Læknablaðið - 15.04.2013, Qupperneq 31
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Heilbrigðisþjónusta í ógöngum?
Magdalena
Ásgeirsdóttir
lungnalæknir á
Reykjalundi
Magdalena@REYKJALUNDUR.is
Undanfarin misseri hafa svo til daglega
dunið á okkur fréttir af heilbrigðisþjónust-
unni. Endalaus niðurskurður, samdráttur,
lokanir deilda, uppsagnir og flótti starfs-
fólks, slæmur aðbúnaður, langir biðlistar,
úrelt og biluð tæki og svo mætti lengi telja.
Fjölmennur fundur lækna Landspítalans
þann 15. febrúar 2013 skorar á stjórnvöld
að hætta við áform sín um að taka af lífi
Landspítala og heilbrigðiskerfi íslands á
hægan og kvalafullan hátt.
Eg hef áhyggjur af heilbrigðisþjón-
ustunni, bæði með tilliti til sjúklinga og
starfsfólks. Ég hef áhyggjur af flótta unga
fagfólksins í upphafi starfsævinnar vegna
álags, slæmrar vinnuaðstöðu og lélegra
kjara. Ég hef áhyggjur af sjúklingunum þar
sem fyrirsjáanlegt er að það muni vanta
eina kynslóð fagfólks til að halda heil-
brigðisþjónustunni gangandi.
Hvað hefur gerst undanfarin ár? Á
landsbyggðinni hefur þjónusta dregist
saman. Erfiðlega gengur að manna bæði
stöður heilsugæslu- og sérfræðilækna á
héraðssjúkrahúsunum. íbúum er vísað
á stærri sjúkrahús, án þess þó að sjúkra-
flutningar eða samgöngur séu tryggðar.
Heilsugæslan nær ekki að sinna hlutverki
sínu, enda hefur hún ekki fengið að þróast
með samfélaginu árum saman. Þar getur
bið eftir læknisviðtali verið mun lengri en
hjá sérfræðilæknum á stofum, sem margir
hverjir fá á sitt borð verkefni sem ættu í
raun heima í heilsugæslunni. Heimahjúkr-
unin hefur líka þurft að draga saman segl-
in, þrátt fyrir að stöðugt veikara fólk þurfi
á þjónustu hennar að halda. Tiltölulega
fáir njóta endurhæfingar innan heilbrigðis-
kerfisins í dag, en endurhæfing hefur lengi
verið olnbogabarn sjúkrahúsþjónustunnar.
VIRK starfsendurhæfingarsjóður hefur
nú með höndum svokallaða starfsendur-
hæfingu en tengslin við heilbrigðiskerfið
eru óljós og veikburða, þrátt fyrir þá stað-
reynd að bakgrunnur skjólstæðinganna
séu veikindi. Vegna þessara óljósu marka
milli endurhæfingar innan heilbrigðis-
kerfisins og starfsendurhæfingar á vegum
VIRK, er hætta á að enn muni halla á heil-
brigðiskerfið.
Hvernig heilbrigðisþjónustu viljum við?
Þegar þetta er ritað þann 10. mars, 47
dögum fyrir Alþingiskosningar, hafa 13
framboð tilkynnt um möguleg framboð
en endanlegur fjöldi mun ekki liggja fyrir
fyrr en 12. apríl. Sama dag gerði undir-
rituð netkönnun á heimasíðum framboð-
anna sem takmarkaðist að hámarki við 5
innslætti (klikk) í leit að stefnu flokkanna
í heilbrigðismálum. Sjö framboð uppfylltu
þessi skilyrði. Öll sjö framboðin virtust
vera sammála um að efla heilsugæsluna og
hún ætti að vera fyrsti viðkomustaður hins
veika. Öll framboðin nefna rekstur eða
rekstrarform heilbrigðisþjónustu og þrjú
nefna einnig greiðslur eða þak á greiðslur
almennings fyrir þjónustuna. Eitt fram-
boð minntist ekki á Landspítala, annað
framboð nefnir að nýr Landspítali sé vel-
ferðarmál þjóðarinnar. Hin fimm fram-
boðin vilja annaðhvort endurskoða áform
um nýbyggingu Landspítala eða stöðva
fyrirhugaða byggingu nýs Landspítala
við Hringbraut. Fjögur framboð vildu að
tannlækningar væru gjaldfrjálsar fyrir
18 ára og yngri eða hluti af grunnheil-
brigðisþjónustunni. Til að fræðast nánar
um stefnu stjórnmálaflokkanna um heil-
brigðismál bendi ég á heimasíður þeirra.
Eftir lesturinn er ég litlu nær um fram-
tíðarsýn flokkanna í heilbrigðismálum.
Stefnan fannst mér vera almennt orðuð,
klisjukennd og hvergi er bent á leiðir til
framkvæmda eða lausnar. Innihald þjón-
ustunnar er hvergi nefnt eða árangur. Eitt
er þó augljóst eftir lesturinn að heilbrigðis-
málin eru ekki eitt af stóru kosningamál-
unum fyrir þessar Alþingiskosningar.
Heilbrigðisstarfsfólk er auður heil-
brigðiskerfisins og án þekkingar og
reynslu fagfólksins verður ekki haldið úti
heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðismál eru
mjög mikilvægur málaflokkur sem snertir
landsmenn alla, hvað varðar þjónustu og
kostnað bæði þegnanna og ríkisins. Að
mínu mati eru ógöngur heilbrigðiskerfis-
ins ekki einvörðungu vegna fjársveltis,
heldur líka vegna stefnuleysis. Ekki er
hægt að ná settu marki ef ekkert er mark-
miðið. I ráðuneytunum eru til nokkrir
hillumetrar af skýrslum sem unnar hafa
verið í því augnamiði að setja stefnu og
þar með forgangsraða innan heilbrigðis-
kerfisins. En þar við situr. Framkvæmda-
áætlanir hafa ekki fylgt í kjölfarið og því
til lítils unnið.
Heilbrigðis-, velferðar- og menntamál
eru tengd órjúfanlegum böndum og eru
grunnurinn að heilbrigðu lýðræðissam-
félagi. Til að endurreisa þessar grunn-
stoðir er nauðsynlegt að horfa lengra fram
í tímann en sem nemur einu kjörtímabili.
Það er í raun eðlileg krafa skattgreiðenda
að stefnumótun og markmiðssetning sé
skýr og afmörkuð. Ég skora því á heil-
brigðisstarfsfólk og almenning að leggja
framboðunum lið við mótun heilbrigðis-
stefnu til framtíðar og mæta á sameigin-
legan fund læknafélaganna með fulltrúum
stjórnmálaflokkanna á Grand Hótel
3. apríl næstkomandi.
Stjórn LÍ
Þorbjörn Jónsson, formaður
Orri Þór Ormarsson, varaformaður
Magnús Baldvinsson, gjaldkeri
Salome Á. Arnardóttir, ritari
Björn Gunnarsson
Guðrún Jóhanna Georgsdóttir
Magdalena Ásgeirsdóttir
Þórarinn Ingólfsson
Þórey Steinarsdóttir
I pistlunum Úrpenna stjómarmanna U birta þeir sínar eigin
skoðanir en ekki fólagsins.
LÆKNAblaðið 2013/99 203