kom fram árið 1995 hafa vísindamenn
ekki verið á eitt sáttir um hvernig stýra
skuli lyfjameðferðinni. í dag ráðleggja
vísindamenn lyfjameðferð sem fyrst
eftir greiningu sýkingarinnar óháð gildi
T-hjálparfrumna í blóði sjúklinga. Sú
ráðstöfun er til þess fallin að draga úr
fjölda einstaklinga í hverju samfélagi
sem er smitandi. í þriðja lagi liggja nú
fyrir vísindaleg gögn sem styðja notkun
HlV-lyfja sem forvörn gegn HlV-smiti.
Sá sem hyggur á áhættuhegðun, til
dæmis að stunda kynmök með óþekktum
einstaklingi eða einstaklingi með þekkt
HlV-smit, getur tekið HlV-lyf áður en til
áhættuhegðunar kemur og dregið þannig
nær 100% úr líkum á HlV-smiti. Þó að
smitsjúkdómalæknar séu margir hverjir
áhyggjufullir yfir þessari notkun HlV-lyfja
vegna hættu á að aðrir kynsjúkdómar
berist á milli einstaklinga er ljóst að
draga má verulega úr líkum á HlV-smiti
milli para þar sem annar einstaklingur
er smitaður en hinn ekki. í fjórða lagi
má benda á að jafnvel þó árangur af
tilraunum með bólusetningu gegn HIV
hafi ekki verið sem skyldi hingað til, sýndi
rannsókn sem framkvæmd var í Tælandi
fyrir nokkrum árum að bólusetning ver
um 30% einstaklinga á aldrinum 18-30
ára fyrir HIV-smiti.2 Á ráðstefnunni í
Washington kom fram að um 30 bóluefni
gegn HIV væru nú til rannsóknar og
telja vísindamenn að á næstu 5 til 10
árum megi vænta tíðinda af árangri
rannsókna með þessi bóluefni. í fimmta
lagi eykur nýtt lyf vonir manna um að
unnt verði að útrýma HlV-veirunni úr
líkama sýktra einstaklinga. Fram til þessa
hefur einungis verið mögulegt að lækka
HlV-veirumagn í blóði í ómælanlegt
gildi. Hins vegar hefur ekki verið hægt
að eyða veirunni úr erfðaefni manna
en þar situr hún og fjölgar sér. Nýja
efnið heitir Cortistatin A og er unnið úr
svamptegundinni Corticium simplex og
er fyrsta efnið í nýjum efnaflokki sem
hamlar starfsemi ensímsins tat í HIV-
veirunni. Taf-ensímið er HlV-veirunni
nauðsynlegt til að endurrita erfðaefni sitt
Már Kristjánsson
Formaður
markrist@landspitali. is
þar sem það situr njörvað niður í erfðaefni
hýsilsins. Tilraunir með frumur úr
sjúklingum sem hafa verið á árangursríkri
samsettri HlV-veirulyfjameðferð hafa
sýnt að í samanburði við lyfleysu eyðir
Cortistatin A meira en 99% af HlV-veiru
úr dvalarástandi.3 Þessar niðurstöður
vekja vonir um að unnt verði að uppræta
HlV-veiru úr líkama sýktra einstaklinga.
Margir þekktir aðilar komu fram á
ráðstefnu Alþjóðlegu AIDS-samtakanna í
sumar sem hvöttu ríkisstjórnir heimsins
til að setja aukin fjárframlög til HIV-
meðferðar. Meira fé í þessum málaflokki
er forsenda þess að unnt sé að beita
núverandi þekkingu og lyfjum til að kveða
niður HlV-faraldurinn.
Smitsjúkdómalæknar á íslandi
fylgjast grannt með framþróun HIV-
meðferðar, bæði gegn virkum sýkingum
og hverskonar fyrirbyggjandi aðgerðum,
til að koma í veg fyrir útbreiðslu HIV-
veirunnar.
Heimildir
1. who.int/mediacentre/factsheets/fs360/en/index.html -
ágúst 2012.
2. Rerks-Ngarm S, Pitisuttithum P, Nitayaphan S, Kaew-
kungwal J, Chiu J, Paris R. Vaccination with ALVAC and
AIDSVAX to Prevent HIV-1 Infection in Thailand. N Engl J
Med 2009; 361: 2209-20.
3. Mousseau G, Clementz MA, Bakeman WN, Nagarsheth
N, Cameron M, Shi J, et al. An Analog of the Natural
Steroidal Alkaloid Cortistatin A Potently Suppresses Tat-
Dependent HIV Transcription. Cell Host Microbe 2012; 12:
97-108.
502 LÆKNAblaðið 2012/98