Læknablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 36
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Af liðbólgusjúkdómum
og sagnfræði læknisfræðinnar
Leifur Jónsson
skurðlæknir
fimmvh@simnet.is
Folkekuranstalten við Hald nærri Viborg sem er norðarlega á Jótlandi. Danski Rauði krossinn byggði búðir þessar
fyrirflóttafólk úrfyrri heimsstyrjöldinni.
Félag íslenzkra gigtarlækna ásamt fleirum
gáfu fyrir skömmu út bækling um liðbólgu-
sjúkdóma. Kominn á aldur og gigtin aðeins
farin að narta í kjöt og liði, hugsaði ég mér
nú gott til glóðarinnar og hóf lestur. Margt
bar þar fróðlegt fyrir augu, til dæmis voru
á 17. og 18. öld uppi glöggir karlar sem bæði
læknuðu og skrifuðu um gigt.
Við lesturinn kom upp í mér áhuga-
maðurinn um sögu læknisfræðinnar, en
þarna gaf að líta eftirfarandi: „Sérgreinin
gigtarlækningar byrjar að mótast hérlendis
með tilkomu Jóns Þorsteinssonar læknis,
en hann varð yfirlæknir á gigtardeild
Landspítalans 1969. Síðan bættust Kári Sig-
urbergsson og Jóhann Gunnar Þorbergs-
son við." Að þessu lesnu má ekki annað
skilja en að fyrir tilkomu ofanskráðra
hafi hér hvorki verið til gigtarlæknar né
lækningar, nema þá í bezta falli ómótaðar
og á frumstigi.
Vegna gigtarlækna í nútíð og framtíð,
svo og þeirra er láta sig sögu læknis-
fræðinnar einhverju varða, langar mig
að bæta hálfri öld framan við ofanskráð
„mótunartímabil". Árið 1908 útskrifast Jón
Kristjánsson sem nudd- og sjúkraþjálfari
frá Kaupmannahöfn. Hann rak síðan stofu
sína hérlendis til dauðadags 1937. í milli-
tíðinni tók hann próf úr læknadeild HÍ
1914, rak áfram stofu sína og 1923 veitti
Læknafélag íslands honum sérfræðileyfi
sem gigtarlæknir. Hann kenndi og út-
skrifaði tvo sjúkraþjálfara og fleiri urðu
þeir ekki útskrifaðir hérlendis fyrr en með
tilkomu námsbrautar í sjúkraþjálfun við
HÍ 1976 (útskr. 1980).
Á eftir Jóni fengu réttindi Karl Jónsson
1930, Björgvin Finnsson 1937, Kristján
Hannesson 1940, Ragnar Sigurðsson 1948,
Haukur Þórðarson 1962 og vafalaust ein-
hverjir ótaldir. Læknar þessir voru allir
sérmenntaðir á viðurkenndum stofnunum
erlendis og störfuðu síðan hér heima sem
gigtar- og endurhæfingarlæknar. Ástæðu-
laust er að ætla annað en að þeir hafi
starfað með þeim tólum og lyfjum er bezt
þóttu á hverjum tíma.
Starfsheiti þessara lækna var lengi
vel á reiki, og nafnið gigtarlæknir festist
seint í sessi. Heitið endurhæfingarlæknir
á sér enn styttri sögu. Nokkur dæmi um
fyrri nöfn eru: nuddlæknir, fysioterapeut,
fysiurg, orkulæknir.
Til gamans má geta þess að sjúkraþjálf-
arar útskrifaðir frá virtum stofnunum á
Norðurlöndum nefndust þar til dæmis
sygegymnast eða sjukgymnast, en hingað
komnar skyldu þær heita nuddkonur og
var svo fram til 1962 er þær endanlega
hlutu núverandi nafn, sjúkraþjálfari.
Þrátt fyrir þessi misgáfulegu starfsheiti
má ætla að bæði lækningar og endur-
hæfing hafi verið sambærileg við það sem
gerðist í þeim löndum er fólk þetta hafði
menntazt, en áfram með sagnfræðina. Til
þess að veita áhugasömum örlitla innsýn
í nám og störf gigtarlæknis um og fyrir
miðja síðustu öld, vil ég bera þar niður er
ég þekki bezt til.
Karl Jónsson (1896-1980) útskrifaðist úr
læknadeild HÍ 1925. Hið háa Alþingi veitti
honum styrk til sérfræðináms í Danmörku,
en hugur hans stóð til skurðlækninga.
Er hann kom í sendiráð íslands í Kaup-
mannahöfn og hugðist leysa út ávísun
sína, var hann kallaður inn til sendiherr-
ans, sem þá var Sveinn Björnsson, síðar
fyrsti forseti Islands. Sveinn spurði Karl
hvað hann hygðist fyrir og er hann nefndi
skurðlækningar sagði sendiherrann: „Æ,
vilduð þér ekki heldur kynna yður gigtar-
lækningar? Það er svo ósköp mikil gigt
heima," og strauk á sér hnéð. Hann bauðst
til að tala við vin sinn og skólabróður sem
nú væri orðinn yfirlæknir við Folkek-
uranstalten ved Hald, sem þá var stærsta
gigtar- og endurhæfingarstofnun Norður-
landa með pláss fyrir 500 sjúklinga. Karl
þakkaði að vonum gott boð en kvaðst ætla
að þreifa fyrir sér um pláss á skurðdeild.
Hann komst fljótt að raun um að slíkt væri
ekki auðsótt, og þáði síðan boðið. Karl var
fyrstur íslenzkra lækna til að nema frá
grunni sérgrein gigtar- og endurhæfingar-
lækninga við viðurkennda stofnun.
Með viðkomu á nokkrum sjúkrahúsum
og deildum hélt hann svo til Hald og var
þar við störf og nám til 1930 er hann fór
í 5 mánaða námsför til Berlínar, Pistyan,
k.
208 LÆKNAblaðiS 2013/99