Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 38

Læknablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 38
UMFJÖLLUN O G GREINAR Einföldun og jafnræði breytingar á greiðsluþátttöku vegna lyfjakostnaðar ■ ■ ■ Anna Björnsson Þann 4. maí næstkomandi verða gerðar grundvallarbreytingar á greiðsluþátttöku vegna lyfjakostnaðar. Þá tekur gildi nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna lyfja sem ger- breytir því á marga vegu. Þau Margrét Kristjánsdóttir lyfjafræðingur og Heiðar Örn Arnarson vef- og kynningarfulltrúi hjá Sjúkratryggingum íslands hafa tekið virkan þátt í að kynna þessar breytingar fyrir læknum, lyfsölum og félögum sjúk- linga. Að þessu sinni eru þau í viðtali við Læknablaöið um stærstu þættina í þessum breytingum og að hverju þarf sérstaklega að hyggja. Kerfi sem hefur reynst vel í Svíþjóð og Danmörku „Markmiðið er að auka jafnræði milli sjúk- lingahópa óháð sjúkdómum og koma til móts við þá sem hafa mikil útgjöld vegna lyfja. Mjög mismunandi er hver greiðslu- þátttaka er vegna lyfja í lyfjaverðskrá nú, allt frá því að Sjúkratryggingar íslands taki engan þátt í kostnaði og upp í að lyf séu afhent án endurgjalds. I núverandi kerfi er ekki hámark á lyfjakostnaði ein- staklinga. í hópi þeirra sem fá frí lyf eru nú meðal annarra sykursjúkir, Parkinsons- sjúklingar, flogaveikir, einstaklingar með Sjögrens og fleiri. Kerfið sem tekið verður upp er hlið- stætt því sem hefur verið við lýði í Svíþjóð og Danmörku um alllangt skeið og gefist mjög vel. Sú hugmynd að taka þetta kerfi upp er ekki ný af nálinni og hefur verið í farvatninu í stjórnsýslunni í um það bil áratug og þar af leiðandi í tíð nokkurra ríkisstjórna. Upphaflega var hugmyndin að taka upp sams konar hugmyndafræði og liggur að baki þessum breytingum í öllu heilbrigðiskerfinu. Síðan var ákveðið að byrja á að láta breytinguna taka til lyfjakostnaðar og síðan að sjá til hvort og hvernig þykir henta að innleiða hana inn á fleiri svið." Helstu breytingarnar felast í því að allir greiða nú fyrir lyf sem hafa greiðsluþátt- töku Sjúkratrygginga samkvæmt lyfja- verðskrá upp að vissri upphæð. Þegar ákveðnu þrepi er náð innan 12 mánaða frá því fyrstu lyfjakaup áttu sér stað, fellur greiðsluþátttaka einstaklinga niður í 15% og síðar í 7,5%. Upplýsingar um upphæðir verða auglýstar á vef SÍ, www.sjukra.is Þegar ákveðnu þaki er náð getur læknir sótt um fulla niðurgreiðslu fyrir ein- staklinginn. Almennt munu þeir sem hafa haft mikinn lyfjakostnað greiða minna fyrir lyf en áður. A móti munu þeir sem kaupa sjaldan lyf greiða meira. Þeir sem hafa verið á frílyfjum vegna áðurnefndra sjúkdóma munu þurfa að byrja að greiða fyrir lyfin sín." Sjúklingar sem áður greiddu mörg dýr lyf greiða nú mun minna „Samkvæmt núgildandi kerfi hefur kostn- aður einstaklinga sem þurfa að nota mörg lyf getað farið upp í háar upphæðir. Þetta hefur til dæmis átt við um marga gigtar- sjúklinga. Jöfnuður mun aukast á milli sjúklingahópa en þeir sem hafa verið á mörgum dýrum lyfjum með mismunandi miklum niðurgreiðslum finna eflaust helst fyrir breytingunum. Barnafjölskyldur, ungmenni og fólk eldra en 67 ára mun greiða minna en aðrir fyrir sín lyf. Þarna er um nokkrar nýjungar að ræða. Ef litið er á barnafjöl- skyldur með háan lyfjakostnað vegna fleiri en eins barns, munar mestu að lyfjakostn- aður vegna allra barna er reiknaður saman. Þetta merkir að heildarkostnaður vegna lyfja fyrir öll börn í sömu fjölskyldu lækkar fyrr en ef hvert barn fyrir sig þyrfti að ná viðmiðunarupphæðinni. Nýjung er að ungmenni á aldrinum 18-22 ára fá niðurgreiðslu fyrr en fullorðnir. Þá greiða einstaklingar sem eru 67 ára og eldri einnig minna en aðrir, óháð því hvort þeir hafa hafið töku lífeyris eða ekki." Einfaldleiki og miklar upplýsingar „Kerfið er í heild mun einfaldara í notkun og auðskiljanlegra en núgildandi kerfi. Fólk getur fylgst með og alltaf vitað hversu mikið það á að greiða fyrir lyfin sín. Ekki þarf að halda kvittunum til haga heldur er heildarlyfjakostnaður skráður við kaup lyfjanna og þegar komið er í afsláttarþrep lækkar hann þegar í stað. Kostnaðarþátt- takan kemur fram á kvittunum frá apó- tekum, lyfsalar og starfsfólk lyfjaverslana geta einnig skýrt málin fyrir fólki. Einnig mun hver og einn hafa aðgang að eigin upplýsingum í Réttindagátt á vefnum www.sjukra.is gegnum sama lykilorð og notað er við skattskil. Þar verður einnig að finna sérstaka reiknivél sem hægt er að nota til að reikna út fyrirfram lyfjakostnað út frá stöðu einstaklings hverju sinni. Allir eiga að geta fundið út eftir einhverri af þessum leiðum nákvæmlega hvenær því þrepi er náð að afsláttur sé veittur. Af- sláttur er miðaður við 12 mánaða tímabil sem hefst þegar greitt er fyrir lyf í apóteki. Sá sem kaupir lyf með greiðsluþátttöku, til dæmis þann 5. maí næstkomandi, hefur þannig sitt 12 mánaða tímabil þann dag og nýtt tímabil hefst ekki fyrr en eftir 5. maí á næsta ári, 2014." Mánaðargreiðslur eiga ekki að verða of háar „Þeir sem hafa verið á lyfjum sem hafa verið greidd að fullu finna auðvitað mun k. 210 LÆKNAblaðið 2013/99

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.