Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 4

Læknablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 4
^ 4. tölublað 2013 LEIÐARAR FRÆÐIGREINAR 183 Ingvar Þ. Sverrisson, Jón Högnason, Halla Viðarsdóttir, Gizur Gottskálksson, Gunnar Þór Gunnarsson, Jón Þór Sverrísson, Tómas Guðbjartsson Rof á hjarta eftir gangráðsísetningu - íslensk tilfellaröð Einn alvarlegasti fylgikvilli við gangráðsísetningu er þegar gangráðsvír rýfur gat á hjartað sem getur orsakað lífshættulega blæðingu. Hér er lýst 5 tilfellum sem greindust árin 2007-2010. 179 Sigurður Guðmundsson Hvenær verður heilbrigðisþjónusta að kosningamáli? Það skortir umræðu um hvernig á að raða málum í forgang. Hvort vegur þyngra öflug heilbrigðisþjónusta eða framtíð SpKef og Sjóvár? 189 Ólafur Árni Sveinsson, Ólafur Kjartansson, Einar Már Valdimarsson Stokkasegi - sjaldgæfur sjúkdómur en mikilvæg mismunagreining við höfuðverk, heilablóðfall og flog. Tilfelli og yfirlit Stokkasegi er sjaldgæfur, hann veldur hækkuðum innankúpuþrýstingi og heilablóðfalli, ekki síst hjá ungu fólki og miðaldra. Konur, sérstaklega í kring- um barnsburð, og einstaklingar með segahneigð eru í sérstökum áhættuhópi Það sem gerir greininguna erfiða eru fjölbreytileg einkenni á borð við höfuð- verk, ógleði, uppköst, sjóntruflanir, meðvitundarminnkun, málstol og hreyfi- og skyntruflanir. 181 Sigurður E. Sigurðsson Á vendipunkti Fyrir kosningar er forystu- mönnum framboða tíðrætt um að bæta þurfi heilbrigðis- þjónustuna. Þeirsem þannig tala verða að láta verk fylgja orði. 197 Jóhannes Skaftason, Þorkell Jóhannesson Töflur og töflugerð - með sérstöku tilliti til íslenskra aðstæðna Töflugerð hófst á íslandi um 1930. Fyrstu töfluvélarnar voru handvirkar en stórvirkari vélar komu hingað eftir 1945. Um 1960 voru töflurframleiddar hjá einu apóteki og tveimur lyfjaheildsölum sem jafnframt framleiddu lyf. Nú er einn töfluframleiðandi í landinu. Tíu töflutegundir voru á markaði árið 1913 en voru orðnar 500 árið 1965. Formannafundur LÍ Föstudaginn 19. apríl heldur Læknafélag íslands árvissan formannafund sinn. Fyrir hádegi er farið yfir ályktanir aðalfundar 2012 og störf stjórnar LÍ. Jafnframt gefa forkólfar í innra starfi félagsins skýrslur um starfsemi síðasta árs. Eftir hádegi er opið málþing undir fyrirsögninni: Efnahagsmál í aðdraganda kjarasamninga. Fyrirlesarar á málþinginu verða Ólafur Isleifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Ólafur Darri Andrason hagfræðingur ASÍ. Málþingið verður kl. 13-16:30 í Hliðasmára 8 í Kópavogi. 176 LÆKNAblaðið 2013/99 020

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.