Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 31

Læknablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 31
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Heilbrigðisþjónusta í ógöngum? Magdalena Ásgeirsdóttir lungnalæknir á Reykjalundi Magdalena@REYKJALUNDUR.is Undanfarin misseri hafa svo til daglega dunið á okkur fréttir af heilbrigðisþjónust- unni. Endalaus niðurskurður, samdráttur, lokanir deilda, uppsagnir og flótti starfs- fólks, slæmur aðbúnaður, langir biðlistar, úrelt og biluð tæki og svo mætti lengi telja. Fjölmennur fundur lækna Landspítalans þann 15. febrúar 2013 skorar á stjórnvöld að hætta við áform sín um að taka af lífi Landspítala og heilbrigðiskerfi íslands á hægan og kvalafullan hátt. Eg hef áhyggjur af heilbrigðisþjón- ustunni, bæði með tilliti til sjúklinga og starfsfólks. Ég hef áhyggjur af flótta unga fagfólksins í upphafi starfsævinnar vegna álags, slæmrar vinnuaðstöðu og lélegra kjara. Ég hef áhyggjur af sjúklingunum þar sem fyrirsjáanlegt er að það muni vanta eina kynslóð fagfólks til að halda heil- brigðisþjónustunni gangandi. Hvað hefur gerst undanfarin ár? Á landsbyggðinni hefur þjónusta dregist saman. Erfiðlega gengur að manna bæði stöður heilsugæslu- og sérfræðilækna á héraðssjúkrahúsunum. íbúum er vísað á stærri sjúkrahús, án þess þó að sjúkra- flutningar eða samgöngur séu tryggðar. Heilsugæslan nær ekki að sinna hlutverki sínu, enda hefur hún ekki fengið að þróast með samfélaginu árum saman. Þar getur bið eftir læknisviðtali verið mun lengri en hjá sérfræðilæknum á stofum, sem margir hverjir fá á sitt borð verkefni sem ættu í raun heima í heilsugæslunni. Heimahjúkr- unin hefur líka þurft að draga saman segl- in, þrátt fyrir að stöðugt veikara fólk þurfi á þjónustu hennar að halda. Tiltölulega fáir njóta endurhæfingar innan heilbrigðis- kerfisins í dag, en endurhæfing hefur lengi verið olnbogabarn sjúkrahúsþjónustunnar. VIRK starfsendurhæfingarsjóður hefur nú með höndum svokallaða starfsendur- hæfingu en tengslin við heilbrigðiskerfið eru óljós og veikburða, þrátt fyrir þá stað- reynd að bakgrunnur skjólstæðinganna séu veikindi. Vegna þessara óljósu marka milli endurhæfingar innan heilbrigðis- kerfisins og starfsendurhæfingar á vegum VIRK, er hætta á að enn muni halla á heil- brigðiskerfið. Hvernig heilbrigðisþjónustu viljum við? Þegar þetta er ritað þann 10. mars, 47 dögum fyrir Alþingiskosningar, hafa 13 framboð tilkynnt um möguleg framboð en endanlegur fjöldi mun ekki liggja fyrir fyrr en 12. apríl. Sama dag gerði undir- rituð netkönnun á heimasíðum framboð- anna sem takmarkaðist að hámarki við 5 innslætti (klikk) í leit að stefnu flokkanna í heilbrigðismálum. Sjö framboð uppfylltu þessi skilyrði. Öll sjö framboðin virtust vera sammála um að efla heilsugæsluna og hún ætti að vera fyrsti viðkomustaður hins veika. Öll framboðin nefna rekstur eða rekstrarform heilbrigðisþjónustu og þrjú nefna einnig greiðslur eða þak á greiðslur almennings fyrir þjónustuna. Eitt fram- boð minntist ekki á Landspítala, annað framboð nefnir að nýr Landspítali sé vel- ferðarmál þjóðarinnar. Hin fimm fram- boðin vilja annaðhvort endurskoða áform um nýbyggingu Landspítala eða stöðva fyrirhugaða byggingu nýs Landspítala við Hringbraut. Fjögur framboð vildu að tannlækningar væru gjaldfrjálsar fyrir 18 ára og yngri eða hluti af grunnheil- brigðisþjónustunni. Til að fræðast nánar um stefnu stjórnmálaflokkanna um heil- brigðismál bendi ég á heimasíður þeirra. Eftir lesturinn er ég litlu nær um fram- tíðarsýn flokkanna í heilbrigðismálum. Stefnan fannst mér vera almennt orðuð, klisjukennd og hvergi er bent á leiðir til framkvæmda eða lausnar. Innihald þjón- ustunnar er hvergi nefnt eða árangur. Eitt er þó augljóst eftir lesturinn að heilbrigðis- málin eru ekki eitt af stóru kosningamál- unum fyrir þessar Alþingiskosningar. Heilbrigðisstarfsfólk er auður heil- brigðiskerfisins og án þekkingar og reynslu fagfólksins verður ekki haldið úti heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðismál eru mjög mikilvægur málaflokkur sem snertir landsmenn alla, hvað varðar þjónustu og kostnað bæði þegnanna og ríkisins. Að mínu mati eru ógöngur heilbrigðiskerfis- ins ekki einvörðungu vegna fjársveltis, heldur líka vegna stefnuleysis. Ekki er hægt að ná settu marki ef ekkert er mark- miðið. I ráðuneytunum eru til nokkrir hillumetrar af skýrslum sem unnar hafa verið í því augnamiði að setja stefnu og þar með forgangsraða innan heilbrigðis- kerfisins. En þar við situr. Framkvæmda- áætlanir hafa ekki fylgt í kjölfarið og því til lítils unnið. Heilbrigðis-, velferðar- og menntamál eru tengd órjúfanlegum böndum og eru grunnurinn að heilbrigðu lýðræðissam- félagi. Til að endurreisa þessar grunn- stoðir er nauðsynlegt að horfa lengra fram í tímann en sem nemur einu kjörtímabili. Það er í raun eðlileg krafa skattgreiðenda að stefnumótun og markmiðssetning sé skýr og afmörkuð. Ég skora því á heil- brigðisstarfsfólk og almenning að leggja framboðunum lið við mótun heilbrigðis- stefnu til framtíðar og mæta á sameigin- legan fund læknafélaganna með fulltrúum stjórnmálaflokkanna á Grand Hótel 3. apríl næstkomandi. Stjórn LÍ Þorbjörn Jónsson, formaður Orri Þór Ormarsson, varaformaður Magnús Baldvinsson, gjaldkeri Salome Á. Arnardóttir, ritari Björn Gunnarsson Guðrún Jóhanna Georgsdóttir Magdalena Ásgeirsdóttir Þórarinn Ingólfsson Þórey Steinarsdóttir I pistlunum Úrpenna stjómarmanna U birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki fólagsins. LÆKNAblaðið 2013/99 203

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.