Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 36
UMFJÖLLUN O G GREINAR Af liðbólgusjúkdómum og sagnfræði læknisfræðinnar Leifur Jónsson skurðlæknir fimmvh@simnet.is Folkekuranstalten við Hald nærri Viborg sem er norðarlega á Jótlandi. Danski Rauði krossinn byggði búðir þessar fyrirflóttafólk úrfyrri heimsstyrjöldinni. Félag íslenzkra gigtarlækna ásamt fleirum gáfu fyrir skömmu út bækling um liðbólgu- sjúkdóma. Kominn á aldur og gigtin aðeins farin að narta í kjöt og liði, hugsaði ég mér nú gott til glóðarinnar og hóf lestur. Margt bar þar fróðlegt fyrir augu, til dæmis voru á 17. og 18. öld uppi glöggir karlar sem bæði læknuðu og skrifuðu um gigt. Við lesturinn kom upp í mér áhuga- maðurinn um sögu læknisfræðinnar, en þarna gaf að líta eftirfarandi: „Sérgreinin gigtarlækningar byrjar að mótast hérlendis með tilkomu Jóns Þorsteinssonar læknis, en hann varð yfirlæknir á gigtardeild Landspítalans 1969. Síðan bættust Kári Sig- urbergsson og Jóhann Gunnar Þorbergs- son við." Að þessu lesnu má ekki annað skilja en að fyrir tilkomu ofanskráðra hafi hér hvorki verið til gigtarlæknar né lækningar, nema þá í bezta falli ómótaðar og á frumstigi. Vegna gigtarlækna í nútíð og framtíð, svo og þeirra er láta sig sögu læknis- fræðinnar einhverju varða, langar mig að bæta hálfri öld framan við ofanskráð „mótunartímabil". Árið 1908 útskrifast Jón Kristjánsson sem nudd- og sjúkraþjálfari frá Kaupmannahöfn. Hann rak síðan stofu sína hérlendis til dauðadags 1937. í milli- tíðinni tók hann próf úr læknadeild HÍ 1914, rak áfram stofu sína og 1923 veitti Læknafélag íslands honum sérfræðileyfi sem gigtarlæknir. Hann kenndi og út- skrifaði tvo sjúkraþjálfara og fleiri urðu þeir ekki útskrifaðir hérlendis fyrr en með tilkomu námsbrautar í sjúkraþjálfun við HÍ 1976 (útskr. 1980). Á eftir Jóni fengu réttindi Karl Jónsson 1930, Björgvin Finnsson 1937, Kristján Hannesson 1940, Ragnar Sigurðsson 1948, Haukur Þórðarson 1962 og vafalaust ein- hverjir ótaldir. Læknar þessir voru allir sérmenntaðir á viðurkenndum stofnunum erlendis og störfuðu síðan hér heima sem gigtar- og endurhæfingarlæknar. Ástæðu- laust er að ætla annað en að þeir hafi starfað með þeim tólum og lyfjum er bezt þóttu á hverjum tíma. Starfsheiti þessara lækna var lengi vel á reiki, og nafnið gigtarlæknir festist seint í sessi. Heitið endurhæfingarlæknir á sér enn styttri sögu. Nokkur dæmi um fyrri nöfn eru: nuddlæknir, fysioterapeut, fysiurg, orkulæknir. Til gamans má geta þess að sjúkraþjálf- arar útskrifaðir frá virtum stofnunum á Norðurlöndum nefndust þar til dæmis sygegymnast eða sjukgymnast, en hingað komnar skyldu þær heita nuddkonur og var svo fram til 1962 er þær endanlega hlutu núverandi nafn, sjúkraþjálfari. Þrátt fyrir þessi misgáfulegu starfsheiti má ætla að bæði lækningar og endur- hæfing hafi verið sambærileg við það sem gerðist í þeim löndum er fólk þetta hafði menntazt, en áfram með sagnfræðina. Til þess að veita áhugasömum örlitla innsýn í nám og störf gigtarlæknis um og fyrir miðja síðustu öld, vil ég bera þar niður er ég þekki bezt til. Karl Jónsson (1896-1980) útskrifaðist úr læknadeild HÍ 1925. Hið háa Alþingi veitti honum styrk til sérfræðináms í Danmörku, en hugur hans stóð til skurðlækninga. Er hann kom í sendiráð íslands í Kaup- mannahöfn og hugðist leysa út ávísun sína, var hann kallaður inn til sendiherr- ans, sem þá var Sveinn Björnsson, síðar fyrsti forseti Islands. Sveinn spurði Karl hvað hann hygðist fyrir og er hann nefndi skurðlækningar sagði sendiherrann: „Æ, vilduð þér ekki heldur kynna yður gigtar- lækningar? Það er svo ósköp mikil gigt heima," og strauk á sér hnéð. Hann bauðst til að tala við vin sinn og skólabróður sem nú væri orðinn yfirlæknir við Folkek- uranstalten ved Hald, sem þá var stærsta gigtar- og endurhæfingarstofnun Norður- landa með pláss fyrir 500 sjúklinga. Karl þakkaði að vonum gott boð en kvaðst ætla að þreifa fyrir sér um pláss á skurðdeild. Hann komst fljótt að raun um að slíkt væri ekki auðsótt, og þáði síðan boðið. Karl var fyrstur íslenzkra lækna til að nema frá grunni sérgrein gigtar- og endurhæfingar- lækninga við viðurkennda stofnun. Með viðkomu á nokkrum sjúkrahúsum og deildum hélt hann svo til Hald og var þar við störf og nám til 1930 er hann fór í 5 mánaða námsför til Berlínar, Pistyan, k. 208 LÆKNAblaðiS 2013/99

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.