Læknablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 9
RITSTJÓRNARGREIN
Sigurður E.
Sigurðsson
framkvæmdastjóri
lækninga- og
handlækningasviös á
Sjúkrahúsinu á Akureyri
ses@fsa.is
Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá
neinum sem fylgst hefur með fréttum af
Islandi síðastliðin ár að alvarlegt efnahags-
hrun varð síðla árs 2008 og við höfum verið
að berjast við afleiðingar þess hér allar
götur síðan. Aðhald og niðurskurður hefur
einkennt ríkisfjármálin og þó vilji hafi verið
til að hlífa heilbrigðiskerfinu þá hefur það
ekki farið varhluta af niðurskurðinum. Á
Sjúkrahúsinu á Akureyri hafa fjárframlög
verið skorin niður um 20% frá árinu 2008.
Þetta hefur þýtt að þrátt fyrir ítrustu hag-
ræðingu í rekstri og endurskipulagningu í
starfsemi hefur starfsfólki fækkað um 11%.
Starfsfólk heilbrigðisstofnana hefur sýnt
aðstæðunum mikinn skilning og lagt sig
fram um að koma í veg fyrir að niðurskurð-
urinn bitni á þeim sem síst við því mega,
sjúkingunum.
Nú er hins vegar svo komið að farið er að
hrikta í stoðum þess ágæta heilbrigðiskerfis
sem okkur var svo tíðrætt um að væri með
því besta sem gerist. Við erum ekki sam-
keppnisfær við nágrannalönd okkar þegar
kemur að því að bjóða fagfólki innan heil-
brigðisþjónustunnar viðunandi kjör. Það
hefur valdið því að ungir sérfræðilæknar
A vendipunkti
koma ekki til baka úr sérfræðinámi sínu
með nýja þekkingu og starfskraft. Sérhæft
heilbrigðisstarfsfólk sem hefur starfað hér
er að gefast upp á erfiðum vinnuskilyrðum,
auknu vinnuálagi og leitar í önnur störf eða
til annarra landa. Við höfum ekki sinnt við-
haldi tækja og húsnæðis sem skyldi.
Það var oft talin góð vinnuregla að leggja
ekki í síðasta plássið á gjörgæsludeild. Með
því var átt við að ef sinna á bráðaþjónustu
sem skyldi þá þurfa að vera til opnir mögu-
leikar þegar bráðatilfellin koma. Það er ljóst
að fyrir löngu er búið að leggja í síðasta
plássið og jafnvel á ganginn líka!
Það eru famar að birtast tölur um að gæðin
sem við vorum svo stolt af í samanburði við
aðra séu farin að dala*
Þarna eru viðvörunarmerki sem við
megum ekki hundsa. Það tekur langan tíma
að byggja upp góða heilbrigðisþjónustu og
þann kúrs sem við virðumst vera komin á
verður ekki auðvelt að leiðrétta.
Stjórnendur heilbrigðisstofnana hafa
starfað náið með stjórnvöldum síðustu ár
svo best megi nýta þá fjármuni sem til heil-
brigðiskerfisins hafa verið veittir. Menn
hafa gert ráð fyrir að stjórnvöld hafi af
heilum hug reynt að setja eins mikið af fjár-
magni til heilbrigðisstofnana eins og unnt
er. Á svona erfiðum tímum þarf að ríkja
traust.
Það er því mikilvægt að stjórnvöld beri
það traust til þessara sömu aðila nú þegar
þeir segja að of langt hafi verið gengið og
verði blaðinu ekki snúið við muni illa fara.
Brestirnir eru það miklir og stoðirnar það
veikar að þær þarf að styrkja strax.
Það einfaldlega verður að veita meira
fjármagni aftur inn í heilbrigðiskerfið, að
öðrum kosti er hætta á að landsmönnum
verði boðið upp á annars flokks heilbrigðis-
þjónustu. Viljum við það? Nei!
Við þurfum að huga að nýbyggingum
þar sem þess er þörf og við þurfum að taka
upp nýjungar í meðferðum og þar með
bjóða sjúklingum upp á aðstöðu og heil-
brigðisþjónustu sem sæmir þeirri öld sem
við lifum á.
Við þurfum að gera átak í endurnýjun
tækja og aðbúnaðar svo að þeir sem hafa
menntað sig í að nota nýjustu tækni séu
reiðubúnir að vinna hér á landi.
Síðast en ekki síst þá verður ekki komist
hjá því að bæta kjör heilbrigðisstétta svo
að ísland verði aftur samkeppnisfært við
nágrannalönd okkar.
Það var með nokkru stolti sem tilkynnt
var að á fjárlögum fyrir 2013 yrði ekki
niðurskurður í heilbrigðiskerfinu. Það
reyndist skammvinn gleði þar sem verð-
bólguhækkanir eru þegar farnar að rjúfa
þá ramma sem voru settir.
Nú fyrir kosningar hefur flestum for-
ystumönnum framboða orðið tíðrætt um
að það þurfi að bæta heilbrigðisþjónustuna.
Það verður að gera þá kröfu að þeir sem
þannig tala hafi kynnt sér stöðuna og láti
verk fylgja orði.
*(healthpowerhouse.com/files/Report-EHCI-2012.pdf)
Health care system in serious crisis
Sigurður E. Sigurðsson
Medical director and director of surgical services
Akureyri Hospital
Eyrarlandsvegi
600 Akureyri
LÆKNAblaðið 2013/99 181