Læknablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 38
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Einföldun og jafnræði
breytingar á greiðsluþátttöku vegna lyfjakostnaðar
■ ■ ■ Anna Björnsson
Þann 4. maí næstkomandi verða gerðar
grundvallarbreytingar á greiðsluþátttöku
vegna lyfjakostnaðar. Þá tekur gildi nýtt
greiðsluþátttökukerfi vegna lyfja sem ger-
breytir því á marga vegu. Þau Margrét
Kristjánsdóttir lyfjafræðingur og Heiðar
Örn Arnarson vef- og kynningarfulltrúi
hjá Sjúkratryggingum íslands hafa tekið
virkan þátt í að kynna þessar breytingar
fyrir læknum, lyfsölum og félögum sjúk-
linga. Að þessu sinni eru þau í viðtali við
Læknablaöið um stærstu þættina í þessum
breytingum og að hverju þarf sérstaklega
að hyggja.
Kerfi sem hefur reynst vel í
Svíþjóð og Danmörku
„Markmiðið er að auka jafnræði milli sjúk-
lingahópa óháð sjúkdómum og koma til
móts við þá sem hafa mikil útgjöld vegna
lyfja. Mjög mismunandi er hver greiðslu-
þátttaka er vegna lyfja í lyfjaverðskrá nú,
allt frá því að Sjúkratryggingar íslands
taki engan þátt í kostnaði og upp í að lyf
séu afhent án endurgjalds. I núverandi
kerfi er ekki hámark á lyfjakostnaði ein-
staklinga. í hópi þeirra sem fá frí lyf eru
nú meðal annarra sykursjúkir, Parkinsons-
sjúklingar, flogaveikir, einstaklingar með
Sjögrens og fleiri.
Kerfið sem tekið verður upp er hlið-
stætt því sem hefur verið við lýði í Svíþjóð
og Danmörku um alllangt skeið og gefist
mjög vel. Sú hugmynd að taka þetta kerfi
upp er ekki ný af nálinni og hefur verið
í farvatninu í stjórnsýslunni í um það bil
áratug og þar af leiðandi í tíð nokkurra
ríkisstjórna. Upphaflega var hugmyndin
að taka upp sams konar hugmyndafræði
og liggur að baki þessum breytingum í
öllu heilbrigðiskerfinu. Síðan var ákveðið
að byrja á að láta breytinguna taka til
lyfjakostnaðar og síðan að sjá til hvort og
hvernig þykir henta að innleiða hana inn á
fleiri svið."
Helstu breytingarnar felast í því að allir
greiða nú fyrir lyf sem hafa greiðsluþátt-
töku Sjúkratrygginga samkvæmt lyfja-
verðskrá upp að vissri upphæð. Þegar
ákveðnu þrepi er náð innan 12 mánaða frá
því fyrstu lyfjakaup áttu sér stað, fellur
greiðsluþátttaka einstaklinga niður í 15%
og síðar í 7,5%. Upplýsingar um upphæðir
verða auglýstar á vef SÍ, www.sjukra.is
Þegar ákveðnu þaki er náð getur læknir
sótt um fulla niðurgreiðslu fyrir ein-
staklinginn. Almennt munu þeir sem hafa
haft mikinn lyfjakostnað greiða minna
fyrir lyf en áður. A móti munu þeir sem
kaupa sjaldan lyf greiða meira. Þeir sem
hafa verið á frílyfjum vegna áðurnefndra
sjúkdóma munu þurfa að byrja að greiða
fyrir lyfin sín."
Sjúklingar sem áður greiddu
mörg dýr lyf greiða nú mun minna
„Samkvæmt núgildandi kerfi hefur kostn-
aður einstaklinga sem þurfa að nota mörg
lyf getað farið upp í háar upphæðir. Þetta
hefur til dæmis átt við um marga gigtar-
sjúklinga. Jöfnuður mun aukast á milli
sjúklingahópa en þeir sem hafa verið á
mörgum dýrum lyfjum með mismunandi
miklum niðurgreiðslum finna eflaust helst
fyrir breytingunum.
Barnafjölskyldur, ungmenni og fólk
eldra en 67 ára mun greiða minna en
aðrir fyrir sín lyf. Þarna er um nokkrar
nýjungar að ræða. Ef litið er á barnafjöl-
skyldur með háan lyfjakostnað vegna fleiri
en eins barns, munar mestu að lyfjakostn-
aður vegna allra barna er reiknaður
saman. Þetta merkir að heildarkostnaður
vegna lyfja fyrir öll börn í sömu fjölskyldu
lækkar fyrr en ef hvert barn fyrir sig þyrfti
að ná viðmiðunarupphæðinni. Nýjung
er að ungmenni á aldrinum 18-22 ára fá
niðurgreiðslu fyrr en fullorðnir. Þá greiða
einstaklingar sem eru 67 ára og eldri
einnig minna en aðrir, óháð því hvort þeir
hafa hafið töku lífeyris eða ekki."
Einfaldleiki og miklar upplýsingar
„Kerfið er í heild mun einfaldara í notkun
og auðskiljanlegra en núgildandi kerfi.
Fólk getur fylgst með og alltaf vitað hversu
mikið það á að greiða fyrir lyfin sín. Ekki
þarf að halda kvittunum til haga heldur
er heildarlyfjakostnaður skráður við kaup
lyfjanna og þegar komið er í afsláttarþrep
lækkar hann þegar í stað. Kostnaðarþátt-
takan kemur fram á kvittunum frá apó-
tekum, lyfsalar og starfsfólk lyfjaverslana
geta einnig skýrt málin fyrir fólki. Einnig
mun hver og einn hafa aðgang að eigin
upplýsingum í Réttindagátt á vefnum
www.sjukra.is gegnum sama lykilorð og
notað er við skattskil. Þar verður einnig
að finna sérstaka reiknivél sem hægt er að
nota til að reikna út fyrirfram lyfjakostnað
út frá stöðu einstaklings hverju sinni. Allir
eiga að geta fundið út eftir einhverri af
þessum leiðum nákvæmlega hvenær því
þrepi er náð að afsláttur sé veittur. Af-
sláttur er miðaður við 12 mánaða tímabil
sem hefst þegar greitt er fyrir lyf í apóteki.
Sá sem kaupir lyf með greiðsluþátttöku, til
dæmis þann 5. maí næstkomandi, hefur
þannig sitt 12 mánaða tímabil þann dag og
nýtt tímabil hefst ekki fyrr en eftir 5. maí á
næsta ári, 2014."
Mánaðargreiðslur eiga ekki að verða of háar
„Þeir sem hafa verið á lyfjum sem hafa
verið greidd að fullu finna auðvitað mun
k.
210 LÆKNAblaðið 2013/99